sunnudagur, desember 10, 2006

Profaljota? Eg held ekki!!




Hér er frábært dæmi um prófaljótuna sem virðist herja á alltof marga samnemendur okkar menntskælinganna. Prófaljóta er fyrirbæri sem er alltof merkilegt fyrirbæri að mínar annars miklu gáfur fá með góðu móti skilið hvað fær annars gullfallega og aðlaðandi einstaklinga til að klæðast náttbuxum og öðrum náttfatnaði og byrgja sig upp af kaffi á hitabrúsa og þramma um götur og stræti og beinlínis hrópa ; red,,ÉG ER Í PRÓFUM!! ER ÞAÐ EKKI ÖRUGGLEGA Á HREINU? ÉG ER Í PRÓFUM! VORKENNIÐ MÉR!!!!!"
Það er venja og siður að námsmenn fara í próf í desember og maí. Flestir sem búa ekki neðanjarðar og lifa á rjúpnaeggjum og mysu vita þetta jafnvel og að mánudagur kemur á eftir sunnudegi! Eeeeeen, nei þessir illa höldnu "námsmenn" verða að slengja þessu framan í hinn almenna borgara. Eins og að brjálæðisfylleríið sem fylgir prófalokum sé ekki nógu góð vísbending. Nei, það er þeim lífsnauðsynlegt að básúna þessari staðreynd eins og fagnaðarerindinu á öldum áður. Þessi tegund námsmanna er í krossferð. Gegn þeim sem nú þegar hafa útskrifast úr skóla og eru orðnir fullgildir meðlimir vinnumarkaðarins. Ég ætla ekki að banna fólki að tala um prófin sín, það er nú daglegt umræðuefni á meðal skólafólks. Ég ræði mín próf við mína nánustu og sé ekkert að því að fólk geri slíkt hið sama. En ég dreg línuna við fatabreytingu, niðurdregið og illa sofið augnaráð sem þreytist(þótt ótrúlegt sé) ekki á því að beina sjónum vegfarenda á hversu erfitt og melankolískt líf hins langþreytta námsmanns er. Því að þetta fólk lætur sér ekki nægja að mæta í einkennisbúningi þreytu og 243 kaffibolla, nei það þarf líka að röfla og væla um herlegeheitin!! Það hafa allir e-n tímann verið í skóla og vita ósköp vel hvernig þetta ferli gengur fyrir sig. Maður situr í tímum, lærir, glósar, lærir undir próf og búið. Prófatíminn á ekki að vera þessi kvöl og pína sem svo margir telja sér trú um. Prófatíminn á að vera tími rólegheita. Ég og stallsystir mín erum búnar að vera í góðu tjilli(afsakið slettuna) og gefa okkur tíma til að rölta um í Kolaportinu, spila Krossorðaspil(ég vann) og tala um strákamál. Svoleiðis á það líka að vera. Ekkert stress, Bara rólegheit. Og svo rómó út að borða í enda vikunnar.

post script. Engin ljót föt né illa þvegið hár hafa hrjáð okkur og komust við samt í gegnum prófin.....

föstudagur, desember 01, 2006

Ég er með ofnæmi fyrir stærðfræði og prófum líka!

föstudagur, nóvember 24, 2006

Minn tími er kominn!


nú er ég loksins sest niður við tölvuna að gera eitthvað annað en að læra!!! Búin með Ljóðaritgerðina (með sterkum greini) í ÍSL-503. Þetta helvíti er búið að hanga yfir manni síðan maður var busi. Alltaf verið að hræða mann með þessu!! en loksins eftir kvíðaköst og hvaðeina er ég búin með þetta og það verður ekki aftur snúið.

Akkúrat nuna sit ég í hlýjunni heima eftir frábært kvöld!! hildur Mist og moi, menningarvitarnir sjálfir skelltum okkur í leikhús og hvorki meira né minna en tvenna tónleika! Fórum í Iðnó að sjá Bezt í heimi. Mæli eindregið með henni. Hef sjaldan hlegið jafnmikið í leikhúsi!! SchnillD! svo kiktum við a Nettettinn a það sem eg held að hafi verið fyrstu tonleikar þeirra..svo kiktum við a kultura þar sem pete var með siðasta giggið sitt þangað til hann heldur aftur til astraliu. svaka kosy, og ekki spillti svavar fyrir með sitt alkunna grin og uppistand.
það er laufabrauð a laugardag, hlakka til , eg er komin i svo mikin jolafiling eitthvað þessa dagana...held það se snjorinn....vona að við faum hvit jol!!

miðvikudagur, nóvember 22, 2006

Á minni plánetu er hefnd ekki í hávegum höfð... En við erum ekki þar, er það??


Mig langar að byrja á því að segja Karen úr þessu bloggsamfélagi þar sem hún hefur ekki skrifað eina einustu færslu eftir jómfrúarfærsluna.... Annars er ég að hugsa um að segja mig sjálfa úr þessu líka þar sem að ég nenni þessu eiginlega ekki....
En allavegana ætla ég nú að klára þessa færslu fyrst að ég er byrjuð á henni. Það er ekkert nýtt í gangi... Ég og Lilja erum reyndar að fara í leikhús á morgun að sjá "Ísland best í heimi" og búumst við hinni bestu skemmtun... Eftir það verður stefnan tekin á eina af tvennum tónleikum sem eru í gangi. Í dag er ég búin að vera í einn mánuð í áfengisbindindinu góða, það er afrek og þar af leiðandi hef ég unnið frekar mikið í þessum mánuði og hlakka til að fá þykkt umslag um mánaðarmótin...:)
Fimm skóladagar eftir og svo byrja prófin, það er gaman... Svo koma bráðum blessuð jólin :) Börnin fara eða eru mörg hver farin að hlakka til, að minnsta kosti ég. Svo er margt annað að fara að gerast sem ég ætla þó að láta ógetið um sinn. Fórum í tíma 2 á hiphop námskeiðinu í gær og aldeilis farið að færast fjör í leikinn, sumir svitnuðu mikið, aðrir ekki :) Lilja mín, sagt er að maður svitni meira ef maður er í góðu formi... haha
Nenni ekki að skrifa meira útaf ég er að fara að gera e-ð uppbyggilegt eins og t.d. að horfa á tv, sem ég geri þó næstum aldrei...

þar til næst (lofa engu um hvenær eða hvort það verður)...

Þegar allt um þrýtur
vertu glóð sem vekur eld hjá mér.
Uns þá yfir lýkur
áttu mig ef eitthvað út af ber.


Kv, Hildur Mist Ottesen Axfjörð Friðjónsdóttir

fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Undanfarið....

...hef ég þjáðst af bloggastíflu og þjáist enn. Ætla þó að reyna að skrifa e-ð smávegis hérna inná. Ég ligg undir sæng sem er alveg gríðarlega notalegt fyrir utan það að mér er kalt á upphandleggjunum þar sem að þeir þurfa að koma undan sænginni til að ná hendurnar nái á lyklaborðið. Það er svo drullukalt úti og rok og ég veit ekki hvað og hvað. Algjörlega ömurlegt veður og ekki til að bæta geðið hjá manni.. Það er nóvember sem ég btw hata og svo svona skítaveður líka, dimmt og kalt... Ógeð hreint út sagt, skil ekki hvernig okkur dettur í hug að vera að hanga hérna á klakanum á vetrarmánuðunum... Ég ætla að flytja í sólina fljótt, mjög fljótt....
En burtséð frá þessum leiðindum er flest alveg í góðum gír. Tvær vikur eftir af skólanum og síðan bara próf. Það er alveg svona frekar hressandi get ég sagt ykkur. Jólin koma svo og þá er gaman :) Systir mín hún Helga Sif kemur líka heim 18.des og þá verður enn meira gaman, en mest gaman er að hún verður hér á klakanum fram yfir afmælið mitt sem er í enda mars... veivei! Svo kemur nýtt ár og þá er líka gaman, þá getur maður gert allt sem maður ekki náði að gera á þessu sem er að líða og gert betur það sem maður gerði ekki nógu vel. Þá kemur líka vonandi snjórinn sem þýðir það að maður getur farið að vera tíður gestur í Bláfjöllum og það er gaman. Svo á ég afmæli fljótt eftir að nýja árið byrjar, þá verður veisla sem er gaman. Síðan koma páskarnir sem er líka gaman og lesturinn fyrir vorpróf hefst. Svo klárast þau og maður kemst í sumarfrí sem er það besta af öllu sem ég er búin að telja upp. Þá líka stuttu seinna, í byrjun júní mun ég fljúga mér til USA og eyða dágóðum tíma þar... kannski heilum mánuði en svo kem ég heim og fer til Danmerkur á Hróaskeldu :) Svo kem ég heim og þá fer ég sennilega ekkert meira það sumarið, verð bara að vinna á fullu, kannski á Rósenberg... það kemur í ljós. Niðurstaða þessa bloggs er því sú að sumrin eru best, lang best... Enda var síðasta sumar skemmtilegasti tími sem ég man eftir og stefnan er sett á að næsta verði enn betra. Nenni nefnilega ekki að vera stuck í því að hugsa um hvað ´06 var mikil snilld og vil toppa það sem fyrst til að lifa ekki í glans fortíðarinnar. Það er ekki gott fyrir mann! Væri samt til í að lifa það allt aftur, hefði þá gert ýmislegt öðruvísi...
En allavegana þá er ég hætt í bili, þar til næst....

"Lífsins söguþráð
við spinnum aldrei einsömul.
Öll við erum háð
þeim öflum sem við fáum ekki ráðið við..."

miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Hver er konan?

Hér vil ég rita nokkur orð um unga stúlku sem ég þekki. Stúlkan er með afbrigðum fögur, kvenkostur mikill og drengur góður.
Hún er afar fyndin(þótt að þar séu ekki allir sammála um það), hlær dátt þegar henni finnst e-ð spaugilegt og tekur lífinu létt. Hún stendur á sínu, er traust og trú og lætur sko ekki einn né neinn segja sér fyrir verkum. Hvorki samþegna, foreldra, yfirboðara né guð. Hún er fáránlega gáfuð þrátt fyrir að finnast hún stundum koma utan af landi þegar hún er í samfloti við ákveðna aðila...Hún er ósérhlífin(hún kenndi mér þetta orð), gjafmild, frek, blíð, æst, dugleg, kúrin, ljúf og einstök.
Hún er konan sem kyndir ofninn minn.
Hún er fjallkonan.
Hún er fögur og flott.
Hún er fagra litla diskódís.
Hún er dararararararrammmmrararraaaaaammmmmmm

þriðjudagur, október 31, 2006

jamm og jamm og jú

Mig langar til þess að byrja á því að óska elskulegri frænku minni, Maríu Ottesen innilega til hamingju með árin 20... Man þegar við vorum litlar og Maja átti afmæli og þá var alltaf svo stutt í mitt sem segir mér nú að það er ekki langt þangað til ég hef lifað áratugina tvo. Því verður að sjálfsögðu fagnað svakalega ásamt Lilju og Karen. Erum meira að segja farnar að skipuleggja þessi herlegheit nú þegar :) Ef ÞÚ verður heppinn þá verður þér boðið :) Þetta verður því afælisveisla grinteam hópsins sem við verðum víst að viðurkenna að við séum þrátt fyrir það að hafa svarið þess eið allar þrjár að verða aldrei hluti af bloggsamfélagi... Satt að segja er þetta ekki bloggsamfélag heldur annað félag með skýr markmið sem að verða þó ekki látin uppi hér.
En hvað um það... Nóvember á næsta leiti sem að gleður mig ekki mjög því að það er sá mánuður sem mér líkar hvað verst við. Það ljósa í tilverunni er þó að nóvember þýðir að stutt sé í jól og ég elska þau svo það er e-ð að hlakka til... Svo vona ég að snjórinn geri sig heimakominn á nýja árinu svo hægt sé að fara á bretti og þess háttar meira en síðustu ár. Áramótaheitið þetta árið verður sennilega það að verða tíðari gestur í Bláfjöllum en undanfarin ár því að þetta er svo helv... skemmtilegt þegar maður hefur það af að drífa sig á stað. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í átakinu vinsamlegast hafið samband við undirritaða.
Fín helgi að baki. Var að vinna annað kvöldið, var svo í vinnunni ekki að vinna hitt kvöldið og í gær sat ég fyrir framan skjáinn að reyna að skrifa ritgerð sem gekk svona upp og niður. Þurfti ekki að skila henni í dag, mér til mikillar gleði svo að ég hef morgundaginn til að betrumbæta hana.
Fór í afmæliskaffi í kvöld með dýrindis veitingum eins og venjan er í Austurtúni 8 á Álftanesinu. Talaði þar heillengi í símann við Evu litlu frænku mína sem er skiptinemi í Brasilíu núna og það var alveg hreint frábært hljóð í henni, mér til mikillar gleði. Fyndið að tala við hana, svona eins og að endurupplifa mína dvöl í gegnum e-n annan... Hún er að upplifa og taka á mörgu á sama hátt og ég gerði sem er bara gott þar sem að ég var náttlega algjör fyrirmyndarskiptinemi :)
En jamm og já, best að fara að halla sér... Skóli kl. 8:10 í fyrramálið eins og venjan er. Leikfimi í fyrsta tíma, sjibbí..... Reyndar e-r dansvika núna svo að það verður e-ð skrautlegt.
Ætlaði að skella hér með mynd frá árinu mínu í Þýskalandi en hún er of stór eða e-ð, það virkar allavegana ekki... En í stað þess læt ég fylgja með spilið sem ég dróg í dag á spamadur.is.

