fimmtudagur, maí 18, 2006

Ég óska þess að þú sért hér....

Heyrðu það er þá barasta komið að mér !! Hildur búin að setja fram tilgátu um ástæður bloggleti mínu og ég get ekki gert annað en sannað eða afsannað þessar tilgátur hennar!
Tilgáta A: Hildur á sér ekkert líf og þar af leiðandi hefur hún meiri tíma til að blogga.
Tilgáta B: Ég á mér innihaldslítið líf sem er tilgangslaust að segja frá.

Til að Tilgáta A standist þyrfti Hildur að vera sérstaklega leiðinleg og óspennandi manneskja sem ætti enga vini og hefði ekkert betra að gera en að segja frá aumingjalegu lífi sínu. Þessi tilgáta brotlenti áður en ég gat klárað að lesa hana til enda! Hildur Mist Friðj.Ottes. aka minn BFF er einstaklega hress og skemmtileg stelpa og lifir fyrir fátt annað en "Carpe Diem"(grípið gæsina á meðan hún gefst) og "La vida es ahora"(lífið er NÚNA). Þannig er það algjörlega ómögulegt að ætla að hún bloggi vegna lífsleiða og leiðinlegra daga.

Þá komum við að Tilgátu B: Það er gefin staðreynd að ég er mun latari og ónennari en Hildur. Ég beila oftar á hlutum eins og djammi, sumarbústaðarferðum um miðjar nætur o.s.frv. Allt vegna gífurlegrar síþreytu(sem var reyndar einu sinni vegna járnskorts, en það er önnur saga). Ég kaupi aldrei neitt á kaffihúsum og fer ein í göngutúra um verslunarmiðstöðvar. En þrátt fyrir allt þetta er ég samt BVAE(BFF) hennar Hildar. Og í því felst að næstum allt sem ég geri, geri ég með fröken Hildi. Það þýðir að meira og minna allt sem ég skrifa um fjallar um Hildi. Sem þýðir líka að ég get ekki verið að blogga um leiðinlega hluti!
Mín niðurstaða er því sú: Ég er einfaldlega bara löt.(sjá mynd)

Svo þarna hafið þið það.

miðvikudagur, maí 17, 2006

Þetta fer nú að verða svona eins og í denn þegar Gréta og Telma opnuðu tölvunördana (jamm, þið lesið rétt, Telma átti einu sinni blogg) en svo leið ekki að löngu þar til Telma helltist úr lestinni og Gréta því eini sómasami eignadi síðunnar í dag... Bína var nú reyndar hluti af nördunum líka í e-n tíma, en Gréta er semsé ein í dag. Það sem ég vildi sagt hafa með þessu er það að ég er nú sú eina af okkur tvíeikinu sem virkilega skrifa hérna inna með reglulegu millibili, allavegana þessa dagana. Það er spurnig af hverju það stafar, kannski vegna þess að ég á mér innihaldslausara líf en Lilja og hef því ekkert annað að gera en að skrifa færslur í tölvudagbók, eða jafnvel að líf mitt sé mun innihaldsríkara því að svo virðist vera sem Lilja hafi ekki frá neinu að segja. Svona er nú leikurinn skemmtilegur, alveg hægt að sjá þetta algjörlega frá tveimur hliðum og komast að svona líka mismunandi niðurstöðu. En það sem ég átta mig eiginlega á er það að öll mín skrif snúast um Lilju líka því þar sem önnur okkar er, er hin sjaldnast langt undan. Þannig að það væri sennilega bara um endurtekningar að ræða ef við skrifuðum alltaf báðar um það sem á daga okkar drí/ýfur :-) Þannig að við verðum að reyna að skipta vikudögunum bróðurlega á milli okkar, þannig að hver fær þrjú stykki og svo einn hálfan dag...
Nóg af vitleysu í bili...

þriðjudagur, maí 16, 2006

Við fáum þessar pillur til að kyngja, hvernig þær festast í hálsinum á þér, smakkast eins og gull...

