fimmtudagur, apríl 27, 2006

Þetta byrjaði með einum kossi, hvernig endaði þetta svona? Þetta var bara koss, þetta var bara koss...

Eins og alþjóð veit lagði hún Lilja litla (sorry Lilja mín, þetta stuðlar bara svo flott) land undir fót í morgun og hélt til móts við frændur okkar í Færeyjum... nei reyndar ekki, mér fannst þetta bara stuðla svo flott líka.... Hún fór semsagt til Danmerkur. Það er nú kannski ekki frásögufærandi þar sem við erum víst komin á árið 2006. Nema hvað hún fór og fann tilvonandi heimili okkar, komst reyndar ekki inn þar sem enginn var heima en lét það samt ekki stoppa sig í að mynda húsið í bak og fyrir.... Gvuð minn góður hvað ég er að farast úr spenningi... Það er eins og liltu spennukallarnir inni í mér ætli gjörsamlega að rífa gat á húðina og koma út... Hef sjaldan vitað annað eins...Þetta lítur alveg hreint hryllilega kósí út og er ekki lagt frá Parken þar sem einmitt oft mikið er um gleði og glens. Ég sé fyrir mér hjóla-piknikferðir þar sem við böðum okkar velsköpuðu líkama í sólinni og drjúpum á eðalhvítvíni.. Eða höfum við e-ð annað að gera þarna?? Það er spurning sem brennur á vörum flestra sem við komum að orði við þessa dagana. "Hvað ætliði að gera þarna úti? Ha, ekkert að vinna?" Svo er starað á mann eins og Bogomil Font syngi um mann í Marsbúa cha cha cha. Hvað er að því að fara til útlanda með ekkert á stefnuskránni nema að hafa það gott í nokkrar vikur. Veit ekki betur en að fólk flykkist til útlanda ár hvert til þess eins og hafa það huggó. Sennilega er þetta allt tilkomið vegna fjölda klukkutíma frá því að við vorum getnar. Maður verður að vera Ellilífeyrisþegi á leið til Kanarí til að mega tjilla í nokkrar vikur.. Ef maður er ungur sem lamb þá er það kallað að vera latur eða að slæpast ef maður er ekki að vinnandi dag sem dimma nótt í skólafríum... Þegar maður hefur náð vissum aldri hefur maður hins vegar bara "gott af því" að fara í frí til þess eins að leika sér.
Í öðrum löndum er það bara hreint ekki normal að skólafólk vinni í fríum, þar kemur að vísu inní styttri sumarleyfi, atvinnuleysi og fleira. Ég vil samt helst benda á hégóman sem stjórnar litla klakanum okkar of mikið, efnahagshyggja, geta keypt flottari plastma en nágranninn... Hvað er það?? Ég datt einmitt í miklar hugleiðingar um þessi mál ekki svo alls fyrir löngu. Fór að bera mig saman við vini mína, kunningja, skólasystkini o.fl sem eru á mínu reki. Hvert sem maður lítur sér maður ungt fólk akandi um á glæsikerrum, hlustandi á ipod, með nýja laptop-inn undir arminum á meðan það tekur eins og eitt stykki hágæða ljósmynd með splúnkunýju digital myndavélinni sem keypt var erlendis nokkru áður því að að sjálfsögðu kemur þessi týpa ekki í Hans Petersen fyrr en fyrir jólin 2007. Hvar fær fólk aur til þess að lifa svona? Ég t.d. á ekki ipod, á reyndar bíl, en á hann ekki ein og hann er ekki einu sinni þeim gæðum gæddur að vera með geislaspilara. Nei, Saadia fjárfesti í hálfgerðri kasettu með snúru sem hægt er að tengja við ferðageislaspilara til að hafa í bílum og við erum hæstánægðar... Ég á reyndar laptop en hann þarf að vera í ei/ylífu sambandi til að hægt sé að hafa kveikt, er með Windows 2000 og varð mín eign einungis vegna þess að mamma fékk nýjann til að nota í vinnunni. Ég á ekki einu sinni dvd-spilara og hvað þá heimabíó... Og vitiði hvaða, mér líður ágætlega. Þrátt fyrir þessa veikleika mína og meðalmennsku tel ég mig ekki neitt verr staddari fyrir vikið... Ég nýt þess að liggja uppí rúmi, horfa á Legally Blonde á VHS eða að hlusta á tónlist í græjunum sem ég fékk í fermingargjöf og eru enn eins og nýjar.
Hvernig væri að slaka aðeins á, byrja ekki allar samræður á "hey, ég var að kaupa mér.... í dag". Mér finnst þetta komið svo algjörlega út í rugl að það hálfa væri helmingi meira en nóg... Ég var með gest um páskana frá Þýskalandi sem að blöskraði algjörlega vellystingarnar sem við lifum í... Tala nú ekki um himinn hátt verðlagið og það setti punktinn yfir i-ið þegar við borguðum 800kr. fyrir kebab sem maður kaupir á 2 evrur 50 úti. Hún spurði mig hvort að það væru allir svona ríkir á íslandi.. En svo er ekki. Mikið af fólki er í basli um hver mánaðarmót við það að ná endum saman, margir þora ekki að opna dyrnar heima hjá sér þegar hringt er af ótta við að e-r frá bankanum sé mættur til þess að innheimta... Svo vinnur fólk eins og skepnur myrkrana á milli til þess að geta keypt hús, bíl, heitan pott o.s.frv.. En er í raun að sóa öllu í ekki neitt þar sem það er aldrei neinn heima við til þess að njóta allra "flottu og nytsamlegu DAUÐU hlutanna" sem til eru... Skilnaðartíðni fer vaxandi og ungt fólk leiðist út á vafasamar brautir til að fá athyggli foreldranna sem enn eru að vinna fyrir afborgununum.. Þá opnast augun, þegar allt er í rúst... Hvað hefði ég getað gert til þess að að enda ekki all alone in the old house (Faðir brúðarinnar)?? Eyða meiri tíma með þeim sem þú elskar því það er það sem skilur e-ð eftir sig!! Ekki get ég ímyndað (Lilja tékkaðu á stafsetningunni) mér það að það skipti nokkru máli að vera með gosbrunn í garðinum þegar maður er komin undir torfu... Eða er það málið?? Endilega látið mig vita þegar þið vitið svarið...
Hættum að drepa okkur á eigin græðgi og lifum lífinu... Ég veit ekki hvort maður fær nokkuð annan séns...