Bikardrottning

Dula umlykur konu þessa. Hún leyfir ekki hverjum sem verður á vegi hennar að kynnast sér náið. Hún er góð manneskja en dreymin oft á tíðum. Hún á það til að dreyma um eigin framtíð og annarra ómeðvitað.

Hún býr yfir styrk sem er ekki auðsjáanlegur á neinn hátt og gáfuð er hún. Konan er viðkvæm oft á tíðum og býr yfir þeim hæfileika að vera fær um að hlusta vel á undirmeðvitund sína þegar kemur að því að kynnast öðru fólki.

Hún kann að virðast skrítin en það er eingöngu misskilningur þeirra sem þekkja hana ekki og fá eflaust aldrei tækifæri á því.

Hún er skapandi, gjöful og góð alla leið.

sunnudagur, október 29, 2006

Sólardagur

Shji.... Ég er að reyna að skrifa og skrifa ritgerð sem skila á á morgun, mánudaginn 30.okt 2006 kl. 11:20 en það fæðist ekkert í hausnum á mér. Byrjaði vel og það flæddi en er núna alveg stopp... Sé fram á að þetta verði langur dagur fyrir framan skjáinn.

Þar til næst.......
"Við skiptumst á fermingarmyndum.
Svo sagði hver frá sínum syndum.
O, hvað við erum lygilega lík.
Ég segi það satt"....

laugardagur, október 28, 2006

Nóttin núna....

þar sem ég vil ekki vera eftirbátur hennar hildar(ekki að það sé slæmt, enda gæðakona þar á ferð) minnar ákvað ég heldur betur að skrifa niður nokkur orð um lífið og tilveruna.
Lífið og tilveran. ég er að læra, og læra og læra. og læra svolítið meira. kennarar skólans eru orðnir eins og mínir nánustu vinir. fyrirlestrar þeirra eru sem ljúf tónlist í eyrum mínum. þegar þeir byrja að mala segi ég eins og wagner vinur minn;
,,ég gjarnan áfram vakað hefði hér
að hafa hið lærdómsríka tal við yður.
Ég vona að ennþá spyrja margs ég megi
á morgun, fyrsta páskadegi.
Að vizkunámi sífellt ég vinn af kappi og hita
og veit nú margt, en þyrfti allt að vita."
Goethe. 1790. bls. 42
þetta eru nú þónokkrar ýkjur. lífið er fínt. ég(helga sif, fram að mánaðarmótum) var að fjárfesta í þessu forláta veggfóðri sem mun prýða herbergisvegg minn e-n tímann eftir jól. öllum er boðið í kaffi/te-boð til að skoða herlegheitin þegar að því kemur.
er svo bara búin að vera í fitness boxinu, það gengur framar vonum. að mínu mati. þjálfarinn minn er á öðru máli. hann er alltaf að skamma mig fyrir að vera ekki búin að léttast og ég veit ekki hvað. segir mér að hætta að drekka bjór og þar fram eftir götunum.....potar í magann á mér í tíma og ótíma og hnussar, hringir svo í mig þegar ég mæti ekki á æfingu og spyr hvort ég sé nokkuð að borða?? ef þetta er ekki ávísun á átröskunarsjúkdóm veit ég ekki hvað....
fór að vinna á lækjó áðan. það var indælt eins og alltaf. endaði svo á rósenberg og hitti hildi mína. það var ljóshært+greitt til hliðar+artsý hárgreiðsluþema hjá starsmönnum bergsins. vakti mikla kátínu. ég sá líka manninn sem ég plataði uppúr skónum með því að segja að hildur byggi í 104 með kærustunni sinni og að þær ættu púðluhund. (örýkjur) hann var búin að komast að sannleikanum...það er líka ljótt að plata. :) ég endaði semsagt kvöldið á að fá mér feitan/léttan hlölla.
ég ætlaði mér að skrifa miklu miklu miklu miklu meira þannig að karen nenni pottþétt ekki að lesa þetta. ef hún hefur komist alla leið hingað niður að þessari setningu vil ég benda henni á að við buðum henni ekki að vera hluti af þessari síðu nema hún drattist af stað og skrifi e-ð....




létt nostalgía

föstudagur, október 27, 2006

Dagurinn á morgun

Þriðja bloggið mitt á tveimur dögum. Met?? Ég er alveg að tapa mér í æsingnum þessa dagana, veit ekki hvað er að gerast. Ég sem alltaf er svo róleg, stillt og prúð :) Nei án gríns þá er þetta e-ð skrítið...
Er að fara að vinna í kvöld og átti að vinna á morgun líka en sökum smá mistaka þá mun ég ekki mæta til vinnu á morgun heldur ætlar hann karl faðir minn standa vaktina ásamt eðalsmanninum Hjalta og Viktori sem ég hef ekki enn kynnst og get því ekki sagt til um hvort að hann sé líka eðalsmaður eður ei.... En allavegana þá er ég nú að minnast á þetta því að það gæti allt eins verið að ég skelli mér þess í stað út á lífið á morgun (er reyndar í gríðalegum fíling í þessum skrifuðu orðum að hlusta á Rebelinn stórgóða), edrú að sjálfsögu þar sem að nýja áfengisbyndindið mitt tók formlegt gildi síðasta sunnudag og stendur þar til að jólaprófunum líkur, þ.e.a.s. til 14.des..... (shji, nú er ekki aftur snúið fyrst að ég er búin að skrifa þetta hér. Get alls ekki verið þekkt fyrir það að mér mistakið e-ð (vá hvað þetta hljómar hrokafullt:))) En já semsagt mun ég því kannski bara efna eldgamalt loforð um að koma að dansa með ekki ómerkari dansara en sjálfri Saadiu Auði Dhour... E-ð held ég að þetta eigi eftir að verða skrautleg ferð því að ég (eins og þeir sem þekkja mig vita) dansa bara hreinlega ekki. En það stendur nú allt til bóta þar sem við Lilja erum að fara á hiphop dansnámskeið í nóvember og fólk skal gæta að sér á dansstöðum borgarinnar eftir að við erum búnar á því..... Erum orðnar gríðalega spenntar!!
Nú þarf ég hins vegar að snúa mér að því að skipta um föt og laga mig aðeins til og drífa mig í matarboð og svo í vinnunna.....

Þar til næst....."Ég er rebell, ég er rebell!! Sjáðu mig dansa, sjáðu mig dansa!!".........

Dagurinn í gær

Ég er vakandi vegna þess að ég var að koma heim úr vinnunni, fyrir tæpum klukkutíma reyndar... Fabúla var að spila í kvöld og var þrusu góð fannst mér ásamt hljómsveit sinni. Allt fór vel fram eins og oftast, kannski soldið dræm mæting en ég held að hægt sé að kenna veðrinu um það.
Ég á ekki að mæta í skólann fyrr en klukkan 10:30 í fyrramálið, mér til mikillar gleði. Er algjör B-manneskja (sem þýðir að mér líkar mun betur að vaka fram eftir og sofa fram eftir heldur en hitt), sérstaklega núna þegar það er orðið svona dimmt og kalt i veðri. Átti að vera með bókarkynningu á Alkemistanum í fyrsta tíma á morgun og sat því sveitt í gær og las og las (já ég er alltaf tímanlega í öllu) til að klára bókina fyrir daginn í dag. Þegar ég átti einungis 20 bls. eftir áttaði ég mig á því að það fellur niður áðurnefndur fyrsti tími á morgun svo að þetta frestast fram í næstu viku. Er ég uppgötvaði þetta leið mér nákvæmlega eins og Saadiu þegar hún var búin að taka til í herberginu sínu því að afi var að koma suður og átti að gista í því en kom svo ekki.... Semsagt hugsaði að nú væri ég búin að vera að lesa þetta allt til einskis :) En svo fattaði ég hvað það verður ljúft í næstu viku að þurfa ekki að hamast við að klára þetta þá svo að ég tók gleði mína á ný en kláraði þó reyndar ekki þessar 20 bls. (ætla að eiga þær til góða seinna) heldur skellti mér á kaffihús með Súsu. Þegar niður í bæ var komið byrjuðum við á því að fara á The Bar en þar var allt fullt svo við tókum stefnuna á The Coffeebar en þar var því miður sömu sögu að segja, ekki einn einasti stóll laus. Við ákváðum því að kíkja á Vegmót en eftir vandræðalega uppákomu í stiganum ákváðum við að dveljast ekki lengur við og drífa okkur annað (það var líka næstum fullt þar) og vissum ekki okkar rjúkandi ráð því að okkur datt ekki neinn annar staður í hug (ég nennti ekki á Rósen og á Kofanum endar maður uppi sem hangikjöt). Við gengum niður laugarveginn og nú voru góð ráð dýr því í hugum okkar var ekkert eftir nema Sólon og ekki ætluðum við nú að láta sjá okkur þar... Loksins kom svo ljósið og upp í huga S. kom mynd af Prikinu. Ég var viss um að þar væri allt troðið miðað við fyrri reynslu okkar þetta kvöld en viti menn þar voru hreinlega heil 3 borð laus... (Hvað er samt málið að það sé hvergi sæti að fá á miðvikudegi... Eru skemmtanaglaðir íslendingar nú alveg búnir að missa sig??) Við sátum þar svo í dágóða stund og fengum líka þennan fína félagsskap þannig að kvöldið sem ég var búin að sjá fyrir mér að færi í eintóman lestur varð bara hið fínasta.
En talandi um lesturinn. Ég byrjaði að lesa þessa bók einungis sjálfri mér til gagns og gaman en svo þegar velja átti bók til að halda kynningu á fannst mér í meira lagi sniðugt að hafa þessu einu og sömu bók í því. Ræddi það við Magðalenu, verkefnis- og sætisfélaga minn og hún sættist á að lesa Alkemistann. Þegar þetta var, var ég búin að lesa dágóðan slatta af bókinni því að mér fannst hún skemmtileg og langaði til þess. En eftir að það varð að skyldu minni að lesa þetta en ekki bara af áhuganum einum var eins og e-ð gerðist og í nokkrar vikur var ég stödd á sömu bls. þrátt fyrir nokkrar tilraunir til að halda áfram. Hvers vegna, já útaf því að nú þurfti ég að lesa þetta og þegar maður þarf að gera e-ð þá er það ekki lengur gaman... Eða er það??
Shij, ég er virkilega búin að skrifa allt þetta um ekki neitt.... Er að hugsa um að fara að halla mér áður en ég finn uppá e-u öðru jafn áhugaverðu til að skrifa um :)

Góða nótt og þar til næst...."Under the pink sky, allt things have changed now"

fimmtudagur, október 26, 2006

Dagurinn í dag

Ekki gráta af því að því er lokið, brostu af því að það gerðist.......

fimmtudagur, október 19, 2006

Frábær morgun

Morguninn í morgun var frábær. Ég vaknaði og hélt ég myndi deyja úr kulda, drattaðist samt fram á bað og fór í sturtu með bláu og hvítu baðhettuna mína. Hún er ofboðslega smart. Svo eftir sturtu og fyrir morgunmat grætti ég systur mína. En trúið mér, she had it coming! (nenni ekki að fara útí þá sálma) fékk svo samviskubit ca 235 sek seinna og sendi henni sms....Ég get aldrei haldið neitt svona út...
Það er að koma helgi takk fyrir takk. Líkt og svo oft áður ætla ég að gera mér glaðan dag. Þórfríður ætlar að leggja leið sína í höfuðborgina og við Hildur Mist höfum ákveðið að guida hana í tætlur!! Það verður ekki til sú leynileið, húsasund né mönsj sem hún ekki þekkir eftir þetta! og Hana nú!


