föstudagur, mars 31, 2006

Einn dans fyrir mig!

Nú er sko gaman að lifa. Sólin skín og fuglarnir syngja. "Lífið er núna" svo ég vitni nú í gamlan vin. Síðustu dagar hafa verið bara nokkuð góðir. Ég skellti mér út á landsbyggðina á fimmtudaginn og sá Bítlasöngleik hjá henni Toffu minni. Stelpan var að semja dansa og stóð sig líka svona helvíti vel! Föstudagurinn var ekki verri. Úrslitin í MORFÍS voru í Háskólabíó. MH vs. MR. Við fengum ræðumann kvöldins en MR-ingar unnu...MH-ingarnir skelltu sér síðan allir á SHOOTERS!! hahahah þetta var fyndin stemmari. Það var einróma álit að MH verði að finna sér svona soldið meira respectable stað fyrir bjórkvöld....með fullri virðingu f. Shooters. En það var gúd, dansaði á fullu og skellti mér síðan í bæinn með Eddu og co.. Það var góður stemmari. Fullt af útlendingum. Þeir eru alltaf hressir.

Svo er hún Evy "systir" hennar Hildar komin til landsins og við fórum rosalega menningarlegar að sýna henni Perluna, Skólavörðustíginn og svona í gær. Æðislegt veður fyrir utan -143°C frost. Sáum ÍBV verða deildarmeistara kvenna og tókum Singstar, ég vann Just like heaven í fyrsta skipti!! JESS. Svo var Kristján svo hress og skemmtilegur eins og hans er von og vísa og bauð mér á tískusýningu sem hann var að taka þátt í !! Hann var langflottastur að sjálfsögðu;)

Svo var búið að skipa Hildi sem sérlegan eftirlitsstelpu í afmælispartýi hjá Evu frænku hennar. Þannig ég fór í annað skipti út fyrir borgarmörkin, í þetta skiptið uppá Álftanes! Þetta var fínasta partý. Hildur tók dyravarðahlutverk afar alvarlega og hleypti engum inn nema að sá hinn sami væri með handskrifað boðskort með stimpli og alles! :) Hún stóð sig einkar vel. Við heyrðum ýmsar sögur um fólk í leit að sinni réttu köllun í lífinu. Ég hélt líka um stund að ég væri komin í Örkina hans Nóa. Þvílíkur aragrúi af dýrum!! Lífs&liðnum..; 3 kettir, tíkin Káta, STÓrT fiskabúr með skrautsteinum, uppstoppaðir fuglar og refur, fuglaklukka og ég veit ekki hvað sko! Þetta gekk samt sem áður bara mjög vel og það kom mér á óvart hvað þetta var rólegt. Var búin að undirbúa mig fyrir e-ð brjálað "unglingapartý"!!

Dagurinn í dag er sunnudagur aka Leiðinlegasti dagur vikunnar. En mér sýnist á öllu að við séum að fara í sund, svo þetta er ekki alslæmt...

Svo er það countdównið:
Páskafrí: 5 dagar
Danmörk með familien:24 dagar
Prófin búin: 44 dagar
Hróarskelda&Köben: 12 vikur og 2 dagar

mánudagur, mars 27, 2006

Var það ekki e-r sem sagði "do you have sítrón?" í staðinn fyrir lemon??

Tveir íslendingar eru úti í sveit að aka og sjá bíl fastan úti í kanti.
Þeir ákveða að hjálpa og fara út úr bílnum. Þetta eru útlendingar og kunna íslendingarnir lítið í ensku entekst að spyrja: "Dú jú vant help?"
Útlendingarnir svara " no no this is ok"
Íslendingarnir vilja endilega hjálpa og gefa sig ekki og segja: Jes ví help jú.
Útlendingarnir: No no this is ok
Íslendingarnir: Jes jes nó vesen - ví help jú. Þeir ná í reipi í bílinn sinn til að freista þess að draga bílinn - í versta falli að ýta honum upp á vegkanntinn aftur.
Útlendingarnir: What are you gonna do?
Íslendingarnir: First ví reip jú - Þen ví ít jú



Góður!! Kv, Hilmfri

sunnudagur, mars 26, 2006

Davíð!! ég hef verið að hugsa um þig...


