þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Step into my office baby...

Nú er ég loksins sest niður fyrir framan skjáinn að rita nokkrar línur um undanfarna daga og það sem hefur gerst í lífi mínu síðan síðast.

1. SKólinn er byrjaður með stóru S-i. Það er nóg að lesa og ég auglýsi eftir aðila sem er námsfús og sæi sér fært að lesa á móti mér allt námsefnið, svona 50-50. Greiðsla verður rædd undir 4 augu...
2. Fjölskyldan kemur loksins heim á miðvikudag eftir 2 vikna dvöl í Alicante að safna brúnku. Ég hlakka mikið til. Ekkert jafnleiðinlegt og að vera ein heima í svona langan tíma. Sérstaklega þegar maður fær ekkert alltof hressa miða(frá nágrannanum) á útidyrahurðina sem fjallar um hversu lélega söngrödd ég og vinir mínir hafi....Eins og Singastar var góð hugmynd á þessum tíma.!!
3. Ég og Freyja erum byrjaðar að æfa Fitness box. Þetta er held ég skemmtilegasta líkamsrækt sem ég hef stundað(f.utan danstíma í Body Shop í Rep.Dom, þegar við dönsuðum Reggaeton!)Fór á fyrstu æfinguna ein og það leið næstum yfir mig. grínlaust. Ég þurfti að setjast niður og setja hausinn á milli hnjánna og læti!! Hef ekki hreyft mig í svo alltof langan tíma!! Fór svo í vigtun og fitumælingu(niðurstöðurnar eru leyndó!). Oscar(kúbverji)þjálfari tilkynnti mér svo pollrólegur að ég ætti að gjöra svo vel og missa 5kg á 6 vikum. Ég hlakka mikið til að sjá hvort það gangi eftir....Ég bíð ennþá spennt eftir því að sykurpúðinn minn mæti líka með okkur!!:)
4. Síðasta helgi var sérstaklega skemmtileg. Fórum í partý, ég hef ekki farið í partý í ár og aldir. Það var stuð.
5. Ég mun halda áfram að vinna í ellismellaparadís í vetur. Það er alltaf jafn yndislegt þar. Maður fær hárgreiðslu og knús sem er nú ekki hægt hvar sem er... :)
6. Freyja á afmæli um næstu helgi. Ég hlakka mikið til. Hún má búast við því að fá hamingjuknús og með því!

Fastir liðir eins og venjulega!
Rósenberg: Hildur fær himinhátt þjórfé og vekur það upp spurningar um hvort það sé selt e-ð meira en áfengi "bak við borðið" á Berginu....?? Málið er í rannsókn.
Heimskupör Lilju: Er að vinna í PowerPoint sem verður til sýnis fyrir útvalda eftir 4 daga.
Atburður vikunnar:Það átti að henda Hildi útaf 11-unni fyrir að hvíla augun.

föstudagur, ágúst 25, 2006

Í skólanum, í skólanum.....

Lilja, núna er ég búin að skrifa 6 pósta af síðustu 8 og hvað segir það þér??
Er semsé byrjuð í skólanum, endalaust fjör :) Nei án gríns þá er fínt að vera komin í svona smá rútinu, vakna snemma og nýta daginn. Ekki eins og sumarið er búið að vera latt og þægilegt hjá mér... Hlakka samt til sumarsins 2007 ef það verður jafn skemmtilegt og þetta í ár...
En allavegana yfir til þín Lilja....

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Nú er ég komin til ad vera... Hef verid a nogu flakki i sumar og ætla ad halda mig a klakanum i oakvedin tima, langan samt sennilega.
Þýskalandsförin var yndisleg, eins og ad koma heim aftur ad ymsu leiti. Svaf i minu gamla rumi, bordadi besta mat i heimi og gerdi fullt fullt a tessum stutta tima sem eg staldradi vid.
Numer eitt var nattlega ad hitta fjölskylduna og vinina aftur en numer tvö og þrju voru tonleikarnir ogleymanlegu a sunnudaginn... Þar voru 90.000 manns saman komnir til ad berja Robert Peter Maximilian Williams augum... Hann spiladi tvenna tonleika, laug og sunn og þeir sem leið sína lögðu til Hockenheim urðu svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum... Ekki skemmdi heldur fyrir að það rigndi ekki þrátt fyrir mikla skúri undanfarinna daga...
Mun aldrei gleyma þessu kvöldi... Hann er lang flottastur :)
Byrjaði að vinna í dag, skólasetning a mán. og svo allt á fullt á þrið. og þá kemur einmitt líka elskuleg systir mín heim í heiðardalinn...Get ekki sagt annað en að ég sé orðin nokkuð spennt fyrir þessu öllu saman...
Farin að sofa....