Kæja Pæja er víst orðin meðlimur í þessu bloggi. Vonandi að hún geti rifið þetta upp til fyrri virðingar þar sem við stallsysturnar vorum orðnar ansi latar við skriftirnar.
Af því tilefni ákvað ég að láta hér fylgja nokkar gagnlega upplýsingar um hana Karen okkar;

Karen og co.
Karen og fjölskylda
Karen dót
Karen úthverfi

ég sjálf

í húsi eymdarinn er ekkert sem ég get gert mér til
tjahh hugaró -ar
ef bara aðeins einungis í eitt skipti að ég gæti fengið
meðaumkun
vonarneista
lífsvelunnun
ef ég hefði flökktandi jón í kvenkyni
þá væri einsemdin ekki svona


Karen Rúnarsdóttir
1987-

Hér er svo mynd af stelpunni


Vona að þetta veiti ykkur smá innsýn í heim Karenar sem er hvorki lítill né venjulegur.

Ég bið þig velkomna Karen, Heil þér!


mánudagur, október 16, 2006

Hey there

Hæ, langaði bara að henda nokkrum línum hérna inn... M.a. til að bjóða frk. Karen Rúnarsdóttur velkomna í hópinn. Eins og þið sjáið erum við líka búnar að breyta slóðinni á bloggið okkar...www.grinteam.blogspot.com
Vonandi að þessi síða verði virkari núna þar sem við erum orðnar þrjár. Annars er allt í svipuðum skorðum hjá okkur. Bara skóli og vinna samt aðalega.... Ætlum sennileg að skella okkur á Airwaives á laug. ef það er enn hægt að fá miða, verður vonandi fjör. Mamma og Friðrik eru að fara til Barcelona á fimmt. svo að ég verð einstæð móðir í nokkra daga, líklegt að Lilja flytji samt inn til mín á meðan. Er líka í vetrarfríi föst og mán sem er bara nokkuð gott, og svo einungis 6 skólavikur fram að prófum eftir það... Shji, hvað þetta er fljótt að líða... Verð orðin stúdent áður en ég veit af og hvað þá??

Bið að heilsa í bili

þriðjudagur, október 10, 2006

jajája

Það er nú heldur betur búið að vera mikið um dýrðir hér á þessari blessuðu vefdagbók....ha??' ekki satt!! jújú frábært alveg hreint. ég ætla ekki að blogg neitt núna, er í smá pásu frá að skrifa dönskuritgerð....jei!! er í vetrarfrí sem klárast á morgun og ég er á lokasprettinum að klára heimalærdóminn núna...á samt ennþá eftir að klára 2 bækur og byrja á þriðju..damn...Þessi skóli sko!! Hlakka alltof mikið til að útskrifast !! Toffa Chula kom í bæjarferð á laugardaginn. það var stuð. Við erum á fullu að plana Rep.Dominicana Maí 2007 !! Ætlum að fara beint eftir vorprófin og vera fram að útskrift!! CHULO!!!
Hildur er alltaf jafnfersk, alltaf að vinna og ég veit ekki hvað. Hún kíkti nú uppí sveit umhelgina samt sem áður...hress að vanda:)

skelli hér inn myndum af dýrunum tveim:

Freyja er líka hér á ferð, hress að vanda....
















En já, ég er farin að skrifa um sadistakennara og samkynhneigða dómara svo....vi ses, uden stress

þriðjudagur, ágúst 29, 2006

Step into my office baby...

Nú er ég loksins sest niður fyrir framan skjáinn að rita nokkrar línur um undanfarna daga og það sem hefur gerst í lífi mínu síðan síðast.

1. SKólinn er byrjaður með stóru S-i. Það er nóg að lesa og ég auglýsi eftir aðila sem er námsfús og sæi sér fært að lesa á móti mér allt námsefnið, svona 50-50. Greiðsla verður rædd undir 4 augu...
2. Fjölskyldan kemur loksins heim á miðvikudag eftir 2 vikna dvöl í Alicante að safna brúnku. Ég hlakka mikið til. Ekkert jafnleiðinlegt og að vera ein heima í svona langan tíma. Sérstaklega þegar maður fær ekkert alltof hressa miða(frá nágrannanum) á útidyrahurðina sem fjallar um hversu lélega söngrödd ég og vinir mínir hafi....Eins og Singastar var góð hugmynd á þessum tíma.!!
3. Ég og Freyja erum byrjaðar að æfa Fitness box. Þetta er held ég skemmtilegasta líkamsrækt sem ég hef stundað(f.utan danstíma í Body Shop í Rep.Dom, þegar við dönsuðum Reggaeton!)Fór á fyrstu æfinguna ein og það leið næstum yfir mig. grínlaust. Ég þurfti að setjast niður og setja hausinn á milli hnjánna og læti!! Hef ekki hreyft mig í svo alltof langan tíma!! Fór svo í vigtun og fitumælingu(niðurstöðurnar eru leyndó!). Oscar(kúbverji)þjálfari tilkynnti mér svo pollrólegur að ég ætti að gjöra svo vel og missa 5kg á 6 vikum. Ég hlakka mikið til að sjá hvort það gangi eftir....Ég bíð ennþá spennt eftir því að sykurpúðinn minn mæti líka með okkur!!:)
4. Síðasta helgi var sérstaklega skemmtileg. Fórum í partý, ég hef ekki farið í partý í ár og aldir. Það var stuð.
5. Ég mun halda áfram að vinna í ellismellaparadís í vetur. Það er alltaf jafn yndislegt þar. Maður fær hárgreiðslu og knús sem er nú ekki hægt hvar sem er... :)
6. Freyja á afmæli um næstu helgi. Ég hlakka mikið til. Hún má búast við því að fá hamingjuknús og með því!

Fastir liðir eins og venjulega!
Rósenberg: Hildur fær himinhátt þjórfé og vekur það upp spurningar um hvort það sé selt e-ð meira en áfengi "bak við borðið" á Berginu....?? Málið er í rannsókn.
Heimskupör Lilju: Er að vinna í PowerPoint sem verður til sýnis fyrir útvalda eftir 4 daga.
Atburður vikunnar:Það átti að henda Hildi útaf 11-unni fyrir að hvíla augun.

föstudagur, ágúst 25, 2006

Í skólanum, í skólanum.....

Lilja, núna er ég búin að skrifa 6 pósta af síðustu 8 og hvað segir það þér??
Er semsé byrjuð í skólanum, endalaust fjör :) Nei án gríns þá er fínt að vera komin í svona smá rútinu, vakna snemma og nýta daginn. Ekki eins og sumarið er búið að vera latt og þægilegt hjá mér... Hlakka samt til sumarsins 2007 ef það verður jafn skemmtilegt og þetta í ár...
En allavegana yfir til þín Lilja....

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Nú er ég komin til ad vera... Hef verid a nogu flakki i sumar og ætla ad halda mig a klakanum i oakvedin tima, langan samt sennilega.
Þýskalandsförin var yndisleg, eins og ad koma heim aftur ad ymsu leiti. Svaf i minu gamla rumi, bordadi besta mat i heimi og gerdi fullt fullt a tessum stutta tima sem eg staldradi vid.
Numer eitt var nattlega ad hitta fjölskylduna og vinina aftur en numer tvö og þrju voru tonleikarnir ogleymanlegu a sunnudaginn... Þar voru 90.000 manns saman komnir til ad berja Robert Peter Maximilian Williams augum... Hann spiladi tvenna tonleika, laug og sunn og þeir sem leið sína lögðu til Hockenheim urðu svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum... Ekki skemmdi heldur fyrir að það rigndi ekki þrátt fyrir mikla skúri undanfarinna daga...
Mun aldrei gleyma þessu kvöldi... Hann er lang flottastur :)
Byrjaði að vinna í dag, skólasetning a mán. og svo allt á fullt á þrið. og þá kemur einmitt líka elskuleg systir mín heim í heiðardalinn...Get ekki sagt annað en að ég sé orðin nokkuð spennt fyrir þessu öllu saman...
Farin að sofa....

Af hverju er maður verstur þeim sem manni þykir bestur??

mánudagur, ágúst 07, 2006

Ich liebe Deutschland!!

saelt veri folkid.... Nuna erum vid semsagt komnar heim fra Danmörku eins og gloggir lesendur hafa tekid eftir. Eg staldradi nu ekki lengur vid en svo ad i morgun flaug eg til Tyskalandsins goda og er herna i godu yfirlaeti fjolskyldunnar minnar sem eg bjo hja tegar eg var skiptinemi... Ljuft lifid hja mer tetta sumar, endalaust af ferdalogum en eftir tessa ferd hugsa eg ad eg haldi mig heima hja mer fram ad jolum allavegana.... Pabbi hringdi einmitt i mig i gaer og spurdi : "So, how do you like Iceland?"Ja lenti semsagt her um hadegisbilid i dag og tokst ad kludra tvi einhvern veginn ad rata rett ut ur risavaxinni flughöfninni svo eg for a vitlausan stad tar sem toskurnar koma og turfti ad fara ut og svo aftur inn i gegnum tekkid og inna hitt tar sem min taska kom.... meiri vitleysan og eg skil bara ekki hvernig tetta gerdist.. Tegar eg kom tangad var min taska ein eftir og faeribandid meira ad segja stopp... Tau Senta og Roland sottu mig og eg var buin ad vera svo lengi ad tau heldu ad eg hefdi bara haett vid ad koma a sidustu stundu. Skritid samt ad tetta hafi gerst nuna midid vid hvad allt gekk vel tegar eg var bara heimskur skiptinemi ad koma hingad:) Svo forum vid bara heim tar sem eg dottadi sma a leidinni i bilnum (tad er 2 tima akstur fra Frankfurt og heim til min) tar sem eg svaf ekki neitt i nott en var samt rotud alla leidina i flugvelinni sem er bara gott mal tar sem mer hefur undanfarid fundist soldid othaegilegt ad fljuga. Svo komum vid heim og bordudum sem var geggjad tvi maturinn her er bestur i heimi sko eg er ad segja ykkur tad. Sidan var mer bara heldur betur lanadur bilinn, ekki bmw-inn samt en ja eg var semsagt ad keyra i fyrsta skipti i utlondum adan og tad var stud... For med Evy til Künzelsau, kiktum i nokkrar budir sem eru nu ekki of margar her a slodum en mer tokst samt ad kaupa mer e-d... Er ordin shoppaholic eftir ad hafa verid i Köben:) Annars er yndislegt ad vera komin hingad a ny og mer finnst bara eins og eg hafi ekkert farid eins og mer fannst lika tegar eg kom til Islands eftir arid mitt her... skritid.
A laugardaginn erum vid svo ad fara a fotboltaleik i Stuttgart, fyrsta umferdin i Bundesliegunni ad byrja ta... Stuttgart ad spila a moti Nürnberg og tad tarf ekki ad taka tad fram ad vid holdum nattlega med Stuttgart sko... Gud hvad tad er skritid ad sitja herna aftur og vera ad blogga fra Tyskalandi.
Annars er sidan staersta stundin a Sunnudaginn tvi ta erum vid ad fara a Robbie Williams tonleika og eg get sko ekki bedid, hann er nattlega bara lang flottastur... Tad verdur gedveikt sko (sorry Helga sorry)....
Annars vildi svo skemmtilega til ad hun Karen var lika ad fljuga ut i morgun svo vid gatum varid tima saman i Leifsstod :) Stud..
en nog i bili... have fun og sjaumst eftir helgina:)
kv, Hildur Thjodverji!!!

P.s. tegar eg kom heim ta var tyskalandsfani a svolunum, einn brasiliskur (allt utaf HM) og svo var kruttid hann Roland buin ad kaupa einn islenskan a netinu adur en eg kom svo ad nu er hann lika hja hinum.... Aedi gaedi!

P.s. 2 Oki erudi ad tekka a gaurnum???? Shji.....

þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Vid erum ad koma heim i dag.... :)

mánudagur, júlí 31, 2006

I will survive!!


1 dagur í Ìsland!! tad er hvorki meira né minna! tessar 5 vikur hafa lidid hja hradar en samtal a milli Hilju og Lildar a godum degi!! Undanfarnir dagar hafa verid afar gódir! Sídasta laugardagsdjamm var S to de nilld! Eftir ad hafa mönsad á kjuklinga chop suey fra hverfiskinastadnum og horft a dansmynd med vanessa williams og e-m latinofabioa gatum vid ekki á okkur setid og ákvádum ad vid hreinlega yrdum ad fara út ad dansa!! Og hvada stadir eru betri til ad dansa en samkynhneigdir stadir?? Tannig vid skelltum okkur á Pan sem er eini gaystadurinn sem vid höfum rekist á herna í köben. í rödinni hittum vid íslending nema hvad!! Erum bunar ad hitta íslendinga a hverju einasta djammi herna held eg!! hann er vist hjúkka og vinnur a elliheimili svo vid attum ymislegt sameiginlegt, fyrir utan kynhneigd... :) jaeja vid förum og tryllum lýdinn! Ég hef sjaldan skemmt mér svona vel!! Tónlistinn var frábaer! Tetta er var gúd skal eg segja ykkur!!