Jæja. Helgin. Var. Snilld!
Það er nú kannski komin tími á að við förum að hugsa aðeins um þetta blessaða blogg okkar!! Hildur, hvernig líst þér á það??? Koma með meira grín, fleiri myndir og hressari færslur!!
Ég skal taka fyrsta skrefið...Hérna kemur það!

Helgin fór fram úr mínum björtustu vonum!!
Á föstudaginn vorum við Hildur úberhressar í PI með AFS á kjantinum!! Starfsfólk AFS skrifstofunnar fær + fyrir að splæsa nammi á línuna! Síðan var fjölskyldukvöld!!
Þar sem fjölskylda mín er ótrúlega samrýnd, frábær, krúttuleg og eiginlega bara fullkomin ákváðum VIÐ að fara saman út að borða. Við skelltum okkur á Ítalíu og eftir á ætluðum við í bíó. en eins og þeir sem hafa setið að snæðingi á Ítalíunni vita að það er ekkert hlaupið að því að klára réttina sína. Þetta er e-ð prank hjá þeim að hafa þá svona ofboðslega stóra!! Og sökum ofáts meikuðum við bara alls ekki að fara í bíó. Skelltum okkur niðrí Snæland og leigðum böns af dvd og tróðum okkur í TV-sófann og gláptum á fullt af vídjó(nei bara 1, vorum svo þreytt og fórum svo að sofa:)
Laugardagurinn var líka helgaður fjölskyldunni. Mætti eldhress í þessa líka rosa tæknivæddu skírn hjá móðursystur minni. ÞAr sem 2 af 5 systrum mömmu gátu ekki verið viðstaddar og skírnin var haldin heima. Þá var bara skellt webcameru á og þær horfðu á þetta allt í beinni. Við gátum meiraðsegja rabbað við þær og alles. ekki leiðinlegt°! Svo eftir að Elmar var skírður lá leið mín í Hvannhólmann eins og svo oft áður.
Við Bína, Hildur og ég skelltum okkur í afmæli til Sólveigar þar sem boðið var uppá þessar líka fínu guðaveigar:) Horfðum á ódauðlegt myndband úr sumarbústaðnum f. jól. EFtir það afneitaðu Hildur Mist mér sem vinkonu....

Svo kom rúsínan í pylsuendanum: GUSGUS!! Þetta var snilld!! Byrjaði á því að ég týndi miðanum hennar Hildar,en þar sem NASA er svo heppið að vera með svona líka frábæra dyraverði hleypti gæjinn okkur bara inn!! En svo seinna um kvöldið fann ég miðann hennar...mjög dularfullt. Við hittum þarna fullt fullt af fólki og ég var rænd á barnum. Um heilar 700kkr...efast um að ég nái mér í bráð!! En svo fann ég strák sem gaf mér áfallahjálp og þá varég góð sko. Svo skelltum við okkur á 11una, hún stóð undir væntingumeins og svo oft áður. Tjúttuðum þar aðeins við ýmsa aðila. Stuð. Hlölli kom svo sterkur inn, eða þ.e.a.s. áður þangað til ég uppgötvaði að það var ananas helvíti á honuM!! það var ekki vinsælt. nema hjá stelpunni sem fannst ofboðslega fyndið að ég væri að skyrpa ananansum útúr mér. Svo hittum við líka læknanemann sem skoðaði á mér ristina(er sko ristarbrotinn or some) og braut í leiðinni e-ð sem ég hélt að væri trúnaðareiður og fór að básúna því um alla taxiröðina hvernig ég væri nú í fætinum. Það kom nú ekki að sök, en þetta hlítur að vera e-ð prinsipp, meina ef hann hefði verið læknanemi á húð&kyn væri ég ekkert alltof hlynt því að fá öskrað yfir lækjargötuna hvort að sýklalyfin sem ég væri á virkuðu ekki örugglega....Þið skiljið hvert ég er að fara?

