Já hve mikil ósköp! Nú er sko komið að Lilllí Dí from ðe k ó P að láta ljós sitt skína!! Ég er búin að vera hundlöt við að skrifar flippaðar færslur og segja frá atburðum liðinna daga. Vil byrja á föstum liðum eins og venjulega
1.Hildur og Rósenberg; Afar óaðlaðandi og aldurhniginn kona reyndi pent við Friðjón okkar, hann er skaddaður fyrir lífstíð. Hildi var boðið að hitta ákveðinn einstakling af ákveðinni Brennslu á ákveðnum stað á ákveðnum tíma, hún er enn að hugsa málið. Einstaklingar sem féllu fyrir styrkum armi Hildar: NÚLL.
2. Heimskupör Lilju; Þar sem ég hef verið einkar ötul við að bæta úr mínum málum í þessari deildinni er ekkert frásagnarvert! HA!! (ef e-r er á öðru máli, er henni/honum leyfilegt að skrifa sínu máli í þar til gerðum dálki)
3. Merkilegasta atvik vikunnar: Þegar ég kom til Hildar í dag hafði hún keypt handa mér gjöf, ekki hvaða gjöf sem er. Ónei, hún keypti handa mér stígvél:D Bleikröndótt stígvél!! Og appelsínugul handa sér(hún leyfði mér að velja lit;) Djöfull verðum við flottar á Hróarskeldunni í þessum kvikindum!! Ég set inn myndir við fyrsta tækifæri, ef ekki bara myndaseríu!! Hún fær stórt knús fyrir þetta frábæra framtak!! Annað sem þess verðugt að fá rokkprik. Við stallsysturnar erum búnar að borga íbúðina í DK!! Ekki slæmt!! Svo eina sem þarf að gera núna er að vinna sér inn smá eyðslufé!
Helgin hefur verið hin rólegasta. Öll familían heima hjá ömmu í gær, svaka gleði. Endaði í náttfatapartý heima hjá mér þar sem 5 af 9 frændsystkinum gistu öll og horfðu á myndbönd langt fram eftir nóttu!!(kl. var reyndar bara 1:30...en þetta var búið að vera LANGUR dagur!!!) Svo fór öll herlegheitin í sund í dag í góða veðrinu og svo á Scary Movie 4 sem ég ráðlegg engum að fara á....por favor!!
Prófahelvítin(töff töff) byrja svo í næstu viku þannig að Saadia, Hildur og ég erum búnar að sitja sveittar að lærdómi hérna í Hvannhólmanum. Enda er Hildur orðin útkeyrð og sefur hérna á sínu græna við hliðina á mér..Þessi ungdómur!
Hasta la vista baby!!
3 ummæli:
svakalega verðið þið flottar stöllur í stígvélunum....spurning um að víga þau eina góða Reykjarvíkurnótt, þá verðið þið langflottastar ;)
Hehe já það er alveg möguleiki :) Maður getur aldrei vitað...
En Lilja djöfull er ég svekkt að þú gast ekki sett hina myndina inn í þessa færslu... Helga: Það var sko´myns af pabba síðan í menntó... :) snilld
CYA
Bíð spennt eftir myndum
Skrifa ummæli