En Eva var ekki lengi í Paradís!! Eftir ad hafa fengid okkur hressingu á McDonalds setjumst vid nidur á Rädhuspladsen í ró og naedi. Kemur tá ekki tessi líka ógedslega rónakona í appelsínugulum og rAudum skídagalla og slaer Hildi í öxlina!!! Hildur bregdur heldur en betur í brún og á medan vid sitjum tarna í sjokki gengur tessi kona ad ödrum manni og slaer hann utanundir!! Hann tryllist og aetlar i hana en kaerastan hans roar hann nidur...svo eftir ca 3 min kemur konan aftur og kastar glasi i gaurinn!! hann sturlast!! og naer i 2 löggur sem komu og töludu vid konuna en gerdu ekki neitt!!Vid forum til teirra og spurdum kurteislega af hverju tad vaeri ekki gert neitt i tessum malum. önnur löggan, sem var btw fjallmyndarleg sagdi ad tessi kona hefdi verid handtekin i gaer og tvi vaeri tilgangslaust ad taka hana aftur!!! HA??? já ok...ef ég raeni banka nuna i dag og verd tekin, get eg alveg farid og raent banka aftur i naestu viku, af tvi ad löggan er buin med handtökukvotann á mig...?? tetta fannst okkur frekar dularfullt, en fyrirgáfum löggunni tar sem hann var svo ofbodslega saetur:)

Svo setjumst vid og bidum eftir straetó. EFtir ad hafa tekid lygapróf hja 15 ára únglingstraki kemur ítali og spyr hildi svo oft um ad fá ad sjá myndina hennar í bus kortinu ad hún segir vid hann a graenlensku ad ef hann haetti ekki sja hann solina ekki koma upp í nánustu framtíd!! En vid komumst loks á leidarenda! eyddum gaerdeginum i sofanum ad horfa á Ransom. Djöfull er hann Mel Gibson heitur....

laugardagur, júlí 29, 2006

Ég er sammála Aldísi í sambandi vit titlana....

Fórum semsagt a Rust a mid. og tad var snilld eins og vid attum von a... Kom e-r fabio (sem er skritid a tessum stad) til okkar og bad okkur ad gefa honum og vinum hans einkunn fra 1-10.... Vid nadum e-n veginn ad koma okkur undan tvi tratt fyrir ytrekadar tilraunir hans til ad fa okkur til ad gera tetta. Vildum bara ekki saera manninn og heldur ekki ljuga ad honum....
En ja veggfodrir goda var enn a sinum stad, (eg bara verd ad fa svona veggfodur) tonlistin var fin sem adur og tad var gjörsamlega pakkadur stadur til klukkan 5 eda half sex man ekki alveg hvenaer lokar og tad a midvikudegi. Vesen buid ad vera med lestirnar svo ad madur skreid upp i rum um 7 takk fyrir.... Vaknadi svo a fimmt. og gud minn godur helt ad tad yrdi minn banadagur. Svo miklum hausverk hef eg ekki fundid fyrir i mjög langan tima..... shji.. Forum samt a Laundromat um kvoldid og fengum okkur börger.. Svo var sma verslunarleidangur i gaer og kiktum sma sma ut a lifid en entumst ekki lengi... Rigndi lika tvilikt fyrripart dags i gaer en svo komin solin aftur og skin nu skaert.....
sjaumst eftir nokkra daga.

miðvikudagur, júlí 26, 2006

ja eg er sko med nogu mikid nesti

Núna eru einungis sex dagar i heimkomu sem er otrulegt. Ekki buinn ad lida neitt sma hratt timinn. En allt gott ad fretta hedann eins og alltaf. Erum bunar ad liggja i leti i allan dag, en i kvold verdur sko djusad. Mesta djammid er a midvikudogum herna eiginlega. AEtlum a Rust sem er stadur sem vid forum a midvikudaginn fyrir tveimur vikum og fannst ansi skemmtilegur.
Sidan i gaer vorum vid ogedslega kosy og leigdum bara spolu, "Walk the line" sem mer fannst aedisleg og vildi horfa aftur a i dag en Lilju fannst tad ekki. En hun aetladi samt ad borga 350 danskar fyrir ad leigja spoluna... Sem er svona 4000 isl kr. og tad var fyndnasta moment ever og vid hloum eins og vitleysingar.... svona have to be there moment.
Svo erum vid bunar ad versla og versla og veskjunum okkar er farid ad lida illa i salinni :)
Erum bunar ad vera med Svavari i romantiskum strandferdum og svona ymsu skemmtilegu.. Forum a Samsbar a laug og kenndum tessu folki ad syngja sem gekk kannski ekki of vel sökum mikillar ölvunnar sumra... En ja sidan raettist gamall draumur a manudaginn... vid forum i utibio a SinCity sem eg var ekki buin ad sja en fannst mjög god og ja stemmningin var snilld tarna. En nuna er eg farin ad borda lasagne sem vid hitudum upp i ofninum... lysi eftir folki til ad bjoda okkur i mat tegar vid komum heim tar sem vid erum bunar ad lifa a fyrirfram eldudum mat i manud :)
knus HMF

þriðjudagur, júlí 25, 2006

how could I leave while you were sleeping....


Kominn 25.júlí! Sumarid er í grófum dráttum ad fara ad verda búid! Tad er sorgleg stadreynd! En ég er einstaklega sátt med tetta sumar! Hef sjaldan skemmt mér jafnvel og sídustu vikur her í DK. Svavar er búin ad vera hérna í Köben sídan fyrir helgi og tad er aldrei nein lognmolla i kringum tann mann! Fórum í dóminerudum karíókíinu a laugardaginn, syntum í Eystrasaltinu á sunnudag og eyddum gaerdeginum á Nyhavn tar sem Svavar eyddi búska(tetta ord hef ég aldrei heyrt og er ekkert viss um ad tetta sé alvöruord!!) gróda sínum í kaffi og med tví handa okkur! Naestu dagar fara í ad klára hluti sem vid eigum enntá eftir ad gera. Hjóla um Hellerup, kannski skoda Jónshús, bjór á Viids Vinstue(Jónas Hallgríms á ad hafa drukkid nokkra kalda tar!), aftur á Midvikudagsdjamm á Rust, fara á Flóamarkad. Og svo ad sjálfsögdu sjá hvort tad sé ekki e-d fleira sem vid getum keypt:)
Er nú farin ad hlakka til ad sjá gamla settid! Tad verdur ágaett ad koma heim...Skólinn fer ad byrja og svona. ég verd alltaf lítill krakki aftur á haustin, aedislega spennt yfir tvi ad byrja i skolanum!!

föstudagur, júlí 21, 2006

"..you left the sweetest taste in my mouth"


Lilja a heidurinn ad sidustu 5 faerslum her svo aetli tad se ekki kominn timi a ad eg leggi inn nokkur ord. Vid erum semsagt enn i DK, lifid er yndislegt her og vid erum bara i rolegheitum ad skoda okkur um, drekka bjor og versla (for ad grata i gaer tegar eg for inna heimabankann minn). Tetta er ljuft lif skal eg ykkur segja og tad eina sem haegt er ut a ad setja er hitinn sem er buin ad vera, madur getur varla sofid a nottunni. Tetta er magnad, ekki oft sem madur upplifir alvoru sumar tegar madur er islendingur. Tad er reyndar ekkert svo heitt synist mer uti nuna, er reyndar ekki buin ad fara ut en tad er ekki allavegna skerandi solargeislar inn um gluggana. Vid forum semsagt a djammid i gaer. Erum sko ekki i Koben nuna heldur alveg sydst a jotlandi hja fraendum Lilju i bae sem heitir Aabenraa og tetta er svona svipadur ibuafjoldi og i Kopavogi svo ad tad eru bara ad eg held tveir skemmtistadir her og vid forum semsagt a annan teirra... Tetta var svona samblanda af Shooters og bilasamkomunum sem eiga ser stad nidur a reykjavikurhofn stundum tegar madur keyrir tar framhja... Tetta var bara snilld en hvad er malid med hvitu tamjou skona sem fjolmargir klaeddust einmitt i gaer og eru alveg hrikalega e-d ekki flottir.... Hef lika sed ansi marga i e-u svona heima, t.d. sænska gitarsnillinginn sem var ad spila a Rosenberg e-n timann i fyrra og eg og Karen eltum svo upp Laugarveginn og tad var fyndid.... En ja eg skil tetta ekki, tetta eru nattlega bara ljotustu skor i heimi og ekkert minna en tad (Nei Gunni, plis ekki), en eins og eg var von ad segja tegar Marion for med mer til Akureyrar "Wir sind auf dem Land" og tad afsakar og skyrir ymislegt :)
(nu a eg eftir ad vera kollud hrokafullt borgarbar, en tad verdur bara ad hafa tad)
Vid skelltum okkur sidan heldur betur i eftirparty sem lilja aranseradi mer til mikillar anaegju einmitt... En tad var sidan hin finasta skemmtun og tarna bjuggu lika tveir snakar sem voru ogedslegir en nuna er mission hja lilju ad redda ser oløglegum snak tegar vid komum heim... sjaum hvernig tad fer, eg mun allavegna ekki koma i heimsokn og aldrei ad vita nema eg lati e-r upplysingar leka til fraenda... Lilja u know what I mean :) hehehhe
en allavegna bae i bili... sjaumst svo bara fljotlega

laugardagur, júlí 08, 2006

Hitabylgja!

Loksins komnar til koben. roskilde var mesta snilld í heimi!! Scissor sisters rokkudu!!! byrjud ad plana naestu ferd. 3-8.juli 2007!! búum i grin ibud! tad er svo fokking heitt ad vid getum varla gert neitt. forum a tryllta hjalmatonleika a midvikudaginn i kristjaniu!! Einstakt kvold! medleigjandinn okkar er austurriskur(enough said) en finn naungi.
Forum ut i gaer, sofnudum i lestinni a leidinni heim og vorum naestum komnar utur koben tegar vid voknudum....Annars bara allt gud sko. Mathias fraendi og vinur hans koma i heimsokn a nasetu dogum. Og svo aetlum vid Hildur ad kikja til Ella fraenda á Jótlandi lika i afsloppun...

tangad til sienna...hej hej

þriðjudagur, júní 27, 2006

Hróarskelda 2006

Vil bara minna fólk á að við stallsysturnar erum að fara til DK eftir 5 klst. Vil fyrir hendur okkar beggja kveðja lesendur þessarar aumu síðu. Biðst velvirðingar á hörmulega stopulum skrifum svo og litlu upplýsingaflæði af okkar hálfu.
Svo ég segi bara eins og frændur okkar: Hej hej. vi ses i ágúst... :)

mánudagur, júní 05, 2006

Þögnin rofin.......


Nú er sko fjandinn hafi það komin tími á færslu!! Síðasta færsla var rituð 18 maí!! 18 maí!! Vitið þið aumu lesendur hvað það er langt síðan? Nei ég hélt ekki, það er allavegana nógu langt til að það taki því ekki að telja dagana!!
Svo hérna kemur það, hvert einasta smáatriði sem á daga mína hefur drifið undanfarnar vikur!!

Mitt daglega líf: Ég vinn á elliheimili við að klæða, fæða og skipta á gömlu fólki. Eins óspennandi og það hljómar er þetta ótrúlega gefandi starf og mörg gullkornin hafa flogið innan veggja Skógarbæjar. Hvort sem þau eru af vörum vistmanna eða e-a af þeim mikla fjölþjóðakokteil sem er þarna. Held ég hafi bara sjaldan kynnst jafn mikið af fólki frá jafn mörgum löndum á svona fáum fermetrum..
Svo er náttla gamla góða Lækjarbrekka. Ég er að nálgast persónulegt met í starfsaldri á Brekkunni góðu. Er komin yfir 6 mánuði sem hlítur að teljast nokkuð gott fyrir mig. Manneskjan sem skiptir um atvinnu eins og óhreina sokka...(örlitlar ýkjur)

Ég og Hildur höfum verið svo uppteknar að við þurfum að fara út á land til að geta hist! Mæltum okkur mót á Húsavík mestu celebútungunarvél síðustu 10 ára. Það vildi nefnilega svo skemmtilega til að Marion "systir" Hildar aus Deutschland er hérna á klakanum eins og stendur og Hildur er búin að guida svo mikið síðustu viku að Friðjón þarf sko að fara að passa sig!
Málið var að Tandri frændi var að ferma sig í kjól og hvítu(bókstaflega, drengurinn í var í hvítum jakkafötum, fáránlega töff! ) og ég og hele familien fórum norður um þessa hvítasunnuhelgi*. Og þar sem Húsavík hefur ofboðslegt aðdráttarafl í formi hvala, reðra og gífurlegrar náttúrufegurðar fóru þær stallsystur Hildur og Marion að skella sér norður líka (þótt að sjálfsögðu hafi það verið eintómt yfirskin til að geta eytt tíma með moi). Þær gistu hjá okkur í sumó og komu í fermingarveisluna og fengu kökur, og grétu það sko ekki;)
Skellti mér með Marion á tónleika hjá ónefndri hljómsveit í Hafnarfjarðaleikhúsinu í kvöld. Þeir spiluðu Pétur og úlfinn í fönkreggíútgáfu. Helvíti flott. Sögumaðurinn stal samt senunni.
Kíktum svo á Rósenberg eins og reglurnar segja til um...

