föstudagur, nóvember 24, 2006

Minn tími er kominn!


nú er ég loksins sest niður við tölvuna að gera eitthvað annað en að læra!!! Búin með Ljóðaritgerðina (með sterkum greini) í ÍSL-503. Þetta helvíti er búið að hanga yfir manni síðan maður var busi. Alltaf verið að hræða mann með þessu!! en loksins eftir kvíðaköst og hvaðeina er ég búin með þetta og það verður ekki aftur snúið.

Akkúrat nuna sit ég í hlýjunni heima eftir frábært kvöld!! hildur Mist og moi, menningarvitarnir sjálfir skelltum okkur í leikhús og hvorki meira né minna en tvenna tónleika! Fórum í Iðnó að sjá Bezt í heimi. Mæli eindregið með henni. Hef sjaldan hlegið jafnmikið í leikhúsi!! SchnillD! svo kiktum við a Nettettinn a það sem eg held að hafi verið fyrstu tonleikar þeirra..svo kiktum við a kultura þar sem pete var með siðasta giggið sitt þangað til hann heldur aftur til astraliu. svaka kosy, og ekki spillti svavar fyrir með sitt alkunna grin og uppistand.
það er laufabrauð a laugardag, hlakka til , eg er komin i svo mikin jolafiling eitthvað þessa dagana...held það se snjorinn....vona að við faum hvit jol!!

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Á minni plánetu er hefnd ekki í hávegum höfð... En við erum ekki þar, er það??


Mig langar að byrja á því að segja Karen úr þessu bloggsamfélagi þar sem hún hefur ekki skrifað eina einustu færslu eftir jómfrúarfærsluna.... Annars er ég að hugsa um að segja mig sjálfa úr þessu líka þar sem að ég nenni þessu eiginlega ekki....
En allavegana ætla ég nú að klára þessa færslu fyrst að ég er byrjuð á henni. Það er ekkert nýtt í gangi... Ég og Lilja erum reyndar að fara í leikhús á morgun að sjá "Ísland best í heimi" og búumst við hinni bestu skemmtun... Eftir það verður stefnan tekin á eina af tvennum tónleikum sem eru í gangi. Í dag er ég búin að vera í einn mánuð í áfengisbindindinu góða, það er afrek og þar af leiðandi hef ég unnið frekar mikið í þessum mánuði og hlakka til að fá þykkt umslag um mánaðarmótin...:)
Fimm skóladagar eftir og svo byrja prófin, það er gaman... Svo koma bráðum blessuð jólin :) Börnin fara eða eru mörg hver farin að hlakka til, að minnsta kosti ég. Svo er margt annað að fara að gerast sem ég ætla þó að láta ógetið um sinn. Fórum í tíma 2 á hiphop námskeiðinu í gær og aldeilis farið að færast fjör í leikinn, sumir svitnuðu mikið, aðrir ekki :) Lilja mín, sagt er að maður svitni meira ef maður er í góðu formi... haha
Nenni ekki að skrifa meira útaf ég er að fara að gera e-ð uppbyggilegt eins og t.d. að horfa á tv, sem ég geri þó næstum aldrei...

þar til næst (lofa engu um hvenær eða hvort það verður)...

Þegar allt um þrýtur
vertu glóð sem vekur eld hjá mér.
Uns þá yfir lýkur
áttu mig ef eitthvað út af ber.


Kv, Hildur Mist Ottesen Axfjörð Friðjónsdóttir

fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Undanfarið....

...hef ég þjáðst af bloggastíflu og þjáist enn. Ætla þó að reyna að skrifa e-ð smávegis hérna inná. Ég ligg undir sæng sem er alveg gríðarlega notalegt fyrir utan það að mér er kalt á upphandleggjunum þar sem að þeir þurfa að koma undan sænginni til að ná hendurnar nái á lyklaborðið. Það er svo drullukalt úti og rok og ég veit ekki hvað og hvað. Algjörlega ömurlegt veður og ekki til að bæta geðið hjá manni.. Það er nóvember sem ég btw hata og svo svona skítaveður líka, dimmt og kalt... Ógeð hreint út sagt, skil ekki hvernig okkur dettur í hug að vera að hanga hérna á klakanum á vetrarmánuðunum... Ég ætla að flytja í sólina fljótt, mjög fljótt....
En burtséð frá þessum leiðindum er flest alveg í góðum gír. Tvær vikur eftir af skólanum og síðan bara próf. Það er alveg svona frekar hressandi get ég sagt ykkur. Jólin koma svo og þá er gaman :) Systir mín hún Helga Sif kemur líka heim 18.des og þá verður enn meira gaman, en mest gaman er að hún verður hér á klakanum fram yfir afmælið mitt sem er í enda mars... veivei! Svo kemur nýtt ár og þá er líka gaman, þá getur maður gert allt sem maður ekki náði að gera á þessu sem er að líða og gert betur það sem maður gerði ekki nógu vel. Þá kemur líka vonandi snjórinn sem þýðir það að maður getur farið að vera tíður gestur í Bláfjöllum og það er gaman. Svo á ég afmæli fljótt eftir að nýja árið byrjar, þá verður veisla sem er gaman. Síðan koma páskarnir sem er líka gaman og lesturinn fyrir vorpróf hefst. Svo klárast þau og maður kemst í sumarfrí sem er það besta af öllu sem ég er búin að telja upp. Þá líka stuttu seinna, í byrjun júní mun ég fljúga mér til USA og eyða dágóðum tíma þar... kannski heilum mánuði en svo kem ég heim og fer til Danmerkur á Hróaskeldu :) Svo kem ég heim og þá fer ég sennilega ekkert meira það sumarið, verð bara að vinna á fullu, kannski á Rósenberg... það kemur í ljós. Niðurstaða þessa bloggs er því sú að sumrin eru best, lang best... Enda var síðasta sumar skemmtilegasti tími sem ég man eftir og stefnan er sett á að næsta verði enn betra. Nenni nefnilega ekki að vera stuck í því að hugsa um hvað ´06 var mikil snilld og vil toppa það sem fyrst til að lifa ekki í glans fortíðarinnar. Það er ekki gott fyrir mann! Væri samt til í að lifa það allt aftur, hefði þá gert ýmislegt öðruvísi...
En allavegana þá er ég hætt í bili, þar til næst....

"Lífsins söguþráð
við spinnum aldrei einsömul.
Öll við erum háð
þeim öflum sem við fáum ekki ráðið við..."

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Hver er konan?

Hér vil ég rita nokkur orð um unga stúlku sem ég þekki. Stúlkan er með afbrigðum fögur, kvenkostur mikill og drengur góður.
Hún er afar fyndin(þótt að þar séu ekki allir sammála um það), hlær dátt þegar henni finnst e-ð spaugilegt og tekur lífinu létt. Hún stendur á sínu, er traust og trú og lætur sko ekki einn né neinn segja sér fyrir verkum. Hvorki samþegna, foreldra, yfirboðara né guð. Hún er fáránlega gáfuð þrátt fyrir að finnast hún stundum koma utan af landi þegar hún er í samfloti við ákveðna aðila...Hún er ósérhlífin(hún kenndi mér þetta orð), gjafmild, frek, blíð, æst, dugleg, kúrin, ljúf og einstök.
Hún er konan sem kyndir ofninn minn.
Hún er fjallkonan.
Hún er fögur og flott.
Hún er fagra litla diskódís.
Hún er dararararararrammmmrararraaaaaammmmmmm