Lífið og tilveran. ég er að læra, og læra og læra. og læra svolítið meira. kennarar skólans eru orðnir eins og mínir nánustu vinir. fyrirlestrar þeirra eru sem ljúf tónlist í eyrum mínum. þegar þeir byrja að mala segi ég eins og wagner vinur minn;
,,ég gjarnan áfram vakað hefði hér
að hafa hið lærdómsríka tal við yður.
Ég vona að ennþá spyrja margs ég megi
á morgun, fyrsta páskadegi.
Að vizkunámi sífellt ég vinn af kappi og hita
og veit nú margt, en þyrfti allt að vita."
Goethe. 1790. bls. 42
þetta eru nú þónokkrar ýkjur. lífið er fínt. ég(helga sif, fram að mánaðarmótum) var að fjárfesta í þessu forláta veggfóðri sem mun prýða herbergisvegg minn e-n tímann eftir jól. öllum er boðið í kaffi/te-boð til að skoða herlegheitin þegar að því kemur.
er svo bara búin að vera í fitness boxinu, það gengur framar vonum. að mínu mati. þjálfarinn minn er á öðru máli. hann er alltaf að skamma mig fyrir að vera ekki búin að léttast og ég veit ekki hvað. segir mér að hætta að drekka bjór og þar fram eftir götunum.....potar í magann á mér í tíma og ótíma og hnussar, hringir svo í mig þegar ég mæti ekki á æfingu og spyr hvort ég sé nokkuð að borða?? ef þetta er ekki ávísun á átröskunarsjúkdóm veit ég ekki hvað....
fór að vinna á lækjó áðan. það var indælt eins og alltaf. endaði svo á rósenberg og hitti hildi mína. það var ljóshært+greitt til hliðar+artsý hárgreiðsluþema hjá starsmönnum bergsins. vakti mikla kátínu. ég sá líka manninn sem ég plataði uppúr skónum með því að segja að hildur byggi í 104 með kærustunni sinni og að þær ættu púðluhund. (örýkjur) hann var búin að komast að sannleikanum...það er líka ljótt að plata. :) ég endaði semsagt kvöldið á að fá mér feitan/léttan hlölla.
ég ætlaði mér að skrifa miklu miklu miklu miklu meira þannig að karen nenni pottþétt ekki að lesa þetta. ef hún hefur komist alla leið hingað niður að þessari setningu vil ég benda henni á að við buðum henni ekki að vera hluti af þessari síðu nema hún drattist af stað og skrifi e-ð....

létt nostalgía
2 ummæli:
va snildar mynd.....ekki hefurðu nu mikið breyst i andlitinu...en likar nu betur vid klippinguna sem ad þu ert med nuna heldur en þarna....er samt alveg viss að þu hafir verið i tisku þarna....enda mikil tiskudros :)
haha, mér finnst blómasmjörið langt flottast a þessari mynd... En já þetta með samkynhneigð mína var fyndinn djókur, kannast reyndar ekkert við þetta með púðluhundinn en hló upphátt þegar ég las það.... Já, djö vorum við ógeðslega töff í gær, ég, Hjalti og Viktor... Greinilega alveg þvílíkt móðins öll þrjú :) Skondid að hafa verið öll með stutt hár sömu megin samt.... En jæja ég er farin í sturtu núna, í bíó í kvöld og svo er missjón eftir það :) :)
Skrifa ummæli