laugardagur, maí 13, 2006

Ég get ekki lifað ef að lifa er án þín...

ok guys... Ég er svo æst að ég verð bara aðeins að blogga... Var að koma heim úr vinnunni og veit ekkert hvað ég á að fara að gera. Eða jú ég ætti að vera að fara að sofa en einhverra hluta vegna er ég svo spennt. Veit ekki hvers vegna en jú að e-m hluta er það útaf ég hlakka svo svakalega til þess að fara til DK og það er sssvvvoooo stutt þangað til að ég dey bara. En vinnan var fín, ég bara átti ekki orð hvað það byrjaði að birta snemma, bara komið sumar og allt að gerast. Og alveg stappað í bænum í kvöld í samræmi við það. En já svo er bara eitt próf eftir og það er hagfræði á mánudaginn og ég byrjaði heldur betur bara að læra fyrir það í dag því að ég varð að taka smá auka vinnu í kvöld og annað kvöld þannig að ég verð að vakna snemma í fyrramálið og læra mestallan daginn á morgun og líka á sunn... Það þýðir ekkert núna að byrja að læra kvöldið fyrir prófið eins og stundum því að á sunn.kvöld er staffapartý og þá verð ég að vera búin að lesa allt svo ég geti farið í það, eða megi fara í það.
Hraun er náttlega ekkert annað en besta hljómsveit allra tíma og ég veit að þeir sem hafa heyrt þá spila eru meira en sammála mér í því. Þeir verða sennilega að spila næstu helgi á Rósenberg en þá er reyndar júróvisjon svo ég veit ekki hvað verður. En ég og Lilja ætlum að vera rosa kúl og beila á júróvisjón í ár og fara á fimmtudaginn út að borða á Lækjarbrekku (við erum fínt fólk) og fá okkur svo kannski einn eða tvo svona í tilefni af því að prófin eru búin. Hvort við eigum það skilið er hins vegar annað mál. Veit reyndar ekki með laug. ef að Silvía kemst áfram í Júró en ætli við verðum ekki bara báðar að vinna þá. Ætlum nefnilega að vera í fríi helgina á eftir þar sem að það er heill hellingur af stúdentsveislum þá. Svo er það bara vinna, vinna, vinna og svo DK baby :) Vona að veðrið haldi áfram að vera svona gott eins og það var sérstaklega í byrjun vikunnar, þá gat maður heldur betur skellt sér niður á Austurvöll í góðum fíling. Minnir mig nú bara á forðum daga á Hótel Öld en það var einmitt ósjaldan sem ég læddist þangað niðureftir eftir vinnu....
En jæja komin tími á að fara að sofa smá í hausinn á sér (finnst svo kjánalegt þegar fólk notar þennan frasa) ef ég ætla að byrja að læra eftir 5 tíma.... góða nótt

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já Hildur það var ekkert lítið hvað þú varst hress í gær! Öll þesssi skrilljon sms sem þu sendir komu einmitt í gær og voru ekki lítið pirrandi!!
Eeeeen það eru bara 6 og 1/2 vika í DK!!!

Nafnlaus sagði...

"..sofa smá í hausinn á sér (finnst svo kjánalegt þegar fólk notar þennan frasa)"
- haha já. Rosa kjánalegt að heyra aðra segja þetta en það er fátt jafn skemmtilegt og að segja þetta sjálfur.

gangi ykkur vel í því sem eftir er af prófunum =)

Big Bird a.k.a. BB sagði...

jamm vera dugleg að læra!!!