Svo var sunnudagurinn bara klassíkin í rúminu allan daginn og svo bíó um aftenen. Fórum á Tristan& Isold. Sjaldan séð jafnmikið að heitum mönnum..uff. Það er e-ð við svona víkingamyndr; mennirnir allir rosa grófir, skeggjaðir, harðir og ég veit ekki hvað, þetta er bara alltof heitt !! Er ekki hægt að redda tímavél og ferðast aftur til þessa tíma þegar Njáll og Gunnar voru uppi...ég myndi ekki segja nei við því tækifæri!!

Svo er bara að halda áfram að telja niður daga að páskafríinu og DK...

miðvikudagur, mars 22, 2006

Hahahehehihi

Haha ég varð bara að smella þessari mynd hérna inná. Ætlaði sko að setja hana í færsluna hérna á undan en fannst við e-ð svo kjánalegar en svo fór ég að skoða þetta nánar og sá hvað þetta er nú fyndin mynd, sértstaklega eftir að ég fattaði að karen er þarna fyrir aftan "alveg að flippa á djamminu".... HAHAHA

Lítið hús

Eins og margir vita átti ég afmæli á mánudaginn og er því orðin 19. ára gömul. Mig langar að þakka öllum sem sendu mér blóm og heillaskeyti í tilefni dagsins, það gladdi mig ólýsanlega. Einnig vil ég senda kveðju til þeirra sem gleymdu afmælinu mínu eða allavegana af e-m ástæðum hringdu ekki (karen *hóst* Freyja *hóst*) :-)
En já helgin var fín, ég var að vinna og það var nú bara hin besta skemmtun eins og oftast. Svo var fjsk. afmæli heima hjá pabba á sunnudaginn fyrir Hrannar og smá mig líka (systkini sem eiga sama afmælisdag eru nú ekki á hverju strái). Svo var um kvöldið matarboð heima hjá mér þar sem ógeðslega góður kjúklingaréttur var í matinn, Lilja getur sko stutt og sannað að hann sé einn sá besti sem fólk hefur bragðað. Svo gerðist það nú..... já við loksins loksins fjárfestum í flugmiðum til Köben. Það gekk vel en ég var næstum hætt við því að ég þurfti að borga 2600 kr. svona eiginlega til einskis fyrir forfallatryggingu sem ég vonandi þarf ekki að nota og sko kostaði 1000 kr. meira að fljúga með seinni fluginu en því fyrra en betra þótti að fara fyrr um daginn. En ég er nú svona meira að fíflast með þetta en ekki... :-) Elska þig Bína mín.
Svo þegar ég mætti í skólann á sjálfan afmælismorguninn var e-r ljúglingur búin að koma með köku mér til heiðurs sem var á borðinu mínu, en það var enginn önnur en hún Lilja litla sem einnig kom og söng afmælissönginn f. mig seinna um daginn.
Um kvöldið ætluðum við heldur betur að gera okkur glaðan dag, fara niður á Rósenberg og taka smá krossorðaspilskeppni og kenna Bínu þetta undur veraldar í leiðinni. En þegar þangað var komið var hvorki meira né minna en lokað vegna þess að það var verið að mála svo við þurftum að fara annað og Prikið varð fyrir valinu í þetta skipti en því miður gátum við ekki farið í krossorðaspilið...Vá hvað þetta er innihaldslaus færsla, en þar sem ég er að fara á stæ.próf á eftir og ætti að vera að læra fyrir það er allt skemmtilegt fyrir mér á þessari stundu annað en að læra að reikna út staðalfrávik og e-ð um Z-stig... Úff

