újé újé újé újé újé(sagt með rytma)
veldi okkar hefur verið endurreist!!
Yfirráð eru óumflýanleg!!
laugardagur, desember 08, 2007
mánudagur, maí 14, 2007
LíffræðiiðærffíL
Síðasta prófið er staðreynd, já á morgun verð ég frjáls. Eftir 10 klt. réttara sagt. Þá tekur við e-r taumlaus gleði fram til 31. maí þegar það er komið að því, stóra ferðalagið mun hefjast. Ég er orðin svo spennt að ég held jafnvel að ég sé spenntari en þegar ég var 7 ára og fór með mömmu og pabba til Orlando í Disney World. Ég efast um að ég muni skemmta mér síður núna en ég gerði þá. Hitti meira að segja Barbie og Ken í Universal Studios að mig minnir og ég vona svo mikið að þau verði þar í þetta skiptið líka svo ég geti fengið eiginhandaráritun með lyktarpennunum sem þau eiga.
Ég er að lesa um frumur sem að ég hélt að væri ólæranlegt og leiðinlegt en komst að því mér til mikillar gleði að þetta er ekki flókið og meira að segja pínu pínu skemmtilegt. Var með Freyju í dag að læra og í einni pásunni fórum við að tala um lífið eftir menntó. Hvað gerist eiginlega þá?
Þar til næst: "You better do something radical, and do it fast!"
Þar til næst: "You better do something radical, and do it fast!"
föstudagur, maí 04, 2007
Hér og þar
Góða kvöldið kæru lesendur, ef einhverjir eru eftir sem skoða þessa síðu. Ég hef hér með ákveðið að reisa þessa síðu upp frá dauðum þar sem ég er svo mikið í þeim bransa þessa dagana. Það sem er að frétta er að ég er í prófum, andskotans prófum sem eru ekki mitt uppáhald. En eins oftast vill vera með blessuð prófin þá ganga þau yfir og það er gaman. Ekki meira um það!
Eins og flestir ef ekki allir með viti vita þá brann Rosenberg um daginn og það eru eintóm leiðindi. Það eina bjarta er að enn er von um að Rosenberg muni rísa, meira að segja nokkuð góð von og það er ekki síst vegna gríðarlega öflugra styrktartónleika sem voru um síðustu helgi að ógleymdum undirskriftarlistanum sem að geymir nú hátt í 800 nöfn..... Vonandi blessast þetta allt saman og ég er reyndar nokkuð viss um að það muni gera það, finn það á mér.
Annað sem er á döfinni er risastóra ferðalagið mitt til USA sem byrjar eftir hvorki meira né minna en 27 daga. Mikið svakalega hlakka ég til, enda á þetta eftir að vera snilldar ferð. Svo verður stutt stopp hér heima frá 28. júní til 2. júlí en þá tekur Hróaskelda við... Ég er enn með bandið síðan í fyrra fast á úlnliðnum á mér og ætla að safna fleirum.
Lilja var í síðasta prófinu sínu í dag sem þýðir að menntaskólaárin eru henni að baki, hún á bara eftir að setja upp hvíta kollinn en það mun gerast þann 26. maí n.k. Innilega til hamingju með það stelpa, það er ekki laust við að það votti fyrir öfund hérna meginn.
Ég hugsa að þetta sé komið gott í bili, bara svona rétt til að lífga þessa síðu aðeins við og ég er að hugsa um að snúa mér að hagfræðinni á ný....
Þar til næst: "You've got diamonds for eyes"
Eins og flestir ef ekki allir með viti vita þá brann Rosenberg um daginn og það eru eintóm leiðindi. Það eina bjarta er að enn er von um að Rosenberg muni rísa, meira að segja nokkuð góð von og það er ekki síst vegna gríðarlega öflugra styrktartónleika sem voru um síðustu helgi að ógleymdum undirskriftarlistanum sem að geymir nú hátt í 800 nöfn..... Vonandi blessast þetta allt saman og ég er reyndar nokkuð viss um að það muni gera það, finn það á mér.
Lilja var í síðasta prófinu sínu í dag sem þýðir að menntaskólaárin eru henni að baki, hún á bara eftir að setja upp hvíta kollinn en það mun gerast þann 26. maí n.k. Innilega til hamingju með það stelpa, það er ekki laust við að það votti fyrir öfund hérna meginn.
Ég hugsa að þetta sé komið gott í bili, bara svona rétt til að lífga þessa síðu aðeins við og ég er að hugsa um að snúa mér að hagfræðinni á ný....
Þar til næst: "You've got diamonds for eyes"
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)