Hvítasunna*: Þegar postularnir töluðu tungum. Þ.a.l. eru allir sértrúarsöfnuðir Hvítasunnusöfnuðir. Rauður er litur Hvítasunnunnar.

Hildur og Rósenberg: Gífurleg fjölgun þýskra ferðamanna innan veggja Lækjargötu 2 getur ekki verið útskýrð öðruvísi, en að sú fagurhærða, fríða og frábæra Hildur Mist Weiss tali þeirra germönsku tungu og því hafa þeir farið þar inn í stórum hópum til að berja stúlkuna augum.

Heimskupör Lilju Daggar: Tilburðir mínir í tilhugalífinu eru orðnir það grófir að þeir valda sambandsslitum hjá gestum og gangandi. Bið því þá sem eiga á hættu á að mæta mér eftir einn eða tvo kalda að halda sig í ákveðinni fjarlægð. Þ.e.a.s. ef þeir eiga maka. Annars er þeim velkomið að kynnast mínum einstaka yndisþokka í eigin persónu.

Merkilegasti atburður vikunnar: Hildur eignaðist Lillí. Grænu skjaldbökuna sem er staðgengill minn í gegnum súrt og sætt...Hún er táknræn fyrir mig. Græn, löt, hæg og krúttleg. Svo alltaf þegar ég er leiðinleg og nenni ekki e-u er Lillí til staðar. Svo fer hún líka svovel í veski...

fimmtudagur, maí 18, 2006

Ég óska þess að þú sért hér....

Heyrðu það er þá barasta komið að mér !! Hildur búin að setja fram tilgátu um ástæður bloggleti mínu og ég get ekki gert annað en sannað eða afsannað þessar tilgátur hennar!
Tilgáta A: Hildur á sér ekkert líf og þar af leiðandi hefur hún meiri tíma til að blogga.
Tilgáta B: Ég á mér innihaldslítið líf sem er tilgangslaust að segja frá.

Til að Tilgáta A standist þyrfti Hildur að vera sérstaklega leiðinleg og óspennandi manneskja sem ætti enga vini og hefði ekkert betra að gera en að segja frá aumingjalegu lífi sínu. Þessi tilgáta brotlenti áður en ég gat klárað að lesa hana til enda! Hildur Mist Friðj.Ottes. aka minn BFF er einstaklega hress og skemmtileg stelpa og lifir fyrir fátt annað en "Carpe Diem"(grípið gæsina á meðan hún gefst) og "La vida es ahora"(lífið er NÚNA). Þannig er það algjörlega ómögulegt að ætla að hún bloggi vegna lífsleiða og leiðinlegra daga.

Þá komum við að Tilgátu B: Það er gefin staðreynd að ég er mun latari og ónennari en Hildur. Ég beila oftar á hlutum eins og djammi, sumarbústaðarferðum um miðjar nætur o.s.frv. Allt vegna gífurlegrar síþreytu(sem var reyndar einu sinni vegna járnskorts, en það er önnur saga). Ég kaupi aldrei neitt á kaffihúsum og fer ein í göngutúra um verslunarmiðstöðvar. En þrátt fyrir allt þetta er ég samt BVAE(BFF) hennar Hildar. Og í því felst að næstum allt sem ég geri, geri ég með fröken Hildi. Það þýðir að meira og minna allt sem ég skrifa um fjallar um Hildi. Sem þýðir líka að ég get ekki verið að blogga um leiðinlega hluti!
Mín niðurstaða er því sú: Ég er einfaldlega bara löt.(sjá mynd)

Svo þarna hafið þið það.

miðvikudagur, maí 17, 2006

Þetta fer nú að verða svona eins og í denn þegar Gréta og Telma opnuðu tölvunördana (jamm, þið lesið rétt, Telma átti einu sinni blogg) en svo leið ekki að löngu þar til Telma helltist úr lestinni og Gréta því eini sómasami eignadi síðunnar í dag... Bína var nú reyndar hluti af nördunum líka í e-n tíma, en Gréta er semsé ein í dag. Það sem ég vildi sagt hafa með þessu er það að ég er nú sú eina af okkur tvíeikinu sem virkilega skrifa hérna inna með reglulegu millibili, allavegana þessa dagana. Það er spurnig af hverju það stafar, kannski vegna þess að ég á mér innihaldslausara líf en Lilja og hef því ekkert annað að gera en að skrifa færslur í tölvudagbók, eða jafnvel að líf mitt sé mun innihaldsríkara því að svo virðist vera sem Lilja hafi ekki frá neinu að segja. Svona er nú leikurinn skemmtilegur, alveg hægt að sjá þetta algjörlega frá tveimur hliðum og komast að svona líka mismunandi niðurstöðu. En það sem ég átta mig eiginlega á er það að öll mín skrif snúast um Lilju líka því þar sem önnur okkar er, er hin sjaldnast langt undan. Þannig að það væri sennilega bara um endurtekningar að ræða ef við skrifuðum alltaf báðar um það sem á daga okkar drí/ýfur :-) Þannig að við verðum að reyna að skipta vikudögunum bróðurlega á milli okkar, þannig að hver fær þrjú stykki og svo einn hálfan dag...
Nóg af vitleysu í bili...

þriðjudagur, maí 16, 2006

Við fáum þessar pillur til að kyngja, hvernig þær festast í hálsinum á þér, smakkast eins og gull...

Þá eru báðir meðlimir lautarferðarinnar búnir í prófum... Til hamingju með það!! Fékk þá spurningu í gær hvers vegna fólk óskaði hvert öðru með það að vera búin í prófum... Vissi ekki svarið. Svo hélt sá hinn sami áfram og sagði að þetta væri kjánalegt þar sem að maður er í skóla af fúsum og frjálsum vilja og hvers vegna er maður þá glaður að losna?? Ég var nú ekki alveg sammála þessu því að auðvitað er alltaf gaman þegar svona strembnum tímabilum yfir líkur, hvort sem að maður skipaði sig sjálfur í þá stöðu eður ey....
Að öðru, í dag eru akkúrat 6 vikur í DK babý og ég er ekki frá því að hún Lilja sé að verða bara nokkuð spennt... :) Gaman að því. Hlakka samt mest til að hitta tilvonandi meðleigjanda okkar, hann er frá Austuríki en ég man reyndar ekki hvað hann heitir í augnablikinu. Vonandi hinn blíðasti drengur, ekki það að ég sækist samt eftir blíðu hans. Við getum talað þýsku alla daga, Lilju til mikils ama og ég græt nú ekki svoleiðis tækifæri. Vonandi bara að hann sé ekki típann sem vill hafa hljóð kl tíu þegar hann fer uppí rúm.... Það verður hræðilegt ef að hann er þannig. Býst nú samt ekki við því þar sem að hann er frá Austurríku og býr í DK, þá er hann nú sennilega maður fyrir einn eða tvo á fallegu sumarkvöldi í júlí.
Ég er að fara uppí elsku Hjallaskóla í fyrrmálið að halda AFS skólakynningu, vona að það eigi eftir að ganga sem skildi... Svo á fimmt erum við fínu frúrnar að fara á Lækjó eins og ég greindi frá í seinustu færslu. Þá verður það bara Bailey´s við kleiks í fordrykk, svo humarveisla sem samanstendur af humarsúpu í forrétt, humri í aðalrétt og svo e-r ægilega girnilegum eftirrétt... Eftir það er kvöldið óákveðið, en við finnum okkur sennilega e-ð skemmtilegt til dundurs.

......Seinna...

laugardagur, maí 13, 2006

Ég get ekki lifað ef að lifa er án þín...

ok guys... Ég er svo æst að ég verð bara aðeins að blogga... Var að koma heim úr vinnunni og veit ekkert hvað ég á að fara að gera. Eða jú ég ætti að vera að fara að sofa en einhverra hluta vegna er ég svo spennt. Veit ekki hvers vegna en jú að e-m hluta er það útaf ég hlakka svo svakalega til þess að fara til DK og það er sssvvvoooo stutt þangað til að ég dey bara. En vinnan var fín, ég bara átti ekki orð hvað það byrjaði að birta snemma, bara komið sumar og allt að gerast. Og alveg stappað í bænum í kvöld í samræmi við það. En já svo er bara eitt próf eftir og það er hagfræði á mánudaginn og ég byrjaði heldur betur bara að læra fyrir það í dag því að ég varð að taka smá auka vinnu í kvöld og annað kvöld þannig að ég verð að vakna snemma í fyrramálið og læra mestallan daginn á morgun og líka á sunn... Það þýðir ekkert núna að byrja að læra kvöldið fyrir prófið eins og stundum því að á sunn.kvöld er staffapartý og þá verð ég að vera búin að lesa allt svo ég geti farið í það, eða megi fara í það.
Hraun er náttlega ekkert annað en besta hljómsveit allra tíma og ég veit að þeir sem hafa heyrt þá spila eru meira en sammála mér í því. Þeir verða sennilega að spila næstu helgi á Rósenberg en þá er reyndar júróvisjon svo ég veit ekki hvað verður. En ég og Lilja ætlum að vera rosa kúl og beila á júróvisjón í ár og fara á fimmtudaginn út að borða á Lækjarbrekku (við erum fínt fólk) og fá okkur svo kannski einn eða tvo svona í tilefni af því að prófin eru búin. Hvort við eigum það skilið er hins vegar annað mál. Veit reyndar ekki með laug. ef að Silvía kemst áfram í Júró en ætli við verðum ekki bara báðar að vinna þá. Ætlum nefnilega að vera í fríi helgina á eftir þar sem að það er heill hellingur af stúdentsveislum þá. Svo er það bara vinna, vinna, vinna og svo DK baby :) Vona að veðrið haldi áfram að vera svona gott eins og það var sérstaklega í byrjun vikunnar, þá gat maður heldur betur skellt sér niður á Austurvöll í góðum fíling. Minnir mig nú bara á forðum daga á Hótel Öld en það var einmitt ósjaldan sem ég læddist þangað niðureftir eftir vinnu....
En jæja komin tími á að fara að sofa smá í hausinn á sér (finnst svo kjánalegt þegar fólk notar þennan frasa) ef ég ætla að byrja að læra eftir 5 tíma.... góða nótt

föstudagur, maí 12, 2006

Ég er rebell, já ég er rebell. Sjáðu mig dansa, sjáðu mig dansa...

Ég ætlaði að skrifa hérna eina góða, innihaldsríka færslu... En um leið og ég var búin að logga mig inn þá hvarf eldmóðurinn. Veit ekki hvert hann fór, né hvaðan hann kom í fyrstu en látið mig vita ef þið verðið e-u nær um það hvar hann heldur sig....

sunnudagur, maí 07, 2006

Ég er að fara í flugvél, veit ekki hvenær ég kem heim...




Já hve mikil ósköp! Nú er sko komið að Lilllí Dí from ðe k ó P að láta ljós sitt skína!! Ég er búin að vera hundlöt við að skrifar flippaðar færslur og segja frá atburðum liðinna daga. Vil byrja á föstum liðum eins og venjulega

1.Hildur og Rósenberg; Afar óaðlaðandi og aldurhniginn kona reyndi pent við Friðjón okkar, hann er skaddaður fyrir lífstíð. Hildi var boðið að hitta ákveðinn einstakling af ákveðinni Brennslu á ákveðnum stað á ákveðnum tíma, hún er enn að hugsa málið. Einstaklingar sem féllu fyrir styrkum armi Hildar: NÚLL.

2. Heimskupör Lilju; Þar sem ég hef verið einkar ötul við að bæta úr mínum málum í þessari deildinni er ekkert frásagnarvert! HA!! (ef e-r er á öðru máli, er henni/honum leyfilegt að skrifa sínu máli í þar til gerðum dálki)

3. Merkilegasta atvik vikunnar: Þegar ég kom til Hildar í dag hafði hún keypt handa mér gjöf, ekki hvaða gjöf sem er. Ónei, hún keypti handa mér stígvél:D Bleikröntt stígvél!! Og appelsínugul handa sér(hún leyfði mér að velja lit;) Djöfull verðum við flottar á Hróarskeldunni í þessum kvikindum!! Ég set inn myndir við fyrsta tækifæri, ef ekki bara myndaseríu!! Hún fær stórt knús fyrir þetta frábæra framtak!! Annað sem þess verðugt að fá rokkprik. Við stallsysturnar erum búnar að borga íbúðina í DK!! Ekki slæmt!! Svo eina sem þarf að gera núna er að vinna sér inn smá eyðslufé!