Þá eru báðir meðlimir lautarferðarinnar búnir í prófum... Til hamingju með það!! Fékk þá spurningu í gær hvers vegna fólk óskaði hvert öðru með það að vera búin í prófum... Vissi ekki svarið. Svo hélt sá hinn sami áfram og sagði að þetta væri kjánalegt þar sem að maður er í skóla af fúsum og frjálsum vilja og hvers vegna er maður þá glaður að losna?? Ég var nú ekki alveg sammála þessu því að auðvitað er alltaf gaman þegar svona strembnum tímabilum yfir líkur, hvort sem að maður skipaði sig sjálfur í þá stöðu eður ey....
Að öðru, í dag eru akkúrat 6 vikur í DK babý og ég er ekki frá því að hún Lilja sé að verða bara nokkuð spennt... :) Gaman að því. Hlakka samt mest til að hitta tilvonandi meðleigjanda okkar, hann er frá Austuríki en ég man reyndar ekki hvað hann heitir í augnablikinu. Vonandi hinn blíðasti drengur, ekki það að ég sækist samt eftir blíðu hans. Við getum talað þýsku alla daga, Lilju til mikils ama og ég græt nú ekki svoleiðis tækifæri. Vonandi bara að hann sé ekki típann sem vill hafa hljóð kl tíu þegar hann fer uppí rúm.... Það verður hræðilegt ef að hann er þannig. Býst nú samt ekki við því þar sem að hann er frá Austurríku og býr í DK, þá er hann nú sennilega maður fyrir einn eða tvo á fallegu sumarkvöldi í júlí.
Ég er að fara uppí elsku Hjallaskóla í fyrrmálið að halda AFS skólakynningu, vona að það eigi eftir að ganga sem skildi... Svo á fimmt erum við fínu frúrnar að fara á Lækjó eins og ég greindi frá í seinustu færslu. Þá verður það bara Bailey´s við kleiks í fordrykk, svo humarveisla sem samanstendur af humarsúpu í forrétt, humri í aðalrétt og svo e-r ægilega girnilegum eftirrétt... Eftir það er kvöldið óákveðið, en við finnum okkur sennilega e-ð skemmtilegt til dundurs.

......Seinna...

laugardagur, maí 13, 2006

Ég get ekki lifað ef að lifa er án þín...

ok guys... Ég er svo æst að ég verð bara aðeins að blogga... Var að koma heim úr vinnunni og veit ekkert hvað ég á að fara að gera. Eða jú ég ætti að vera að fara að sofa en einhverra hluta vegna er ég svo spennt. Veit ekki hvers vegna en jú að e-m hluta er það útaf ég hlakka svo svakalega til þess að fara til DK og það er sssvvvoooo stutt þangað til að ég dey bara. En vinnan var fín, ég bara átti ekki orð hvað það byrjaði að birta snemma, bara komið sumar og allt að gerast. Og alveg stappað í bænum í kvöld í samræmi við það. En já svo er bara eitt próf eftir og það er hagfræði á mánudaginn og ég byrjaði heldur betur bara að læra fyrir það í dag því að ég varð að taka smá auka vinnu í kvöld og annað kvöld þannig að ég verð að vakna snemma í fyrramálið og læra mestallan daginn á morgun og líka á sunn... Það þýðir ekkert núna að byrja að læra kvöldið fyrir prófið eins og stundum því að á sunn.kvöld er staffapartý og þá verð ég að vera búin að lesa allt svo ég geti farið í það, eða megi fara í það.
Hraun er náttlega ekkert annað en besta hljómsveit allra tíma og ég veit að þeir sem hafa heyrt þá spila eru meira en sammála mér í því. Þeir verða sennilega að spila næstu helgi á Rósenberg en þá er reyndar júróvisjon svo ég veit ekki hvað verður. En ég og Lilja ætlum að vera rosa kúl og beila á júróvisjón í ár og fara á fimmtudaginn út að borða á Lækjarbrekku (við erum fínt fólk) og fá okkur svo kannski einn eða tvo svona í tilefni af því að prófin eru búin. Hvort við eigum það skilið er hins vegar annað mál. Veit reyndar ekki með laug. ef að Silvía kemst áfram í Júró en ætli við verðum ekki bara báðar að vinna þá. Ætlum nefnilega að vera í fríi helgina á eftir þar sem að það er heill hellingur af stúdentsveislum þá. Svo er það bara vinna, vinna, vinna og svo DK baby :) Vona að veðrið haldi áfram að vera svona gott eins og það var sérstaklega í byrjun vikunnar, þá gat maður heldur betur skellt sér niður á Austurvöll í góðum fíling. Minnir mig nú bara á forðum daga á Hótel Öld en það var einmitt ósjaldan sem ég læddist þangað niðureftir eftir vinnu....
En jæja komin tími á að fara að sofa smá í hausinn á sér (finnst svo kjánalegt þegar fólk notar þennan frasa) ef ég ætla að byrja að læra eftir 5 tíma.... góða nótt

föstudagur, maí 12, 2006

Ég er rebell, já ég er rebell. Sjáðu mig dansa, sjáðu mig dansa...

