Þegar Hildur sagði mér að hún væri að leggja upp í langferð alla leið suður til Írlendingaeyju leist mér nú ekkert allt of vel á blikuna. En þar sem hún og samferðalangar hennar myndu ferðast í flugvél frá Bakka en ekki helvítinu honum Herjólfi sætti ég mig við þetta.
Jæja þær flugu þarna suðureftir og öttu kappi við ÍBV stelpurnar og báru sigur úr býtum. En sá böggull fylgdi skammrifi að þær urðu barasta veðurtepptar!! Það er semsagt vindur úr öllum áttum þarna í Eyjum
og svo kom líka í ljós að flugrörið var bilað hvort eðer...Frábært. En þetta reddaðist. Þær(og Hilmar) fundu þetta líka fína gistiheimili, þannig þetta lítur út fyrir að verða bara ansi kósý hjá þeim. Út að borða á Pizza 67..gerist ekki betra:) Svo er líka alveg búið að redda morgundeginum! Þær taka bara Herjólf, keyra frá Þorlákshöfn til Bakka og þaðan í bæinn!! Ekki nema eins og heils dags seinkun!! Hver væri ekki til í þetta ha?? Vera fastur í Eyjum...Allavegana er ég græn af öfund!! Og við sem vorum að fara að kaupa flugmiða til DK í kvöld....það virðist seint ætla að gerast. Fólk er veðurteppt, óundirbúið, fátækt...þetta er skítt sko. En þetta hlýtur að takast á endanum.
1 ummæli:
If I had a hat I would take it of for you... fyrir að hafa handmalað frekju kallinn i paint haha
Skrifa ummæli