Helgin hefur verið hin rólegasta. Öll familían heima hjá ömmu í gær, svaka gleði. Endaði í náttfatapartý heima hjá mér þar sem 5 af 9 frændsystkinum gistu öll og horfðu á myndbönd langt fram eftir nóttu!!(kl. var reyndar bara 1:30...en þetta var búið að vera LANGUR dagur!!!) Svo fór öll herlegheitin í sund í dag í góða veðrinu og svo á Scary Movie 4 sem ég ráðlegg engum að fara á....por favor!!

Prófahelvítin(töff töff) byrja svo í næstu viku þannig að Saadia, Hildur og ég erum búnar að sitja sveittar að lærdómi hérna í Hvannhólmanum. Enda er Hildur orðin útkeyrð og sefur hérna á sínu græna við hliðina á mér..Þessi ungdómur!

Hasta la vista baby!!

fimmtudagur, maí 04, 2006

Sjáðu hvernig þær skína fyrir þig...

Ég er náttlega bara on fire núna í bloggunum sko.
Það er svona eins og við Lilja vorum einmitt að tala um áðan sko, prófatíminn er alveg rosalega nice tjill tími. Maður vakir fram eftir og gerir það sem mann langar til eins og við í dag. Vorum að útrétta og svona en samt í raun er þetta líka versti tími ársins því maður er svona smá stressaður... Hugsar "oh, af hverju er ég ekki að læra núna, heldur að gera e-ð allt annað".

Talandi um að við vorum að útrétta þá skelltum við okkur í bankann í dag (eins og við Telma hérna um árið klukkan átta um morgunin) og borguðum fyrir íbúðina okkar í DK. Þannig að það er heldur betur bara allt orðið klárt og búið að borga allt... Þannig að tekjurnar fram að ferðinni fara bara í eintóma skemmtun, ekki slæmt það :)
En já við erum búnar að vera að tala um þetta núna fram og til baka og plana hvert einasta smáatriði, ekki það að það sé þörf fyrir að gera það núna svona snemma. Heldur er spenningurinn bara að fara með fólk. Enda hugsa ég að þessi ferð verði alveg eintóm gleði, eða ég vona það allavegana.
Annars er það að frétta að ég var í íslensku í gær sem gekk bara ágætlega. Fer svo í næsta próf á föstudaginn en það er einmitt danska, bæði munnleg og skrifleg. Hef nú ekki miklar áhyggjur af skriflega partinum þar sem ég skil það nú flest allt. Munnlegi hlutinn er hins vegar allt önnur saga... Því að þegar ég á að tala dönsku þá kemur ekkert annað en þýska út úr mér... Alveg mjög slæmt það. Reyni samt bara að gera eins og Helga sagði mér og það er að ef ég veit ekki hvernig ég á að segja e-ð segi ég það bara á þýsku með dönskum hreim. Nefnilega ansi mörg orð sem eru svakalega lík ef ekki bara eins á þessum tungumálum.
Í færslunni hérna á undan talaði ég aðeins um Chris Martin og Helga kommentaði og kvaðst vera sammála mér um hann en minntist hins vegar á að Soffía frænka hefði e-ð skemmt ánægjuna fyrir henni. Ég verð að fá að segja aðeins frá því atviki. Það var semsagt þannig að við vorum í jólaboði á annan í jólum að mig minnir heima hjá Diddu frænku og vorum að horfa á Coldplay tónleika. Við sátum þarna allar stjarfar og horfðum á þennan mikla meistara og ræddum það hversu sexy hann er... Þá heyrist í Soffíu: "Hann er svo sexy að mig langar til að sleikja af honum svitann". Þessi setning gleymist seint hjá flestum okkar held ég og hefur valdið mikilli vanlíðan og martröðum. Það eru nú samt liðinn meira en tvö ár síðan þetta átti sér stað en er okkur systrum í minni eins og gerst hafi í gær og það er allt annað en ánægjulegt og e-ð sem við viljum vista í hausnum það sem eftir er...

Takk fyrir mig.

miðvikudagur, maí 03, 2006

Hvað er það?

-Lilja er komin heim frá DK
-Ég elska röddina í Chris Martin
-Freyja sagðist stolt af mér fyrir að vera ekki hnakka-stelpa í bleiku eins og í 9.bekk
-Litli bróðir minn sagði einu sinni að e-r kona væri "bleik kelling eins og Hildur Mist"
-Útaf hverju er miklu auðveldara að vera hress á kvöldin en á morgnanna?
-Það eru 56 dagar í DK baby
-Tvær vikur í prófalok
-Hvernig heilsast hestar?
-Útaf hverju er svartur vinsælasti liturinn þó svo að flestir segist halda mest uppá rauðan eða bláan...?
-Ég á miða á Robbie Williams í Þýskalandi í ágúst... vandinn er bara sá að flugið kostar líka peninga.
-Af hverju er ekki gaman að versla föt á Íslandi?
-Af hverju langar mann bara í það sem maður ekki fær?
-Það var Kínverji sem lagði gamlann mann í einelti á Hverfisgötunni í gær
-Ég og Saadia fórum í Bílanaust til að kaupa köku í dag
-Fólk er fífl
-Árið er næstum hálfnað
-Sumarið er tíminn...
-...vorin líka
-Ungl. flokkur kvk í HK afrekaði það um helgina að verða Íslandsmeistarar um helgina
-Tveir titlar höfn og geri aðrir betur
-Hvað varð um hnébuxurnar?
-Til hvers að sitja þegar þú getur legið?
-Mig langar í útilegu í sumar
-Hver er listin að lifa?
-Leiðrétting: "Einn dans við mig" en ekki "Einn dans fyrir mig"
-Það síðara hljómar samt betur
-Hvernig getur fólk borðað lauk eins og epli?
-Ég elska bingó kúlur

Jæja lesendur góðir, til hamingju með að hafa lesið bestu færslu allra tíma.
Sjáumst!!

föstudagur, apríl 28, 2006

Dejlige Danmark!!


Ja det her er livet! Eg ad skridtækla Beggu-->

Kom hingad til DK å midvikudag med familiunni eins og Hildur minntist å. Keyrdi framhjå husinu okkar og mer list bara asskoti vel a tetta allt sammen!!
Er buin ad liggja herna i leti, slappa af og tag det roligt;) I gær løbbudum vid mædgurnar nidri bæ og øndudum ad okkur goda loftinu:) svo voru nokkrir fotbolta leikir sjå mynd:

Svo er bara buid ad grilla, drekka øl, spila rummikub, spila a gitar, hljombord og syngja, runta um Aabenraa og hygge sig. Let ljos mitt skina og blandadi Irish Coffee handa gamla settinu i gær. Vakt mikla lukku;)

Svo er ferming a sunnudaginn hja Kristjani frænda, svo eg verd ordin vel sødd eftir allan tennan mat tegar eg kem heim:) ekki amalegt tad. Fint ad taka svona rolegheit, tvi svo fara ad byrja fjårans profin....grr...men sådan er livet... 100 rokkprik fyrir hann sem getur nefnt hljomsveitina sem søng tetta lag!!

fimmtudagur, apríl 27, 2006

Þetta byrjaði með einum kossi, hvernig endaði þetta svona? Þetta var bara koss, þetta var bara koss...

Eins og alþjóð veit lagði hún Lilja litla (sorry Lilja mín, þetta stuðlar bara svo flott) land undir fót í morgun og hélt til móts við frændur okkar í Færeyjum... nei reyndar ekki, mér fannst þetta bara stuðla svo flott líka.... Hún fór semsagt til Danmerkur. Það er nú kannski ekki frásögufærandi þar sem við erum víst komin á árið 2006. Nema hvað hún fór og fann tilvonandi heimili okkar, komst reyndar ekki inn þar sem enginn var heima en lét það samt ekki stoppa sig í að mynda húsið í bak og fyrir.... Gvuð minn góður hvað ég er að farast úr spenningi... Það er eins og liltu spennukallarnir inni í mér ætli gjörsamlega að rífa gat á húðina og koma út... Hef sjaldan vitað annað eins...Þetta lítur alveg hreint hryllilega kósí út og er ekki lagt frá Parken þar sem einmitt oft mikið er um gleði og glens. Ég sé fyrir mér hjóla-piknikferðir þar sem við böðum okkar velsköpuðu líkama í sólinni og drjúpum á eðalhvítvíni.. Eða höfum við e-ð annað að gera þarna?? Það er spurning sem brennur á vörum flestra sem við komum að orði við þessa dagana. "Hvað ætliði að gera þarna úti? Ha, ekkert að vinna?" Svo er starað á mann eins og Bogomil Font syngi um mann í Marsbúa cha cha cha. Hvað er að því að fara til útlanda með ekkert á stefnuskránni nema að hafa það gott í nokkrar vikur. Veit ekki betur en að fólk flykkist til útlanda ár hvert til þess eins og hafa það huggó. Sennilega er þetta allt tilkomið vegna fjölda klukkutíma frá því að við vorum getnar. Maður verður að vera Ellilífeyrisþegi á leið til Kanarí til að mega tjilla í nokkrar vikur.. Ef maður er ungur sem lamb þá er það kallað að vera latur eða að slæpast ef maður er ekki að vinnandi dag sem dimma nótt í skólafríum... Þegar maður hefur náð vissum aldri hefur maður hins vegar bara "gott af því" að fara í frí til þess eins að leika sér.
Í öðrum löndum er það bara hreint ekki normal að skólafólk vinni í fríum, þar kemur að vísu inní styttri sumarleyfi, atvinnuleysi og fleira. Ég vil samt helst benda á hégóman sem stjórnar litla klakanum okkar of mikið, efnahagshyggja, geta keypt flottari plastma en nágranninn... Hvað er það?? Ég datt einmitt í miklar hugleiðingar um þessi mál ekki svo alls fyrir löngu. Fór að bera mig saman við vini mína, kunningja, skólasystkini o.fl sem eru á mínu reki. Hvert sem maður lítur sér maður ungt fólk akandi um á glæsikerrum, hlustandi á ipod, með nýja laptop-inn undir arminum á meðan það tekur eins og eitt stykki hágæða ljósmynd með splúnkunýju digital myndavélinni sem keypt var erlendis nokkru áður því að að sjálfsögðu kemur þessi týpa ekki í Hans Petersen fyrr en fyrir jólin 2007. Hvar fær fólk aur til þess að lifa svona? Ég t.d. á ekki ipod, á reyndar bíl, en á hann ekki ein og hann er ekki einu sinni þeim gæðum gæddur að vera með geislaspilara. Nei, Saadia fjárfesti í hálfgerðri kasettu með snúru sem hægt er að tengja við ferðageislaspilara til að hafa í bílum og við erum hæstánægðar... Ég á reyndar laptop en hann þarf að vera í ei/ylífu sambandi til að hægt sé að hafa kveikt, er með Windows 2000 og varð mín eign einungis vegna þess að mamma fékk nýjann til að nota í vinnunni. Ég á ekki einu sinni dvd-spilara og hvað þá heimabíó... Og vitiði hvaða, mér líður ágætlega. Þrátt fyrir þessa veikleika mína og meðalmennsku tel ég mig ekki neitt verr staddari fyrir vikið... Ég nýt þess að liggja uppí rúmi, horfa á Legally Blonde á VHS eða að hlusta á tónlist í græjunum sem ég fékk í fermingargjöf og eru enn eins og nýjar.
Hvernig væri að slaka aðeins á, byrja ekki allar samræður á "hey, ég var að kaupa mér.... í dag". Mér finnst þetta komið svo algjörlega út í rugl að það hálfa væri helmingi meira en nóg... Ég var með gest um páskana frá Þýskalandi sem að blöskraði algjörlega vellystingarnar sem við lifum í... Tala nú ekki um himinn hátt verðlagið og það setti punktinn yfir i-ið þegar við borguðum 800kr. fyrir kebab sem maður kaupir á 2 evrur 50 úti. Hún spurði mig hvort að það væru allir svona ríkir á íslandi.. En svo er ekki. Mikið af fólki er í basli um hver mánaðarmót við það að ná endum saman, margir þora ekki að opna dyrnar heima hjá sér þegar hringt er af ótta við að e-r frá bankanum sé mættur til þess að innheimta... Svo vinnur fólk eins og skepnur myrkrana á milli til þess að geta keypt hús, bíl, heitan pott o.s.frv.. En er í raun að sóa öllu í ekki neitt þar sem það er aldrei neinn heima við til þess að njóta allra "flottu og nytsamlegu DAUÐU hlutanna" sem til eru... Skilnaðartíðni fer vaxandi og ungt fólk leiðist út á vafasamar brautir til að fá athyggli foreldranna sem enn eru að vinna fyrir afborgununum.. Þá opnast augun, þegar allt er í rúst... Hvað hefði ég getað gert til þess að að enda ekki all alone in the old house (Faðir brúðarinnar)?? Eyða meiri tíma með þeim sem þú elskar því það er það sem skilur e-ð eftir sig!! Ekki get ég ímyndað (Lilja tékkaðu á stafsetningunni) mér það að það skipti nokkru máli að vera með gosbrunn í garðinum þegar maður er komin undir torfu... Eða er það málið?? Endilega látið mig vita þegar þið vitið svarið...
Hættum að drepa okkur á eigin græðgi og lifum lífinu... Ég veit ekki hvort maður fær nokkuð annan séns...

