fimmtudagur, október 19, 2006

Frábær morgun

Morguninn í morgun var frábær. Ég vaknaði og hélt ég myndi deyja úr kulda, drattaðist samt fram á bað og fór í sturtu með bláu og hvítu baðhettuna mína. Hún er ofboðslega smart. Svo eftir sturtu og fyrir morgunmat grætti ég systur mína. En trúið mér, she had it coming! (nenni ekki að fara útí þá sálma) fékk svo samviskubit ca 235 sek seinna og sendi henni sms....Ég get aldrei haldið neitt svona út...
Það er að koma helgi takk fyrir takk. Líkt og svo oft áður ætla ég að gera mér glaðan dag. Þórfríður ætlar að leggja leið sína í höfuðborgina og við Hildur Mist höfum ákveðið að guida hana í tætlur!! Það verður ekki til sú leynileið, húsasund né mönsj sem hún ekki þekkir eftir þetta! og Hana nú!


Kæja Pæja er víst orðin meðlimur í þessu bloggi. Vonandi að hún geti rifið þetta upp til fyrri virðingar þar sem við stallsysturnar vorum orðnar ansi latar við skriftirnar.
Af því tilefni ákvað ég að láta hér fylgja nokkar gagnlega upplýsingar um hana Karen okkar;

Karen og co.
Karen og fjölskylda
Karen dót
Karen úthverfi

ég sjálf

í húsi eymdarinn er ekkert sem ég get gert mér til
tjahh hugaró -ar
ef bara aðeins einungis í eitt skipti að ég gæti fengið
meðaumkun
vonarneista
lífsvelunnun
ef ég hefði flökktandi jón í kvenkyni
þá væri einsemdin ekki svona


Karen Rúnarsdóttir
1987-

Hér er svo mynd af stelpunni


Vona að þetta veiti ykkur smá innsýn í heim Karenar sem er hvorki lítill né venjulegur.

Ég bið þig velkomna Karen, Heil þér!


1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

what the fuck eg er buin ad lesa svona 100komment sem folk hefur skilið eftir akkurat herna til þss að lofa þssa akvörðun ykkar að taka mig með og siðan hafa þau bara strokast ut