Ég ætlaði að skrifa hérna eina góða, innihaldsríka færslu... En um leið og ég var búin að logga mig inn þá hvarf eldmóðurinn. Veit ekki hvert hann fór, né hvaðan hann kom í fyrstu en látið mig vita ef þið verðið e-u nær um það hvar hann heldur sig....

sunnudagur, maí 07, 2006

Ég er að fara í flugvél, veit ekki hvenær ég kem heim...




Já hve mikil ósköp! Nú er sko komið að Lilllí Dí from ðe k ó P að láta ljós sitt skína!! Ég er búin að vera hundlöt við að skrifar flippaðar færslur og segja frá atburðum liðinna daga. Vil byrja á föstum liðum eins og venjulega

1.Hildur og Rósenberg; Afar óaðlaðandi og aldurhniginn kona reyndi pent við Friðjón okkar, hann er skaddaður fyrir lífstíð. Hildi var boðið að hitta ákveðinn einstakling af ákveðinni Brennslu á ákveðnum stað á ákveðnum tíma, hún er enn að hugsa málið. Einstaklingar sem féllu fyrir styrkum armi Hildar: NÚLL.

2. Heimskupör Lilju; Þar sem ég hef verið einkar ötul við að bæta úr mínum málum í þessari deildinni er ekkert frásagnarvert! HA!! (ef e-r er á öðru máli, er henni/honum leyfilegt að skrifa sínu máli í þar til gerðum dálki)

3. Merkilegasta atvik vikunnar: Þegar ég kom til Hildar í dag hafði hún keypt handa mér gjöf, ekki hvaða gjöf sem er. Ónei, hún keypti handa mér stígvél:D Bleikröntt stígvél!! Og appelsínugul handa sér(hún leyfði mér að velja lit;) Djöfull verðum við flottar á Hróarskeldunni í þessum kvikindum!! Ég set inn myndir við fyrsta tækifæri, ef ekki bara myndaseríu!! Hún fær stórt knús fyrir þetta frábæra framtak!! Annað sem þess verðugt að fá rokkprik. Við stallsysturnar erum búnar að borga íbúðina í DK!! Ekki slæmt!! Svo eina sem þarf að gera núna er að vinna sér inn smá eyðslufé!

Helgin hefur verið hin rólegasta. Öll familían heima hjá ömmu í gær, svaka gleði. Endaði í náttfatapartý heima hjá mér þar sem 5 af 9 frændsystkinum gistu öll og horfðu á myndbönd langt fram eftir nóttu!!(kl. var reyndar bara 1:30...en þetta var búið að vera LANGUR dagur!!!) Svo fór öll herlegheitin í sund í dag í góða veðrinu og svo á Scary Movie 4 sem ég ráðlegg engum að fara á....por favor!!

Prófahelvítin(töff töff) byrja svo í næstu viku þannig að Saadia, Hildur og ég erum búnar að sitja sveittar að lærdómi hérna í Hvannhólmanum. Enda er Hildur orðin útkeyrð og sefur hérna á sínu græna við hliðina á mér..Þessi ungdómur!

Hasta la vista baby!!

fimmtudagur, maí 04, 2006

Sjáðu hvernig þær skína fyrir þig...

Ég er náttlega bara on fire núna í bloggunum sko.
Það er svona eins og við Lilja vorum einmitt að tala um áðan sko, prófatíminn er alveg rosalega nice tjill tími. Maður vakir fram eftir og gerir það sem mann langar til eins og við í dag. Vorum að útrétta og svona en samt í raun er þetta líka versti tími ársins því maður er svona smá stressaður... Hugsar "oh, af hverju er ég ekki að læra núna, heldur að gera e-ð allt annað".

