þriðjudagur, október 31, 2006

jamm og jamm og jú

Mig langar til þess að byrja á því að óska elskulegri frænku minni, Maríu Ottesen innilega til hamingju með árin 20... Man þegar við vorum litlar og Maja átti afmæli og þá var alltaf svo stutt í mitt sem segir mér nú að það er ekki langt þangað til ég hef lifað áratugina tvo. Því verður að sjálfsögðu fagnað svakalega ásamt Lilju og Karen. Erum meira að segja farnar að skipuleggja þessi herlegheit nú þegar :) Ef ÞÚ verður heppinn þá verður þér boðið :) Þetta verður því afælisveisla grinteam hópsins sem við verðum víst að viðurkenna að við séum þrátt fyrir það að hafa svarið þess eið allar þrjár að verða aldrei hluti af bloggsamfélagi... Satt að segja er þetta ekki bloggsamfélag heldur annað félag með skýr markmið sem að verða þó ekki látin uppi hér.
En hvað um það... Nóvember á næsta leiti sem að gleður mig ekki mjög því að það er sá mánuður sem mér líkar hvað verst við. Það ljósa í tilverunni er þó að nóvember þýðir að stutt sé í jól og ég elska þau svo það er e-ð að hlakka til... Svo vona ég að snjórinn geri sig heimakominn á nýja árinu svo hægt sé að fara á bretti og þess háttar meira en síðustu ár. Áramótaheitið þetta árið verður sennilega það að verða tíðari gestur í Bláfjöllum en undanfarin ár því að þetta er svo helv... skemmtilegt þegar maður hefur það af að drífa sig á stað. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í átakinu vinsamlegast hafið samband við undirritaða.
Fín helgi að baki. Var að vinna annað kvöldið, var svo í vinnunni ekki að vinna hitt kvöldið og í gær sat ég fyrir framan skjáinn að reyna að skrifa ritgerð sem gekk svona upp og niður. Þurfti ekki að skila henni í dag, mér til mikillar gleði svo að ég hef morgundaginn til að betrumbæta hana.
Fór í afmæliskaffi í kvöld með dýrindis veitingum eins og venjan er í Austurtúni 8 á Álftanesinu. Talaði þar heillengi í símann við Evu litlu frænku mína sem er skiptinemi í Brasilíu núna og það var alveg hreint frábært hljóð í henni, mér til mikillar gleði. Fyndið að tala við hana, svona eins og að endurupplifa mína dvöl í gegnum e-n annan... Hún er að upplifa og taka á mörgu á sama hátt og ég gerði sem er bara gott þar sem að ég var náttlega algjör fyrirmyndarskiptinemi :)
En jamm og já, best að fara að halla sér... Skóli kl. 8:10 í fyrramálið eins og venjan er. Leikfimi í fyrsta tíma, sjibbí..... Reyndar e-r dansvika núna svo að það verður e-ð skrautlegt.
Ætlaði að skella hér með mynd frá árinu mínu í Þýskalandi en hún er of stór eða e-ð, það virkar allavegana ekki... En í stað þess læt ég fylgja með spilið sem ég dróg í dag á spamadur.is.

Bikardrottning

Dula umlykur konu þessa. Hún leyfir ekki hverjum sem verður á vegi hennar að kynnast sér náið. Hún er góð manneskja en dreymin oft á tíðum. Hún á það til að dreyma um eigin framtíð og annarra ómeðvitað.

Hún býr yfir styrk sem er ekki auðsjáanlegur á neinn hátt og gáfuð er hún. Konan er viðkvæm oft á tíðum og býr yfir þeim hæfileika að vera fær um að hlusta vel á undirmeðvitund sína þegar kemur að því að kynnast öðru fólki.

Hún kann að virðast skrítin en það er eingöngu misskilningur þeirra sem þekkja hana ekki og fá eflaust aldrei tækifæri á því.

Hún er skapandi, gjöful og góð alla leið.

sunnudagur, október 29, 2006

Sólardagur

Shji.... Ég er að reyna að skrifa og skrifa ritgerð sem skila á á morgun, mánudaginn 30.okt 2006 kl. 11:20 en það fæðist ekkert í hausnum á mér. Byrjaði vel og það flæddi en er núna alveg stopp... Sé fram á að þetta verði langur dagur fyrir framan skjáinn.

Þar til næst.......
"Við skiptumst á fermingarmyndum.
Svo sagði hver frá sínum syndum.
O, hvað við erum lygilega lík.
Ég segi það satt"....

laugardagur, október 28, 2006

Nóttin núna....