Kveðja, Orgill

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jaha...eg sem helt ad tetta blogg væri svona lettmeti, til ad tjekka a i matarhleum og svona...:)

Nei grinlaust, tetta er svo ogedslega rett hja ter!! hvernig ter tekst ad koma tessum hugsunum i ord er mer mikil radgata...grædgin ætlar svoleieis alla ad drepa oft sko!!

for fanden1! sko djøfull hlakka eg til ad koma i vognmandsmarken...ha^?? kosy!!

Nafnlaus sagði...

vildi bara takka ter kærlega fyrir ad hafa nyja uppahalds lagid sem fyrirsøgn, var einmitt ad hlusta a tetta sama lag a MTV e-r tonleikar i gangi hja teim---
og ps- teir eru heitir!!:):)

Bína sagði...

hey þú ættir að skella þér á ljóðaritgerðina sem að ég var að skrifa og janf vel ljóðabókina bara líka en ég fjallaði einmitt um þetta...eiga minna og geta notiði þess í staðinn fyrir að eiga allt og hafa ekki tíma til að njóta þess því að maður þarf að vinna svo mikið til að borga af því.....
þess vegna ætla ég og Atli að búa heima næsta vetur í staðinn fyrir að vera að steypa okkur út í skuldahafið mikila og njóta hvers annars frekar og vinana fyrir vikið.....þannig heyr heyr

Bína sagði...

gleymdi einu punkti áðan en þið getið náttúrulega tekið mig sem gott dæmi um leiki og kæruleysi í útlöndum...veit ekki betur en að ég hafi farið til útlanda tvö sienustu sumur að gera ekki neitt annað en að slappa af og fá mér öllara í mismunandi löndum....það er bara heilbrigt að slappa af og gerist ekki betra ef að maður gerir það í góðra vinahópi og ekki talað um í veðurblíðu í útlöndum :)

Gréta sagði...

Enn fyndið... er fólk á íslandi loks að vakna??? Sé að þið eruð allavega á góðri leið! Hef einmitt verið að útskýra þetta fyrir svo mörgum hérna þegar danir fara að tala um hvað þeim finnst þeir búa í markaðsvænu umhverfi sem býður ekki upp á annað en stress. Þá fer ég að sýna þeim að þau geti bara unað sátt við sitt með 35 tíma vinnu viku, litla bíla og hús í samræmi við heilisfjölda. Eiga ekki orð þegar ég segi að nánast allir á Íslandi eigi bíl sem eru 17 ára og fékk einmitt að heyra í fyrra að ég hliti að vera mjög rík þar sem ekki nóg með að ég ætti digital myndavél heldur átti ég líka minniskort í hana.... jamms skál fyrir stress minna lífi þar sem hver hugsar um sig og að sér fyrir sinni eigin ánægju, óháð skoðunum nágrannans.

Big Bird a.k.a. BB sagði...

Þú ert snillingur Mista....mikið svakalega kemstu vel að orði og hittir naglann svo nákvæmlega á höfuðið!!!

Og ég væri svo sannarlega til í að koma og slaka á með ykkur í DK....þannig á að njóta lífsins!

Big Bird a.k.a. BB sagði...

P.s. gleymdi að monta mig yfir því að hafa séð Killers á tónleikum, bara svona ef Lilja vildi vita það ;)
Þeir eru snilld og ég mæli með að fólk grípi gæsina ef þeim gefst tækifæri að sjá þá á tónleikum

Nafnlaus sagði...

hahah orgill mannstu eftir kötu og orgli(hvernig i andskotanum fallbeygi eg þetta? er þetta svona?)
sjitt er a kofnaum að læra og það kom heróín sjuklingur(ég skít á það) og var með með algjör dólgslæti hérna hann talaði við alla og blikkaði fólk(svoleiðis gerir bara fólk sem á við mjög alvarleg andleg vandamál að stríða) og síðan fór hann eftir að hann hafði sagt nokkrar setningar á ensku!