Kveðja, Orgill

laugardagur, apríl 22, 2006

Lesið og grátið


Já, það er víst erfiðara en við héldum að halda uppi þessari blessuðu heimasíðu! Við ætluðum sko aldeilis að gera glens & grín minnst annarhvern dag og líka hafa vikulegan atburð; t.d.

"Merkilegasta atvik vikunnar",
"Það heimskulegasta sem Lilja lét útúr sér",
"Hversu mörgum henti Hildur útaf Rósenberg núna?"

Það reyndist vera hægara sagt en gert og í staðinn fékk almúginn eina flippaða bangsaogbananafærslu og eina samt helvíti góða prófleiðafærslu.
En eftir miklar vangaveltur og fundastörf af okkar hálfu höfum við komist að þeirri niðurstöðu að svona verður þetta bara að vera! Við erum ekki að finna upp hjólið? Við erum ekki "celebar" sem þurfa að lifa undir þeirru pressu að sinna fjöldanum!!! Við erum bara manneskjur! Við erum ekki einu sinni orðnar nógu gamlar til að drekka í eigin brúðkaupi!! Svo ég bið ykkur vinsamlegast að taka tillit til þess að við erum bara fólk eins og þið! Bara til að fyrirbyggja allan misskilning...


Með fyrirfram þökk og von um góðar móttökur.
Undirritaðar:


Lilja Dögg VignisdóttirHildur Mist Friðjónsdóttir








X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X


X

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Snökkt snökkt

OK!!!! Ég er að fara að gráta núna!!

Var búin að skrifa fullt fullt og svo allt í einu blokkaðist það allt og strokaðist út!!

Nenni ekki að skrifa allt aftur nuna. Geri það þegar eg kem heim kannski....

föstudagur, apríl 07, 2006

Prófa-líf eða -dauði

Einungis nokkrir klt. þar til hið langþráða páskafrí byrjar.... Loksins loksins, það sem maður er búin að bíða eftir síðan jólafríið kláraðist er nú bara handan við hornið. Það er mjög þægilegt að hugsa til þess, svona eins og maður sé að ná markmiði sem stefnt hefur verið að í langan tíma. Ekki það að skólinn sé slæmur, það er bara svo ljúft að vera í fríi...
Segi svo eins og hún Lilja, vorönnin er einhverra hluta vegna alltaf erfiðari og jafnframt leiðinlegri en haustönnin. Hver skýringin á því er veit ég ekki. Það er e-n veginn það að á haustinn er maður búin að vera í fríi allt sumarið og er að verða komin með nóg af því og farið að kitla í fingurnar því maður hlakkar svo til þess að fara að leysa hin ýmsu stærðfræðidæmi og glósa íslendingasögurnar og byrjar því af krafti um leið og bjallan hringir inn fyrsta daginn. Svo er hins vegar eins og þessi eldmóður sé alveg horfinn úr manni í byrjun desember en þá huggar maður sig við það að maður þurfi bara að surviva jólaprófin og svo kemur tími besta afslappelsis ársins, þegar það erfiðasta sem maður gerir er að halda uppi bókinni sem maður er nýbúin að færa úr umbúðunum..... Semsagt blessað jólafríið!! Jólaprófin ganga svo oftast alveg sæmilega þar sem maður hefur verið mjög duglegur að sinna náminu undanfarna mánuði. Svo er jólafríið á enda og það er svo skrítið að á þeim tíma vantar alveg í mann þessa tilhlökkun að byrja aftur í skólanum eins og er á haustin... Maður er meira svona í fílingnum "hvað eru margir dagar í páskafrí?, afhverju er jólafríið ekki fram að þrettándanum??" og fl. í þessum dúr.
Þannig að á tímum eins og núna þá er maður alveg guðslifandifegin að vera að komast í smá pásu en er hins vegar alveg með kvíðahnútin kraumandi í maganum útaf því að innst inni veit maður að með hverri mínútunni sem líður styttist alltaf meira og meira í vorprófin og alla vinnuna sem þeim fylgir, (ég tala nú ekki um öll verkefnaskilin sem raðast upp viku fyrir frí). Lestur 24/7 í meira en tvær vikur, prófapirringur og það sem meira er prófaljótan... Já maður getur eiginlega ekki látið sjá sig á almannafæri á þessum tíma þó að maður þurfi svo sannarlega á smá uppliftingu að halda milli þess sem maður leggur á minnið vísurnar í Hávamáli...
Maður er semsagt fastur í svona vítahring, ef maður vill standa sig vel þarf maður að lesa, ef maður les vel og mikið fær maður prófaljótuna og getur ekki látið sjá sig utandyra en maður verður einmitt að taka sér frí frá lestri til að fara ekki yfir um. Þannig að þetta endar þannig að maður kemst ekkert út , les yfir sig og kemst þ.a.l. ekki í prófið, þarf að taka sjúkrapróf sem eru alltaf svínslega erfið og þá er maður búin að gleyma fyrir löngu öllu sem maður átti að hafa lært og fellur því og þarf að endurtaka þetta allt saman að ári.....
Þannig að mín tillaga er sú að fylgjast alveg súper vel með á vorönn jafn og á haustönn þannig að það þurfi rétt að glugga í glósur fyrir vorpróf eða jafnvel bara ekkert að læra (meira samt fyrir svona Einsteina eins og mig ) sem kemur í veg fyrir oflestur, sem kemur í veg fyrir prófaljótu, sem kemur í veg fyrir að maður þurfi að hanga heima allan daginn, þannig að maður heldur geðheilsu, nær góðum árangri í prófaandsk..... fellur ekki og kemst klakklaust á næsta ár skólagöngunnar.......

Með þessum orðum kveð ég að sinni, minni fólk bara á að það er alveg líf eftir prófin og því um að gera að hugsa frekar um hversu stutt er í að þetta sé allt saman yfirstaðið því það gefur manni aukinn viljastyrk og kraft til að klára þetta með sæmd, en ekki að sitja í sjálfsvorkunn yfir því að það sé svo mikið eftir......

Baráttukveðjur, HMF

föstudagur, mars 31, 2006

Einn dans fyrir mig!

Nú er sko gaman að lifa. Sólin skín og fuglarnir syngja. "Lífið er núna" svo ég vitni nú í gamlan vin. Síðustu dagar hafa verið bara nokkuð góðir. Ég skellti mér út á landsbyggðina á fimmtudaginn og sá Bítlasöngleik hjá henni Toffu minni. Stelpan var að semja dansa og stóð sig líka svona helvíti vel! Föstudagurinn var ekki verri. Úrslitin í MORFÍS voru í Háskólabíó. MH vs. MR. Við fengum ræðumann kvöldins en MR-ingar unnu...MH-ingarnir skelltu sér síðan allir á SHOOTERS!! hahahah þetta var fyndin stemmari. Það var einróma álit að MH verði að finna sér svona soldið meira respectable stað fyrir bjórkvöld....með fullri virðingu f. Shooters. En það var gúd, dansaði á fullu og skellti mér síðan í bæinn með Eddu og co.. Það var góður stemmari. Fullt af útlendingum. Þeir eru alltaf hressir.

Svo er hún Evy "systir" hennar Hildar komin til landsins og við fórum rosalega menningarlegar að sýna henni Perluna, Skólavörðustíginn og svona í gær. Æðislegt veður fyrir utan -143°C frost. Sáum ÍBV verða deildarmeistara kvenna og tókum Singstar, ég vann Just like heaven í fyrsta skipti!! JESS. Svo var Kristján svo hress og skemmtilegur eins og hans er von og vísa og bauð mér á tískusýningu sem hann var að taka þátt í !! Hann var langflottastur að sjálfsögðu;)

Svo var búið að skipa Hildi sem sérlegan eftirlitsstelpu í afmælispartýi hjá Evu frænku hennar. Þannig ég fór í annað skipti út fyrir borgarmörkin, í þetta skiptið uppá Álftanes! Þetta var fínasta partý. Hildur tók dyravarðahlutverk afar alvarlega og hleypti engum inn nema að sá hinn sami væri með handskrifað boðskort með stimpli og alles! :) Hún stóð sig einkar vel. Við heyrðum ýmsar sögur um fólk í leit að sinni réttu köllun í lífinu. Ég hélt líka um stund að ég væri komin í Örkina hans Nóa. Þvílíkur aragrúi af dýrum!! Lífs&liðnum..; 3 kettir, tíkin Káta, STÓrT fiskabúr með skrautsteinum, uppstoppaðir fuglar og refur, fuglaklukka og ég veit ekki hvað sko! Þetta gekk samt sem áður bara mjög vel og það kom mér á óvart hvað þetta var rólegt. Var búin að undirbúa mig fyrir e-ð brjálað "unglingapartý"!!

Dagurinn í dag er sunnudagur aka Leiðinlegasti dagur vikunnar. En mér sýnist á öllu að við séum að fara í sund, svo þetta er ekki alslæmt...

Svo er það countdównið:
Páskafrí: 5 dagar
Danmörk með familien:24 dagar
Prófin búin: 44 dagar
Hróarskelda&Köben: 12 vikur og 2 dagar

mánudagur, mars 27, 2006

Var það ekki e-r sem sagði "do you have sítrón?" í staðinn fyrir lemon??

Tveir íslendingar eru úti í sveit að aka og sjá bíl fastan úti í kanti.
Þeir ákveða að hjálpa og fara út úr bílnum. Þetta eru útlendingar og kunna íslendingarnir lítið í ensku entekst að spyrja: "Dú jú vant help?"
Útlendingarnir svara " no no this is ok"
Íslendingarnir vilja endilega hjálpa og gefa sig ekki og segja: Jes ví help jú.
Útlendingarnir: No no this is ok
Íslendingarnir: Jes jes nó vesen - ví help jú. Þeir ná í reipi í bílinn sinn til að freista þess að draga bílinn - í versta falli að ýta honum upp á vegkanntinn aftur.
Útlendingarnir: What are you gonna do?
Íslendingarnir: First ví reip jú - Þen ví ít jú



Góður!! Kv, Hilmfri

sunnudagur, mars 26, 2006

Davíð!! ég hef verið að hugsa um þig...


Jæja. Helgin. Var. Snilld!
Það er nú kannski komin tími á að við förum að hugsa aðeins um þetta blessaða blogg okkar!! Hildur, hvernig líst þér á það??? Koma með meira grín, fleiri myndir og hressari færslur!!
Ég skal taka fyrsta skrefið...Hérna kemur það!

Helgin fór fram úr mínum björtustu vonum!!
Á föstudaginn vorum við Hildur úberhressar í PI með AFS á kjantinum!! Starfsfólk AFS skrifstofunnar fær + fyrir að splæsa nammi á línuna! Síðan var fjölskyldukvöld!!
Þar sem fjölskylda mín er ótrúlega samrýnd, frábær, krúttuleg og eiginlega bara fullkomin ákváðum VIÐ að fara saman út að borða. Við skelltum okkur á Ítalíu og eftir á ætluðum við í bíó. en eins og þeir sem hafa setið að snæðingi á Ítalíunni vita að það er ekkert hlaupið að því að klára réttina sína. Þetta er e-ð prank hjá þeim að hafa þá svona ofboðslega stóra!! Og sökum ofáts meikuðum við bara alls ekki að fara í bíó. Skelltum okkur niðrí Snæland og leigðum böns af dvd og tróðum okkur í TV-sófann og gláptum á fullt af vídjó(nei bara 1, vorum svo þreytt og fórum svo að sofa:)
Laugardagurinn var líka helgaður fjölskyldunni. Mætti eldhress í þessa líka rosa tæknivæddu skírn hjá móðursystur minni. ÞAr sem 2 af 5 systrum mömmu gátu ekki verið viðstaddar og skírnin var haldin heima. Þá var bara skellt webcameru á og þær horfðu á þetta allt í beinni. Við gátum meiraðsegja rabbað við þær og alles. ekki leiðinlegt°! Svo eftir að Elmar var skírður lá leið mín í Hvannhólmann eins og svo oft áður.
Við Bína, Hildur og ég skelltum okkur í afmæli til Sólveigar þar sem boðið var uppá þessar líka fínu guðaveigar:) Horfðum á ódauðlegt myndband úr sumarbústaðnum f. jól. EFtir það afneitaðu Hildur Mist mér sem vinkonu....