þar sem ég vil ekki vera eftirbátur hennar hildar(ekki að það sé slæmt, enda gæðakona þar á ferð) minnar ákvað ég heldur betur að skrifa niður nokkur orð um lífið og tilveruna.
Lífið og tilveran. ég er að læra, og læra og læra. og læra svolítið meira. kennarar skólans eru orðnir eins og mínir nánustu vinir. fyrirlestrar þeirra eru sem ljúf tónlist í eyrum mínum. þegar þeir byrja að mala segi ég eins og wagner vinur minn;
,,ég gjarnan áfram vakað hefði hér
að hafa hið lærdómsríka tal við yður.
Ég vona að ennþá spyrja margs ég megi
á morgun, fyrsta páskadegi.
Að vizkunámi sífellt ég vinn af kappi og hita
og veit nú margt, en þyrfti allt að vita."
Goethe. 1790. bls. 42
þetta eru nú þónokkrar ýkjur. lífið er fínt. ég(helga sif, fram að mánaðarmótum) var að fjárfesta í þessu forláta veggfóðri sem mun prýða herbergisvegg minn e-n tímann eftir jól. öllum er boðið í kaffi/te-boð til að skoða herlegheitin þegar að því kemur.
er svo bara búin að vera í fitness boxinu, það gengur framar vonum. að mínu mati. þjálfarinn minn er á öðru máli. hann er alltaf að skamma mig fyrir að vera ekki búin að léttast og ég veit ekki hvað. segir mér að hætta að drekka bjór og þar fram eftir götunum.....potar í magann á mér í tíma og ótíma og hnussar, hringir svo í mig þegar ég mæti ekki á æfingu og spyr hvort ég sé nokkuð að borða?? ef þetta er ekki ávísun á átröskunarsjúkdóm veit ég ekki hvað....
fór að vinna á lækjó áðan. það var indælt eins og alltaf. endaði svo á rósenberg og hitti hildi mína. það var ljóshært+greitt til hliðar+artsý hárgreiðsluþema hjá starsmönnum bergsins. vakti mikla kátínu. ég sá líka manninn sem ég plataði uppúr skónum með því að segja að hildur byggi í 104 með kærustunni sinni og að þær ættu púðluhund. (örýkjur) hann var búin að komast að sannleikanum...það er líka ljótt að plata. :) ég endaði semsagt kvöldið á að fá mér feitan/léttan hlölla.
ég ætlaði mér að skrifa miklu miklu miklu miklu meira þannig að karen nenni pottþétt ekki að lesa þetta. ef hún hefur komist alla leið hingað niður að þessari setningu vil ég benda henni á að við buðum henni ekki að vera hluti af þessari síðu nema hún drattist af stað og skrifi e-ð....




létt nostalgía

föstudagur, október 27, 2006

Dagurinn á morgun

Þriðja bloggið mitt á tveimur dögum. Met?? Ég er alveg að tapa mér í æsingnum þessa dagana, veit ekki hvað er að gerast. Ég sem alltaf er svo róleg, stillt og prúð :) Nei án gríns þá er þetta e-ð skrítið...
Er að fara að vinna í kvöld og átti að vinna á morgun líka en sökum smá mistaka þá mun ég ekki mæta til vinnu á morgun heldur ætlar hann karl faðir minn standa vaktina ásamt eðalsmanninum Hjalta og Viktori sem ég hef ekki enn kynnst og get því ekki sagt til um hvort að hann sé líka eðalsmaður eður ei.... En allavegana þá er ég nú að minnast á þetta því að það gæti allt eins verið að ég skelli mér þess í stað út á lífið á morgun (er reyndar í gríðalegum fíling í þessum skrifuðu orðum að hlusta á Rebelinn stórgóða), edrú að sjálfsögu þar sem að nýja áfengisbyndindið mitt tók formlegt gildi síðasta sunnudag og stendur þar til að jólaprófunum líkur, þ.e.a.s. til 14.des..... (shji, nú er ekki aftur snúið fyrst að ég er búin að skrifa þetta hér. Get alls ekki verið þekkt fyrir það að mér mistakið e-ð (vá hvað þetta hljómar hrokafullt:))) En já semsagt mun ég því kannski bara efna eldgamalt loforð um að koma að dansa með ekki ómerkari dansara en sjálfri Saadiu Auði Dhour... E-ð held ég að þetta eigi eftir að verða skrautleg ferð því að ég (eins og þeir sem þekkja mig vita) dansa bara hreinlega ekki. En það stendur nú allt til bóta þar sem við Lilja erum að fara á hiphop dansnámskeið í nóvember og fólk skal gæta að sér á dansstöðum borgarinnar eftir að við erum búnar á því..... Erum orðnar gríðalega spenntar!!
Nú þarf ég hins vegar að snúa mér að því að skipta um föt og laga mig aðeins til og drífa mig í matarboð og svo í vinnunna.....

