þriðjudagur, maí 16, 2006

Við fáum þessar pillur til að kyngja, hvernig þær festast í hálsinum á þér, smakkast eins og gull...

Þá eru báðir meðlimir lautarferðarinnar búnir í prófum... Til hamingju með það!! Fékk þá spurningu í gær hvers vegna fólk óskaði hvert öðru með það að vera búin í prófum... Vissi ekki svarið. Svo hélt sá hinn sami áfram og sagði að þetta væri kjánalegt þar sem að maður er í skóla af fúsum og frjálsum vilja og hvers vegna er maður þá glaður að losna?? Ég var nú ekki alveg sammála þessu því að auðvitað er alltaf gaman þegar svona strembnum tímabilum yfir líkur, hvort sem að maður skipaði sig sjálfur í þá stöðu eður ey....
Að öðru, í dag eru akkúrat 6 vikur í DK babý og ég er ekki frá því að hún Lilja sé að verða bara nokkuð spennt... :) Gaman að því. Hlakka samt mest til að hitta tilvonandi meðleigjanda okkar, hann er frá Austuríki en ég man reyndar ekki hvað hann heitir í augnablikinu. Vonandi hinn blíðasti drengur, ekki það að ég sækist samt eftir blíðu hans. Við getum talað þýsku alla daga, Lilju til mikils ama og ég græt nú ekki svoleiðis tækifæri. Vonandi bara að hann sé ekki típann sem vill hafa hljóð kl tíu þegar hann fer uppí rúm.... Það verður hræðilegt ef að hann er þannig. Býst nú samt ekki við því þar sem að hann er frá Austurríku og býr í DK, þá er hann nú sennilega maður fyrir einn eða tvo á fallegu sumarkvöldi í júlí.
Ég er að fara uppí elsku Hjallaskóla í fyrrmálið að halda AFS skólakynningu, vona að það eigi eftir að ganga sem skildi... Svo á fimmt erum við fínu frúrnar að fara á Lækjó eins og ég greindi frá í seinustu færslu. Þá verður það bara Bailey´s við kleiks í fordrykk, svo humarveisla sem samanstendur af humarsúpu í forrétt, humri í aðalrétt og svo e-r ægilega girnilegum eftirrétt... Eftir það er kvöldið óákveðið, en við finnum okkur sennilega e-ð skemmtilegt til dundurs.

......Seinna...

3 ummæli:

Big Bird a.k.a. BB sagði...

jamm til hamingjum með að vera búin í prófunum skvísur! ég er sammála þér með að hamingjuóskir eru alltaf við hæfi. Óskar maður ekki nýbökuðum mæðrum til hamingju þó svo þær hafi nýlokið við að kveljast og oftast af fúsum og frjálsum vilja? Held að prófalok séu eitthvað svipuð..tja nema kannski aðeins minni sársauki að lesa fyrir þau...en samt stundum er það ansi vont :/

Nafnlaus sagði...

Hildur!! eg elska þig!og ekkert litið sko!!!!!!!!!! t
du darfst es nie vergessen!!!!!!!!

Gréta sagði...

Ég er bara ekkert öfundsjúk yfir að þið ætlið að vera í dk í sumar....