Talandi um að við vorum að útrétta þá skelltum við okkur í bankann í dag (eins og við Telma hérna um árið klukkan átta um morgunin) og borguðum fyrir íbúðina okkar í DK. Þannig að það er heldur betur bara allt orðið klárt og búið að borga allt... Þannig að tekjurnar fram að ferðinni fara bara í eintóma skemmtun, ekki slæmt það :)
En já við erum búnar að vera að tala um þetta núna fram og til baka og plana hvert einasta smáatriði, ekki það að það sé þörf fyrir að gera það núna svona snemma. Heldur er spenningurinn bara að fara með fólk. Enda hugsa ég að þessi ferð verði alveg eintóm gleði, eða ég vona það allavegana.
Annars er það að frétta að ég var í íslensku í gær sem gekk bara ágætlega. Fer svo í næsta próf á föstudaginn en það er einmitt danska, bæði munnleg og skrifleg. Hef nú ekki miklar áhyggjur af skriflega partinum þar sem ég skil það nú flest allt. Munnlegi hlutinn er hins vegar allt önnur saga... Því að þegar ég á að tala dönsku þá kemur ekkert annað en þýska út úr mér... Alveg mjög slæmt það. Reyni samt bara að gera eins og Helga sagði mér og það er að ef ég veit ekki hvernig ég á að segja e-ð segi ég það bara á þýsku með dönskum hreim. Nefnilega ansi mörg orð sem eru svakalega lík ef ekki bara eins á þessum tungumálum.
Í færslunni hérna á undan talaði ég aðeins um Chris Martin og Helga kommentaði og kvaðst vera sammála mér um hann en minntist hins vegar á að Soffía frænka hefði e-ð skemmt ánægjuna fyrir henni. Ég verð að fá að segja aðeins frá því atviki. Það var semsagt þannig að við vorum í jólaboði á annan í jólum að mig minnir heima hjá Diddu frænku og vorum að horfa á Coldplay tónleika. Við sátum þarna allar stjarfar og horfðum á þennan mikla meistara og ræddum það hversu sexy hann er... Þá heyrist í Soffíu: "Hann er svo sexy að mig langar til að sleikja af honum svitann". Þessi setning gleymist seint hjá flestum okkar held ég og hefur valdið mikilli vanlíðan og martröðum. Það eru nú samt liðinn meira en tvö ár síðan þetta átti sér stað en er okkur systrum í minni eins og gerst hafi í gær og það er allt annað en ánægjulegt og e-ð sem við viljum vista í hausnum það sem eftir er...

Takk fyrir mig.

miðvikudagur, maí 03, 2006

Hvað er það?

-Lilja er komin heim frá DK
-Ég elska röddina í Chris Martin
-Freyja sagðist stolt af mér fyrir að vera ekki hnakka-stelpa í bleiku eins og í 9.bekk
-Litli bróðir minn sagði einu sinni að e-r kona væri "bleik kelling eins og Hildur Mist"
-Útaf hverju er miklu auðveldara að vera hress á kvöldin en á morgnanna?
-Það eru 56 dagar í DK baby
-Tvær vikur í prófalok
-Hvernig heilsast hestar?
-Útaf hverju er svartur vinsælasti liturinn þó svo að flestir segist halda mest uppá rauðan eða bláan...?
-Ég á miða á Robbie Williams í Þýskalandi í ágúst... vandinn er bara sá að flugið kostar líka peninga.
-Af hverju er ekki gaman að versla föt á Íslandi?
-Af hverju langar mann bara í það sem maður ekki fær?
-Það var Kínverji sem lagði gamlann mann í einelti á Hverfisgötunni í gær
-Ég og Saadia fórum í Bílanaust til að kaupa köku í dag
-Fólk er fífl
-Árið er næstum hálfnað
-Sumarið er tíminn...
-...vorin líka
-Ungl. flokkur kvk í HK afrekaði það um helgina að verða Íslandsmeistarar um helgina
-Tveir titlar höfn og geri aðrir betur
-Hvað varð um hnébuxurnar?
-Til hvers að sitja þegar þú getur legið?
-Mig langar í útilegu í sumar
-Hver er listin að lifa?
-Leiðrétting: "Einn dans við mig" en ekki "Einn dans fyrir mig"
-Það síðara hljómar samt betur
-Hvernig getur fólk borðað lauk eins og epli?
-Ég elska bingó kúlur

Jæja lesendur góðir, til hamingju með að hafa lesið bestu færslu allra tíma.
Sjáumst!!