Þar til næst....."Ég er rebell, ég er rebell!! Sjáðu mig dansa, sjáðu mig dansa!!".........

Dagurinn í gær

Ég er vakandi vegna þess að ég var að koma heim úr vinnunni, fyrir tæpum klukkutíma reyndar... Fabúla var að spila í kvöld og var þrusu góð fannst mér ásamt hljómsveit sinni. Allt fór vel fram eins og oftast, kannski soldið dræm mæting en ég held að hægt sé að kenna veðrinu um það.
Ég á ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan 10:30 í fyrramálið, mér til mikillar gleði. Er algjör B-manneskja (sem þýðir að mér líkar mun betur að vaka fram eftir og sofa fram eftir heldur en hitt), sérstaklega núna þegar það er orðið svona dimmt og kalt i veðri. Átti að vera með bókarkynningu á Alkemistanum í fyrsta tíma á morgun og sat því sveitt í gær og las og las (já ég er alltaf tímanlega í öllu) til að klára bókina fyrir daginn í dag. Þegar ég átti einungis 20 bls. eftir áttaði ég mig á því að það fellur niður áðurnefndur fyrsti tími á morgun svo að þetta frestast fram í næstu viku. Er ég uppgötvaði þetta leið mér nákvæmlega eins og Saadiu þegar hún var búin að taka til í herberginu sínu því að afi var að koma suður og átti að gista í því en kom svo ekki.... Semsagt hugsaði að nú væri ég búin að vera að lesa þetta allt til einskis :) En svo fattaði ég hvað það verður ljúft í næstu viku að þurfa ekki að hamast við að klára þetta þá svo að ég tók gleði mína á ný en kláraði þó reyndar ekki þessar 20 bls. (ætla að eiga þær til góða seinna) heldur skellti mér á kaffihús með Súsu. Þegar niður í bæ var komið byrjuðum við á því að fara á The Bar en þar var allt fullt svo við tókum stefnuna á The Coffeebar en þar var því miður sömu sögu að segja, ekki einn einasti stóll laus. Við ákváðum því að kíkja á Vegmót en eftir vandræðalega uppákomu í stiganum ákváðum við að dveljast ekki lengur við og drífa okkur annað (það var líka næstum fullt þar) og vissum ekki okkar rjúkandi ráð því að okkur datt ekki neinn annar staður í hug (ég nennti ekki á Rósen og á Kofanum endar maður uppi sem hangikjöt). Við gengum niður laugarveginn og nú voru góð ráð dýr því í hugum okkar var ekkert eftir nema Sólon og ekki ætluðum við nú að láta sjá okkur þar... Loksins kom svo ljósið og upp í huga S. kom mynd af Prikinu. Ég var viss um að þar væri allt troðið miðað við fyrri reynslu okkar þetta kvöld en viti menn þar voru hreinlega heil 3 borð laus... (Hvað er samt málið að það sé hvergi sæti að fá á miðvikudegi... Eru skemmtanaglaðir íslendingar nú alveg búnir að missa sig??) Við sátum þar svo í dágóða stund og fengum líka þennan fína félagsskap þannig að kvöldið sem ég var búin að sjá fyrir mér að færi í eintóman lestur varð bara hið fínasta.
En talandi um lesturinn. Ég byrjaði að lesa þessa bók einungis sjálfri mér til gagns og gaman en svo þegar velja átti bók til að halda kynningu á fannst mér í meira lagi sniðugt að hafa þessu einu og sömu bók í því. Ræddi það við Magðalenu, verkefnis- og sætisfélaga minn og hún sættist á að lesa Alkemistann. Þegar þetta var, var ég búin að lesa dágóðan slatta af bókinni því að mér fannst hún skemmtileg og langaði til þess. En eftir að það varð að skyldu minni að lesa þetta en ekki bara af áhuganum einum var eins og e-ð gerðist og í nokkrar vikur var ég stödd á sömu bls. þrátt fyrir nokkrar tilraunir til að halda áfram. Hvers vegna, já útaf því að nú þurfti ég að lesa þetta og þegar maður þarf að gera e-ð þá er það ekki lengur gaman... Eða er það??
Shij, ég er virkilega búin að skrifa allt þetta um ekki neitt.... Er að hugsa um að fara að halla mér áður en ég finn uppá e-u öðru jafn áhugaverðu til að skrifa um :)

