miðvikudagur, mars 15, 2006

Home sweet home

Já, þetta var nú meiri andsk... ferðinn! En samt hress svona ef maður lítur til baka. En ég ætla nú ekkert að hafa þetta langt núna, er að drepast úr þreytu eftir langt og strangt ferðalag (komum með Herjólfi og þurftum svo nokkur að fara aftur á Bakka að ná í bílana) þó svo að ég afi sofnað meðan ég var að bíða eftir Sex And The City í gærkvöldi. Það byrjar klukkan 22:50 svo ég rotaðist um hálf ellefu (frétti svo í morgun af ægilegum prakkarastrikum sem áttu sér stað er rökkva tók), svaf líka í helvítinu honum Herjólfi eins og Lilja komst svo skemtilega að orði. Er samt núna að lognast útaf, bara bíða eftir Missing á stöð 2 plús en svo er það bara uppí rúm....

Bið að heilsa í bili...

2 ummæli:

Big Bird a.k.a. BB sagði...

svakalega fín síða hjá ykkur tvíburunum :) hlakka til að lesa um framtíðarprakkarastrik ykkar hérna....ef þið standið ykkur vel er aldrei að vita nema það komi hlekkur á ykkur á Sesamestræti ;)

Nafnlaus sagði...

ég held að þú sért bara að plata með að segjast vera fegin að koma...þér fannst í alvöru geggjað gaman...hahha´

Helga!! gaman að heyra í þér! við skellum tengli á þig hérna, við erum ekki ennþá búnar að láta inn alla tengla og fleira...
kys og knus