Mig langar að byrja á því að segja Karen úr þessu bloggsamfélagi þar sem hún hefur ekki skrifað eina einustu færslu eftir jómfrúarfærsluna.... Annars er ég að hugsa um að segja mig sjálfa úr þessu líka þar sem að ég nenni þessu eiginlega ekki....
En allavegana ætla ég nú að klára þessa færslu fyrst að ég er byrjuð á henni. Það er ekkert nýtt í gangi... Ég og Lilja erum reyndar að fara í leikhús á morgun að sjá "Ísland best í heimi" og búumst við hinni bestu skemmtun... Eftir það verður stefnan tekin á eina af tvennum tónleikum sem eru í gangi. Í dag er ég búin að vera í einn mánuð í áfengisbindindinu góða, það er afrek og þar af leiðandi hef ég unnið frekar mikið í þessum mánuði og hlakka til að fá þykkt umslag um mánaðarmótin...:)
Fimm skóladagar eftir og svo byrja prófin, það er gaman... Svo koma bráðum blessuð jólin :) Börnin fara eða eru mörg hver farin að hlakka til, að minnsta kosti ég. Svo er margt annað að fara að gerast sem ég ætla þó að láta ógetið um sinn. Fórum í tíma 2 á hiphop námskeiðinu í gær og aldeilis farið að færast fjör í leikinn, sumir svitnuðu mikið, aðrir ekki :) Lilja mín, sagt er að maður svitni meira ef maður er í góðu formi... haha
Nenni ekki að skrifa meira útaf ég er að fara að gera e-ð uppbyggilegt eins og t.d. að horfa á tv, sem ég geri þó næstum aldrei...
þar til næst (lofa engu um hvenær eða hvort það verður)...
Þegar allt um þrýtur
vertu glóð sem vekur eld hjá mér.
Uns þá yfir lýkur
áttu mig ef eitthvað út af ber.
Kv, Hildur Mist Ottesen Axfjörð Friðjónsdóttir
2 ummæli:
sko, ég hef alltaf heyrt því fleygt fram að í því betra formi sem þú ert í, því meira svitnarðu!! ég trúi þessu statt og stöðugt og skammast mín þess vegna ekkert fyrir dropana sem láku niður bakið á mér á þriðjudaginn....!!! hinsvegar skammast eg min fyrir harðsperrurnar í rassinum sem gera mer erfitt um vik..!!
Þessi texti er líka úr Sálarlagi :Þ og í þetta sinn þekki ég það vel.
Skrifa ummæli