Góða nótt og þar til næst...."Under the pink sky, allt things have changed now"

fimmtudagur, október 26, 2006

Dagurinn í dag

Ekki gráta af því að því er lokið, brostu af því að það gerðist.......

fimmtudagur, október 19, 2006

Frábær morgun

Morguninn í morgun var frábær. Ég vaknaði og hélt ég myndi deyja úr kulda, drattaðist samt fram á bað og fór í sturtu með bláu og hvítu baðhettuna mína. Hún er ofboðslega smart. Svo eftir sturtu og fyrir morgunmat grætti ég systur mína. En trúið mér, she had it coming! (nenni ekki að fara útí þá sálma) fékk svo samviskubit ca 235 sek seinna og sendi henni sms....Ég get aldrei haldið neitt svona út...
Það er að koma helgi takk fyrir takk. Líkt og svo oft áður ætla ég að gera mér glaðan dag. Þórfríður ætlar að leggja leið sína í höfuðborgina og við Hildur Mist höfum ákveðið að guida hana í tætlur!! Það verður ekki til sú leynileið, húsasund né mönsj sem hún ekki þekkir eftir þetta! og Hana nú!


Kæja Pæja er víst orðin meðlimur í þessu bloggi. Vonandi að hún geti rifið þetta upp til fyrri virðingar þar sem við stallsysturnar vorum orðnar ansi latar við skriftirnar.
Af því tilefni ákvað ég að láta hér fylgja nokkar gagnlega upplýsingar um hana Karen okkar;

Karen og co.
Karen og fjölskylda
Karen dót
Karen úthverfi

ég sjálf

í húsi eymdarinn er ekkert sem ég get gert mér til
tjahh hugaró -ar
ef bara aðeins einungis í eitt skipti að ég gæti fengið
meðaumkun
vonarneista
lífsvelunnun
ef ég hefði flökktandi jón í kvenkyni
þá væri einsemdin ekki svona


Karen Rúnarsdóttir
1987-

Hér er svo mynd af stelpunni


Vona að þetta veiti ykkur smá innsýn í heim Karenar sem er hvorki lítill né venjulegur.

Ég bið þig velkomna Karen, Heil þér!


mánudagur, október 16, 2006

Hey there

Hæ, langaði bara að henda nokkrum línum hérna inn... M.a. til að bjóða frk. Karen Rúnarsdóttur velkomna í hópinn. Eins og þið sjáið erum við líka búnar að breyta slóðinni á bloggið okkar...www.grinteam.blogspot.com
Vonandi að þessi síða verði virkari núna þar sem við erum orðnar þrjár. Annars er allt í svipuðum skorðum hjá okkur. Bara skóli og vinna samt aðalega.... Ætlum sennileg að skella okkur á Airwaives á laug. ef það er enn hægt að fá miða, verður vonandi fjör. Mamma og Friðrik eru að fara til Barcelona á fimmt. svo að ég verð einstæð móðir í nokkra daga, líklegt að Lilja flytji samt inn til mín á meðan. Er líka í vetrarfríi föst og mán sem er bara nokkuð gott, og svo einungis 6 skólavikur fram að prófum eftir það... Shji, hvað þetta er fljótt að líða... Verð orðin stúdent áður en ég veit af og hvað þá??

Bið að heilsa í bili

þriðjudagur, október 10, 2006

jajája

Það er nú heldur betur búið að vera mikið um dýrðir hér á þessari blessuðu vefdagbók....ha??' ekki satt!! jújú frábært alveg hreint. ég ætla ekki að blogg neitt núna, er í smá pásu frá að skrifa dönskuritgerð....jei!! er í vetrarfrí sem klárast á morgun og ég er á lokasprettinum að klára heimalærdóminn núna...á samt ennþá eftir að klára 2 bækur og byrja á þriðju..damn...Þessi skóli sko!! Hlakka alltof mikið til að útskrifast !! Toffa Chula kom í bæjarferð á laugardaginn. það var stuð. Við erum á fullu að plana Rep.Dominicana Maí 2007 !! Ætlum að fara beint eftir vorprófin og vera fram að útskrift!! CHULO!!!
Hildur er alltaf jafnfersk, alltaf að vinna og ég veit ekki hvað. Hún kíkti nú uppí sveit umhelgina samt sem áður...hress að vanda:)

skelli hér inn myndum af dýrunum tveim:

Freyja er líka hér á ferð, hress að vanda....
















En já, ég er farin að skrifa um sadistakennara og samkynhneigða dómara svo....vi ses, uden stress