Af hverju er maður verstur þeim sem manni þykir bestur??

mánudagur, ágúst 07, 2006

Ich liebe Deutschland!!

saelt veri folkid.... Nuna erum vid semsagt komnar heim fra Danmörku eins og gloggir lesendur hafa tekid eftir. Eg staldradi nu ekki lengur vid en svo ad i morgun flaug eg til Tyskalandsins goda og er herna i godu yfirlaeti fjolskyldunnar minnar sem eg bjo hja tegar eg var skiptinemi... Ljuft lifid hja mer tetta sumar, endalaust af ferdalogum en eftir tessa ferd hugsa eg ad eg haldi mig heima hja mer fram ad jolum allavegana.... Pabbi hringdi einmitt i mig i gaer og spurdi : "So, how do you like Iceland?"Ja lenti semsagt her um hadegisbilid i dag og tokst ad kludra tvi einhvern veginn ad rata rett ut ur risavaxinni flughöfninni svo eg for a vitlausan stad tar sem toskurnar koma og turfti ad fara ut og svo aftur inn i gegnum tekkid og inna hitt tar sem min taska kom.... meiri vitleysan og eg skil bara ekki hvernig tetta gerdist.. Tegar eg kom tangad var min taska ein eftir og faeribandid meira ad segja stopp... Tau Senta og Roland sottu mig og eg var buin ad vera svo lengi ad tau heldu ad eg hefdi bara haett vid ad koma a sidustu stundu. Skritid samt ad tetta hafi gerst nuna midid vid hvad allt gekk vel tegar eg var bara heimskur skiptinemi ad koma hingad:) Svo forum vid bara heim tar sem eg dottadi sma a leidinni i bilnum (tad er 2 tima akstur fra Frankfurt og heim til min) tar sem eg svaf ekki neitt i nott en var samt rotud alla leidina i flugvelinni sem er bara gott mal tar sem mer hefur undanfarid fundist soldid othaegilegt ad fljuga. Svo komum vid heim og bordudum sem var geggjad tvi maturinn her er bestur i heimi sko eg er ad segja ykkur tad. Sidan var mer bara heldur betur lanadur bilinn, ekki bmw-inn samt en ja eg var semsagt ad keyra i fyrsta skipti i utlondum adan og tad var stud... For med Evy til Künzelsau, kiktum i nokkrar budir sem eru nu ekki of margar her a slodum en mer tokst samt ad kaupa mer e-d... Er ordin shoppaholic eftir ad hafa verid i Köben:) Annars er yndislegt ad vera komin hingad a ny og mer finnst bara eins og eg hafi ekkert farid eins og mer fannst lika tegar eg kom til Islands eftir arid mitt her... skritid.
A laugardaginn erum vid svo ad fara a fotboltaleik i Stuttgart, fyrsta umferdin i Bundesliegunni ad byrja ta... Stuttgart ad spila a moti Nürnberg og tad tarf ekki ad taka tad fram ad vid holdum nattlega med Stuttgart sko... Gud hvad tad er skritid ad sitja herna aftur og vera ad blogga fra Tyskalandi.
Annars er sidan staersta stundin a Sunnudaginn tvi ta erum vid ad fara a Robbie Williams tonleika og eg get sko ekki bedid, hann er nattlega bara lang flottastur... Tad verdur gedveikt sko (sorry Helga sorry)....
Annars vildi svo skemmtilega til ad hun Karen var lika ad fljuga ut i morgun svo vid gatum varid tima saman i Leifsstod :) Stud..
en nog i bili... have fun og sjaumst eftir helgina:)
kv, Hildur Thjodverji!!!

P.s. tegar eg kom heim ta var tyskalandsfani a svolunum, einn brasiliskur (allt utaf HM) og svo var kruttid hann Roland buin ad kaupa einn islenskan a netinu adur en eg kom svo ad nu er hann lika hja hinum.... Aedi gaedi!

P.s. 2 Oki erudi ad tekka a gaurnum???? Shji.....

þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Vid erum ad koma heim i dag.... :)