Nú fer brátt að líða að júróvisjón og í tilefni þess ákvað ég að skella þessari skemmtilegu mynd hérna inn... Hún er einmitt tekin fyrir tveimur árum (vá hvað tíminn líður) í einu besta partýi sem ég man eftir. Og hér með skora ég á Líneyju að endurtaka leikinn í ár :-)

fimmtudagur, mars 16, 2006

íslenska, íslenska, íslenska



Eins og fyrirsögnin ber raun vitni er íslenska málið þessa dagana, allavegana hjá mér. Veit ekki með ykkur en þetta ylhýra mál okkar sem búum á þessari einstöku eyju er alltaf að koma mér meira og meira á óvart. Ekki nóg með að þetta sé uppspretta alls hins fallega, góða og rausnarlega í lífinu hefur þetta líka orðið ein af ástæðunum að mig langar stundum að flytja til útlanda og aldrei koma aftur...en nóg um það.

Kristján kappi vinur vor er að fara að gera "walk off" í kvöld, allir að mæta í Smáralind að sjá kappann!! Ekki margir jafn fjallmyndarlegir og hann Kris minn. Maður mætir náttla að styðja drenginn! Gettu betur hvað?? Læt sko bara taka það upp!!

Hélt fyrirlestur í dag um Hallgrím Helgason, maðurinn er snillingur. Verð að birta hérna brot úr viðtali sem við tókum við manninn...hann er frábær
Við báðum Hallgrím semsagt um að segja okkur örstutt frá æsku sinni:
....Í Ríkisútvarpinu var einn þáttur helgaður dægurlögum og þau fengu aðeins þeir að velja sem voru alvarlega sjúkir og lágu á spítölum borgarinnar. "Óskalög sjúklinga" hét sá þáttur. Okkur krakkana dreymdi því öll um að fá krabbamein og leghálskirtil: við ætluðum að verða sjúklingar þegar við yrðum stór...Hann deildi líka með okkur mikilvægustu lexíunni sem hann lærði í MH:...Og líklega er þetta það eina sem maður lærði í MH: að þeir sem eru villtastir í skóla verða spilltastir í lífinu. Þeir sem ungir gefa skít í kerfið eru tilbúnir að éta hann fyrir það síðar.
Hvað finnst ykkur? Er þetta satt og rétt? Ég læt þetta ekki vera lengra í bíli. Ég er farin upp í Mekku Kapítalisma eins og "við MH-ingarnir" köllum Verzlunarskóla Íslands....hasta la vista, baby

miðvikudagur, mars 15, 2006

Home sweet home

Já, þetta var nú meiri andsk... ferðinn! En samt hress svona ef maður lítur til baka. En ég ætla nú ekkert að hafa þetta langt núna, er að drepast úr þreytu eftir langt og strangt ferðalag (komum með Herjólfi og þurftum svo nokkur að fara aftur á Bakka að ná í bílana) þó svo að ég afi sofnað meðan ég var að bíða eftir Sex And The City í gærkvöldi. Það byrjar klukkan 22:50 svo ég rotaðist um hálf ellefu (frétti svo í morgun af ægilegum prakkarastrikum sem áttu sér stað er rökkva tók), svaf líka í helvítinu honum Herjólfi eins og Lilja komst svo skemtilega að orði. Er samt núna að lognast útaf, bara bíða eftir Missing á stöð 2 plús en svo er það bara uppí rúm....

Bið að heilsa í bili...

þriðjudagur, mars 14, 2006

Veðurtepptar, í Vestmannaeyjum!!





