Ég er náttlega bara on fire núna í bloggunum sko.
Það er svona eins og við Lilja vorum einmitt að tala um áðan sko, prófatíminn er alveg rosalega nice tjill tími. Maður vakir fram eftir og gerir það sem mann langar til eins og við í dag. Vorum að útrétta og svona en samt í raun er þetta líka versti tími ársins því maður er svona smá stressaður... Hugsar "oh, af hverju er ég ekki að læra núna, heldur að gera e-ð allt annað".

Talandi um að við vorum að útrétta þá skelltum við okkur í bankann í dag (eins og við Telma hérna um árið klukkan átta um morgunin) og borguðum fyrir íbúðina okkar í DK. Þannig að það er heldur betur bara allt orðið klárt og búið að borga allt... Þannig að tekjurnar fram að ferðinni fara bara í eintóma skemmtun, ekki slæmt það :)
En já við erum búnar að vera að tala um þetta núna fram og til baka og plana hvert einasta smáatriði, ekki það að það sé þörf fyrir að gera það núna svona snemma. Heldur er spenningurinn bara að fara með fólk. Enda hugsa ég að þessi ferð verði alveg eintóm gleði, eða ég vona það allavegana.

Annars er það að frétta að ég var í íslensku í gær sem gekk bara ágætlega. Fer svo í næsta próf á föstudaginn en það er einmitt danska, bæði munnleg og skrifleg. Hef nú ekki miklar áhyggjur af skriflega partinum þar sem ég skil það nú flest allt. Munnlegi hlutinn er hins vegar allt önnur saga... Því að þegar ég á að tala dönsku þá kemur ekkert annað en þýska út úr mér... Alveg mjög slæmt það. Reyni samt bara að gera eins og Helga sagði mér og það er að ef ég veit ekki hvernig ég á að segja e-ð segi ég það bara á þýsku með dönskum hreim. Nefnilega ansi mörg orð sem eru svakalega lík ef ekki bara eins á þessum tungumálum.

Í færslunni hérna á undan talaði ég aðeins um Chris Martin og Helga kommentaði og kvaðst vera sammála mér um hann en minntist hins vegar á að Soffía frænka hefði e-ð skemmt ánægjuna fyrir henni. Ég verð að fá að segja aðeins frá því atviki. Það var semsagt þannig að við vorum í jólaboði á annan í jólum að mig minnir heima hjá Diddu frænku og vorum að horfa á Coldplay tónleika. Við sátum þarna allar stjarfar og horfðum á þennan mikla meistara og ræddum það hversu sexy hann er... Þá heyrist í Soffíu: "Hann er svo sexy að mig langar til að sleikja af honum svitann". Þessi setning gleymist seint hjá flestum okkar held ég og hefur valdið mikilli vanlíðan og martröðum. Það eru nú samt liðinn meira en tvö ár síðan þetta átti sér stað en er okkur systrum í minni eins og gerst hafi í gær og það er allt annað en ánægjulegt og e-ð sem við viljum vista í hausnum það sem eftir er...
Takk fyrir mig.
4 ummæli:
hahhaahh ég er nú fegin að hafa ekki verið viðstödd þetta atvik...Hann er nú samt ekkert miðað við Robbí sko!! Hann er heitastur!!
Já ég fæ enn martraðir þar sem ég vakna upp öskrandi: "Chris passaðu þig á gömlu konunni sem ætlar að sleikja þig, Chris...PASSAÐUR ÞIG"
en p.s. þú gleymdir að segja frá því að rétt áður en Soffía sagði þetta um Chris sagði hún: oohh hann er svo líkur Jónsa...svo sagði hún þetta um Chris og við sáum hana fyrir okkur ráðast á bróður sinn og sleikja af honum svitann.........bjakk...ég er enn með ör á sálinni eftir þetta :/
Hey!
Var þetta svona ferlegt?
Ég bara spyr???
En mikið djöh... eru þetta flottar myndir!!!
Skrifa ummæli