Svo kom rúsínan í pylsuendanum: GUSGUS!! Þetta var snilld!! Byrjaði á því að ég týndi miðanum hennar Hildar,en þar sem NASA er svo heppið að vera með svona líka frábæra dyraverði hleypti gæjinn okkur bara inn!! En svo seinna um kvöldið fann ég miðann hennar...mjög dularfullt. Við hittum þarna fullt fullt af fólki og ég var rænd á barnum. Um heilar 700kkr...efast um að ég nái mér í bráð!! En svo fann ég strák sem gaf mér áfallahjálp og þá varég góð sko. Svo skelltum við okkur á 11una, hún stóð undir væntingumeins og svo oft áður. Tjúttuðum þar aðeins við ýmsa aðila. Stuð. Hlölli kom svo sterkur inn, eða þ.e.a.s. áður þangað til ég uppgötvaði að það var ananas helvíti á honuM!! það var ekki vinsælt. nema hjá stelpunni sem fannst ofboðslega fyndið að ég væri að skyrpa ananansum útúr mér. Svo hittum við líka læknanemann sem skoðaði á mér ristina(er sko ristarbrotinn or some) og braut í leiðinni e-ð sem ég hélt að væri trúnaðareiður og fór að básúna því um alla taxiröðina hvernig ég væri nú í fætinum. Það kom nú ekki að sök, en þetta hlítur að vera e-ð prinsipp, meina ef hann hefði verið læknanemi á húð&kyn væri ég ekkert alltof hlynt því að fá öskrað yfir lækjargötuna hvort að sýklalyfin sem ég væri á virkuðu ekki örugglega....Þið skiljið hvert ég er að fara?

Svo var sunnudagurinn bara klassíkin í rúminu allan daginn og svo bíó um aftenen. Fórum á Tristan& Isold. Sjaldan séð jafnmikið að heitum mönnum..uff. Það er e-ð við svona víkingamyndr; mennirnir allir rosa grófir, skeggjaðir, harðir og ég veit ekki hvað, þetta er bara alltof heitt !! Er ekki hægt að redda tímavél og ferðast aftur til þessa tíma þegar Njáll og Gunnar voru uppi...ég myndi ekki segja nei við því tækifæri!!

Svo er bara að halda áfram að telja niður daga að páskafríinu og DK...

miðvikudagur, mars 22, 2006

Hahahehehihi

Haha ég varð bara að smella þessari mynd hérna inná. Ætlaði sko að setja hana í færsluna hérna á undan en fannst við e-ð svo kjánalegar en svo fór ég að skoða þetta nánar og sá hvað þetta er nú fyndin mynd, sértstaklega eftir að ég fattaði að karen er þarna fyrir aftan "alveg að flippa á djamminu".... HAHAHA

Lítið hús

Eins og margir vita átti ég afmæli á mánudaginn og er því orðin 19. ára gömul. Mig langar að þakka öllum sem sendu mér blóm og heillaskeyti í tilefni dagsins, það gladdi mig ólýsanlega. Einnig vil ég senda kveðju til þeirra sem gleymdu afmælinu mínu eða allavegana af e-m ástæðum hringdu ekki (karen *hóst* Freyja *hóst*) :-)
En já helgin var fín, ég var að vinna og það var nú bara hin besta skemmtun eins og oftast. Svo var fjsk. afmæli heima hjá pabba á sunnudaginn fyrir Hrannar og smá mig líka (systkini sem eiga sama afmælisdag eru nú ekki á hverju strái). Svo var um kvöldið matarboð heima hjá mér þar sem ógeðslega góður kjúklingaréttur var í matinn, Lilja getur sko stutt og sannað að hann sé einn sá besti sem fólk hefur bragðað. Svo gerðist það nú..... já við loksins loksins fjárfestum í flugmiðum til Köben. Það gekk vel en ég var næstum hætt við því að ég þurfti að borga 2600 kr. svona eiginlega til einskis fyrir forfallatryggingu sem ég vonandi þarf ekki að nota og sko kostaði 1000 kr. meira að fljúga með seinni fluginu en því fyrra en betra þótti að fara fyrr um daginn. En ég er nú svona meira að fíflast með þetta en ekki... :-) Elska þig Bína mín.
Svo þegar ég mætti í skólann á sjálfan afmælismorguninn var e-r ljúglingur búin að koma með köku mér til heiðurs sem var á borðinu mínu, en það var enginn önnur en hún Lilja litla sem einnig kom og söng afmælissönginn f. mig seinna um daginn.
Um kvöldið ætluðum við heldur betur að gera okkur glaðan dag, fara niður á Rósenberg og taka smá krossorðaspilskeppni og kenna Bínu þetta undur veraldar í leiðinni. En þegar þangað var komið var hvorki meira né minna en lokað vegna þess að það var verið að mála svo við þurftum að fara annað og Prikið varð fyrir valinu í þetta skipti en því miður gátum við ekki farið í krossorðaspilið...Vá hvað þetta er innihaldslaus færsla, en þar sem ég er að fara á stæ.próf á eftir og ætti að vera að læra fyrir það er allt skemmtilegt fyrir mér á þessari stundu annað en að læra að reikna út staðalfrávik og e-ð um Z-stig... Úff

Nú fer brátt að líða að júróvisjón og í tilefni þess ákvað ég að skella þessari skemmtilegu mynd hérna inn... Hún er einmitt tekin fyrir tveimur árum (vá hvað tíminn líður) í einu besta partýi sem ég man eftir. Og hér með skora ég á Líneyju að endurtaka leikinn í ár :-)

fimmtudagur, mars 16, 2006

íslenska, íslenska, íslenska



Eins og fyrirsögnin ber raun vitni er íslenska málið þessa dagana, allavegana hjá mér. Veit ekki með ykkur en þetta ylhýra mál okkar sem búum á þessari einstöku eyju er alltaf að koma mér meira og meira á óvart. Ekki nóg með að þetta sé uppspretta alls hins fallega, góða og rausnarlega í lífinu hefur þetta líka orðið ein af ástæðunum að mig langar stundum að flytja til útlanda og aldrei koma aftur...en nóg um það.

Kristján kappi vinur vor er að fara að gera "walk off" í kvöld, allir að mæta í Smáralind að sjá kappann!! Ekki margir jafn fjallmyndarlegir og hann Kris minn. Maður mætir náttla að styðja drenginn! Gettu betur hvað?? Læt sko bara taka það upp!!

Hélt fyrirlestur í dag um Hallgrím Helgason, maðurinn er snillingur. Verð að birta hérna brot úr viðtali sem við tókum við manninn...hann er frábær
Við báðum Hallgrím semsagt um að segja okkur örstutt frá æsku sinni:
....Í Ríkisútvarpinu var einn þáttur helgaður dægurlögum og þau fengu aðeins þeir að velja sem voru alvarlega sjúkir og lágu á spítölum borgarinnar. "Óskalög sjúklinga" hét sá þáttur. Okkur krakkana dreymdi því öll um að fá krabbamein og leghálskirtil: við ætluðum að verða sjúklingar þegar við yrðum stór...Hann deildi líka með okkur mikilvægustu lexíunni sem hann lærði í MH:...Og líklega er þetta það eina sem maður lærði í MH: að þeir sem eru villtastir í skóla verða spilltastir í lífinu. Þeir sem ungir gefa skít í kerfið eru tilbúnir að éta hann fyrir það síðar.
Hvað finnst ykkur? Er þetta satt og rétt? Ég læt þetta ekki vera lengra í bíli. Ég er farin upp í Mekku Kapítalisma eins og "við MH-ingarnir" köllum Verzlunarskóla Íslands....hasta la vista, baby

miðvikudagur, mars 15, 2006

Home sweet home

Já, þetta var nú meiri andsk... ferðinn! En samt hress svona ef maður lítur til baka. En ég ætla nú ekkert að hafa þetta langt núna, er að drepast úr þreytu eftir langt og strangt ferðalag (komum með Herjólfi og þurftum svo nokkur að fara aftur á Bakka að ná í bílana) þó svo að ég afi sofnað meðan ég var að bíða eftir Sex And The City í gærkvöldi. Það byrjar klukkan 22:50 svo ég rotaðist um hálf ellefu (frétti svo í morgun af ægilegum prakkarastrikum sem áttu sér stað er rökkva tók), svaf líka í helvítinu honum Herjólfi eins og Lilja komst svo skemtilega að orði. Er samt núna að lognast útaf, bara bíða eftir Missing á stöð 2 plús en svo er það bara uppí rúm....

Bið að heilsa í bili...

þriðjudagur, mars 14, 2006

Veðurtepptar, í Vestmannaeyjum!!





Þegar Hildur sagði mér að hún væri að leggja upp í langferð alla leið suður til Írlendingaeyju leist mér nú ekkert allt of vel á blikuna. En þar sem hún og samferðalangar hennar myndu ferðast í flugvél frá Bakka en ekki helvítinu honum Herjólfi sætti ég mig við þetta.
Jæja þær flugu þarna suðureftir og öttu kappi við ÍBV stelpurnar og báru sigur úr býtum. En sá böggull fylgdi skammrifi að þær urðu barasta veðurtepptar!! Það er semsagt vindur úr öllum áttum þarna í Eyjum og svo kom líka í ljós að flugrörið var bilað hvort eðer...Frábært. En þetta reddaðist. Þær(og Hilmar) fundu þetta líka fína gistiheimili, þannig þetta lítur út fyrir að verða bara ansi kósý hjá þeim. Út að borða á Pizza 67..gerist ekki betra:) Svo er líka alveg búið að redda morgundeginum! Þær taka bara Herjólf, keyra frá Þorlákshöfn til Bakka og þaðan í bæinn!! Ekki nema eins og heils dags seinkun!! Hver væri ekki til í þetta ha?? Vera fastur í Eyjum...Allavegana er ég græn af öfund!!
Og við sem vorum að fara að kaupa flugmiða til DK í kvöld....það virðist seint ætla að gerast. Fólk er veðurteppt, óundirbúið, fátækt...þetta er skítt sko. En þetta hlýtur að takast á endanum.

föstudagur, mars 10, 2006

Heldurðu það sem ég held? Já ég held það...


Jæja, þá er þetta blogg okkar orðið opinbert! Ég ætlaði nú að kommenta hressilega á færsluna hennar Hildar en ég hef svo mikið að segja að það er best að koma því bara að hérna. Og byrjar lesturinn;
Það er fyrir löngu orðið deginum ljósara að ég og Hildur eyðum ómældum tíma saman, svo miklum að það hafa verið vangaveltur um hvort við séum kærustupar. Jæja, eftir allan þennan tíma er maður farin að kunna soldið á hana Hildi. Eða bara alltof mikið, þetta fer að vera óhugnalegt í meira lagi.
dæmi:
1.Í fyrradag segir Hildur ,,mmm mig langar í e-ð rosalega gott" Ég: ,,ókei, förum í Vesturbæjarísbúðina!!" og það var einmitt það sem hún var að hugsa.

2. Í gær á sátum við á bekknum og vorum aldrei þessu vant djúpt sokknar í handboltaleikinn HK-Haukar sem við vorum að spila í. Hildur lítur á mig og segir ,, ohhhh" og ég svara um hæl ,, já ok, við skulum hafa gististund(hvernig orðið gististund kom upp í huga mér er ennþá óleyst ráðgáta) En viti menn, ég hafði rétt fyrir mér!! Þetta fer að verða soldið spúkí sko.

3. Alltaf batnar það. Í dag byrja ég að skrifa færslu hérna inná og var bara búin að setja mynd inná en þurfti svo að hætt við sökum anna. Hvaða mynd önnur varð fyrir valinu, en sú sem Hildur setti inn í færslunni hér á undan !!!!

Við förum að hætta að þurfa að tala upphátt saman bráðum!! Nehhh, þá yrði svo leiðinlegt fyrir Hilmar.
Hvað ætti hann þá að gera af sér í öllum leikjunum okkar? Engin til að hlæja að, ranghvolfa augunum eða verða kjaftstopp yfir!! Nei ég held við höldum okkur við talmálið góða þangað til aðrir hafa þróað með sér hugsanalestur.