Þegar Hildur sagði mér að hún væri að leggja upp í langferð alla leið suður til Írlendingaeyju leist mér nú ekkert allt of vel á blikuna. En þar sem hún og samferðalangar hennar myndu ferðast í flugvél frá Bakka en ekki helvítinu honum Herjólfi sætti ég mig við þetta.
Jæja þær flugu þarna suðureftir og öttu kappi við ÍBV stelpurnar og báru sigur úr býtum. En sá böggull fylgdi skammrifi að þær urðu barasta veðurtepptar!! Það er semsagt vindur úr öllum áttum þarna í Eyjum og svo kom líka í ljós að flugrörið var bilað hvort eðer...Frábært. En þetta reddaðist. Þær(og Hilmar) fundu þetta líka fína gistiheimili, þannig þetta lítur út fyrir að verða bara ansi kósý hjá þeim. Út að borða á Pizza 67..gerist ekki betra:) Svo er líka alveg búið að redda morgundeginum! Þær taka bara Herjólf, keyra frá Þorlákshöfn til Bakka og þaðan í bæinn!! Ekki nema eins og heils dags seinkun!! Hver væri ekki til í þetta ha?? Vera fastur í Eyjum...Allavegana er ég græn af öfund!!
Og við sem vorum að fara að kaupa flugmiða til DK í kvöld....það virðist seint ætla að gerast. Fólk er veðurteppt, óundirbúið, fátækt...þetta er skítt sko. En þetta hlýtur að takast á endanum.

föstudagur, mars 10, 2006

Heldurðu það sem ég held? Já ég held það...


Jæja, þá er þetta blogg okkar orðið opinbert! Ég ætlaði nú að kommenta hressilega á færsluna hennar Hildar en ég hef svo mikið að segja að það er best að koma því bara að hérna. Og byrjar lesturinn;
Það er fyrir löngu orðið deginum ljósara að ég og Hildur eyðum ómældum tíma saman, svo miklum að það hafa verið vangaveltur um hvort við séum kærustupar. Jæja, eftir allan þennan tíma er maður farin að kunna soldið á hana Hildi. Eða bara alltof mikið, þetta fer að vera óhugnalegt í meira lagi.
dæmi:
1.Í fyrradag segir Hildur ,,mmm mig langar í e-ð rosalega gott" Ég: ,,ókei, förum í Vesturbæjarísbúðina!!" og það var einmitt það sem hún var að hugsa.

2. Í gær á sátum við á bekknum og vorum aldrei þessu vant djúpt sokknar í handboltaleikinn HK-Haukar sem við vorum að spila í. Hildur lítur á mig og segir ,, ohhhh" og ég svara um hæl ,, já ok, við skulum hafa gististund(hvernig orðið gististund kom upp í huga mér er ennþá óleyst ráðgáta) En viti menn, ég hafði rétt fyrir mér!! Þetta fer að verða soldið spúkí sko.

3. Alltaf batnar það. Í dag byrja ég að skrifa færslu hérna inná og var bara búin að setja mynd inná en þurfti svo að hætt við sökum anna. Hvaða mynd önnur varð fyrir valinu, en sú sem Hildur setti inn í færslunni hér á undan !!!!

Við förum að hætta að þurfa að tala upphátt saman bráðum!! Nehhh, þá yrði svo leiðinlegt fyrir Hilmar.
Hvað ætti hann þá að gera af sér í öllum leikjunum okkar? Engin til að hlæja að, ranghvolfa augunum eða verða kjaftstopp yfir!! Nei ég held við höldum okkur við talmálið góða þangað til aðrir hafa þróað með sér hugsanalestur.

Þá er komið að því...

Dömur mínar og herrar, fyrsta bloggið mitt á þessari nýju og glæsilegu síður er að líta dagsins ljós. Jómfrúarbloggið.
Ég bara verð að segja það að mér finnst þessar myndir sem eru hérna á kantinum alveg hreint út sagt æðislegar.... Æ to the ð to the i to the s o.s.frv.
Hún Lilja litla fær alveg fullt af þökkum fyrir að hafa púslað þeim svona saman, flottar mar.

Það helsta sem er á dagskránni er það að hún Bína þurfti að leggjast undir hnífinn í morgun og liggur sennilega illa haldin heima hjá sér í þessum töluðu orðum. Ég er einmit að fara að fara til hennar og Lilja líka. Og ekki nóg með það þá erum við hvorki meira né minna en að fara að panta flugið okkar til DK þann 27.júní. Allt að gerast and I can´t wait. Þá er allt orðið klárt, flugið, Hróaskeldumiðinn og íbúðin.... Enda bara ca. 16 vikur held ég í að við förum út. Það tilkynnti Lilja allavegana hátt og snallt með bros á vör á Aroma í gærkvöldi...
...Og talandi um Aroma, það var sérstaklega skemmtilegt uppistand þar í gærkvöldi.
Við fórum semsagt, ég, Lilja og Bína og hittum þar fyrir Atla, og vini hans sem eru ekki vinir okkar við þekkjum ekki neitt Bjarna, Balla og Daða. En á öðru borði inni á staðnum situr Tryggvi, bróðir Atla í makinum sínum í góðra vina hópi....
Eftir smá stund ákáðum við Bína að hrekkja Tryggva aðeins og fengum Lilju í lið með okkur til þess að fara yfir til hans og biðja hann um númerið hans. Lilja er nú til í flest svona (nema að stynga sér yfir stöngina í Kóp.laug og skipta um miða í röðinni í ísbúðinni) svo hún slær til.
Byrjar á því að ganga einn góðan hring inni á stanum til að tékka á aðstæðum og fleira og labbar svo upp að Tryggva. Hún pikkar e-ð í hann þar sem hann snéri baki í okkur og hann fattar það ekki alveg, eða ekki fyrr en að vinur hans bendir honum á þessa föngulegu stúlku sem er að reyn að ná athyggli hans...
Lilja: Hæ Tryggvi, ég heiti Lilja (tekur í höndina á honum), sæll.
Tryggvi: (skrítinn á svip) Uuu, hæ.
Lilja: Ég kannast e-ð svo við þig, í hvaða skóla ertu?
Tryggvi: Ég er ekki í skóla.
Lilja: Ó, ok (þögn).... æfiru e-r íþróttir?
Tryggvi: Neibb.
Lilja: Ok, hvar vinnuru?
Tryggvi: Í búð í Kringlunni.
Lilja: Hvaða búð?
Tryggvi: Next
Lilja: Oh, hlaut að vera (brosir), ég er nefnilega alltaf þar...
Tryggvi: Jánkar og kinkar kolli vandræðalega.
Þögn
Lilja: (Dregur djúpt andann) Þarna sko, þetta er smá vandræðalegt (hljómar stressuð) en þarna ég var að spá hvort ég þarna mætti nokkuð fá númerið hjá þér?
Tryggvi: Uuu, jájá (og gefur henni það)
Lilja: Ok, takk æðislega (brosir, kemur við öxlina á honum og labbar burt)

Á meðan á öllu þessu stóð sátum við í kasti á borðinu á móti sem Tryggvi á ekki þar sem hann snéri í okkur baki, við reyndum líka að vera eins laumuleg og við gátum. Lilja kom svo og sagði okkur allt samab orðrétt og stóð sjálfa sig að því að roðna meira að segja þó að þetta væri ekki í alvöru og ég meira að sejga roðnaði líka fyrir hennar hönd. Svo sá Tryggvi loksins hvar við sátum og vetumst um af hlátri, spurning hvort honum hafi líka fundist það fyndið eða kannski svekkjandi að Lilja hafi í raun ekki verið að meika múv.... Hver veit samt hvort Lilja ahfi í raun verið að því en dulbúið það sem svona gríndæmi.... Hver veit, það mun koma í ljós samt innan tíðar.... (spúkí tónlist kemur og Sherlock Holmes labbar út í nóttina)
Fyndnast fannst mér samt hvernig allir hinir 7 sem sátum með T á borði fylgdust undrandi með... Ég hefði allavegana ekki haldið anliti... En svona fór um sjóferð þá, alltaf gaman að lífga umm á hversdagsleikann með smá svona glensi...

En þar sem þetta er sennilega lengsta bloggið mitt í svona 10 mánuði og pottþétt það lengst á þessari síðu þá er ég að hugsa um að hætta í bili. Óska djammfólki kvöldsins góðrar skemmtunnar og passið ykkur. Sjálf ætla ég að vera í vinnunni langt fram á nótt...

miðvikudagur, mars 08, 2006

Prufa, einn tveir einn tveir...sér einhver hvað ég er að skrifa?