mánudagur, júní 05, 2006

Þögnin rofin.......


Nú er sko fjandinn hafi það komin tími á færslu!! Síðasta færsla var rituð 18 maí!! 18 maí!! Vitið þið aumu lesendur hvað það er langt síðan? Nei ég hélt ekki, það er allavegana nógu langt til að það taki því ekki að telja dagana!!
Svo hérna kemur það, hvert einasta smáatriði sem á daga mína hefur drifið undanfarnar vikur!!

Mitt daglega líf: Ég vinn á elliheimili við að klæða, fæða og skipta á gömlu fólki. Eins óspennandi og það hljómar er þetta ótrúlega gefandi starf og mörg gullkornin hafa flogið innan veggja Skógarbæjar. Hvort sem þau eru af vörum vistmanna eða e-a af þeim mikla fjölþjóðakokteil sem er þarna. Held ég hafi bara sjaldan kynnst jafn mikið af fólki frá jafn mörgum löndum á svona fáum fermetrum..
Svo er náttla gamla góða Lækjarbrekka. Ég er að nálgast persónulegt met í starfsaldri á Brekkunni góðu. Er komin yfir 6 mánuði sem hlítur að teljast nokkuð gott fyrir mig. Manneskjan sem skiptir um atvinnu eins og óhreina sokka...(örlitlar ýkjur)

Ég og Hildur höfum verið svo uppteknar að við þurfum að fara út á land til að geta hist! Mæltum okkur mót á Húsavík mestu celebútungunarvél síðustu 10 ára. Það vildi nefnilega svo skemmtilega til að Marion "systir" Hildar aus Deutschland er hérna á klakanum eins og stendur og Hildur er búin að guida svo mikið síðustu viku að Friðjón þarf sko að fara að passa sig!
Málið var að Tandri frændi var að ferma sig í kjól og hvítu(bókstaflega, drengurinn í var í hvítum jakkafötum, fáránlega töff! ) og ég og hele familien fórum norður um þessa hvítasunnuhelgi*. Og þar sem Húsavík hefur ofboðslegt aðdráttarafl í formi hvala, reðra og gífurlegrar náttúrufegurðar fóru þær stallsystur Hildur og Marion að skella sér norður líka (þótt að sjálfsögðu hafi það verið eintómt yfirskin til að geta eytt tíma með moi). Þær gistu hjá okkur í sumó og komu í fermingarveisluna og fengu kökur, og grétu það sko ekki;)
Skellti mér með Marion á tónleika hjá ónefndri hljómsveit í Hafnarfjarðaleikhúsinu í kvöld. Þeir spiluðu Pétur og úlfinn í fönkreggíútgáfu. Helvíti flott. Sögumaðurinn stal samt senunni.
Kíktum svo á Rósenberg eins og reglurnar segja til um...

Hvítasunna*: Þegar postularnir töluðu tungum. Þ.a.l. eru allir sértrúarsöfnuðir Hvítasunnusöfnuðir. Rauður er litur Hvítasunnunnar.

Hildur og Rósenberg: Gífurleg fjölgun þýskra ferðamanna innan veggja Lækjargötu 2 getur ekki verið útskýrð öðruvísi, en að sú fagurhærða, fríða og frábæra Hildur Mist Weiss tali þeirra germönsku tungu og því hafa þeir farið þar inn í stórum hópum til að berja stúlkuna augum.

Heimskupör Lilju Daggar: Tilburðir mínir í tilhugalífinu eru orðnir það grófir að þeir valda sambandsslitum hjá gestum og gangandi. Bið því þá sem eiga á hættu á að mæta mér eftir einn eða tvo kalda að halda sig í ákveðinni fjarlægð. Þ.e.a.s. ef þeir eiga maka. Annars er þeim velkomið að kynnast mínum einstaka yndisþokka í eigin persónu.

Merkilegasti atburður vikunnar: Hildur eignaðist Lillí. Grænu skjaldbökuna sem er staðgengill minn í gegnum súrt og sætt...Hún er táknræn fyrir mig. Græn, löt, hæg og krúttleg. Svo alltaf þegar ég er leiðinleg og nenni ekki e-u er Lillí til staðar. Svo fer hún líka svovel í veski...

7 ummæli:

Hildur sagði...

Dísús Lilja mín, það nennir enginn að kommenta lengur hjá okkur...

Nafnlaus sagði...

nei við sökkum....

Big Bird a.k.a. BB sagði...

já sko ef maður skrifar ekki í háa herrans tíð þá er fólk ekki að koma í heimsókn oft á dag :)

Bína sagði...

bara tæpar 2 vikur í brottför....vúhú....

Gréta sagði...

tvær vikur í heimkomu, ætti nú frekar að fagna því og hlusta á nik og jay og drekka tuborg til að fagna komu minni....

Nafnlaus sagði...

jeg elsker hende mere end hun elsker mig

þetta eru nik og jay, ekki satt.

sko má ég koma með tilgátu?

mjög virtur prófessor: að sjálfsögðu Frú Karen.

rektor háskólans: láttu ljós þitt skína

Mr. Ripley: Well ofcoure, you always have something interesting and quite brilliant to say.

karen: já ok ég slæ til(og ber hnefanum útí loftið)

mamma: karen mín þú mátt ekki stela svona senunni.

Jón Gnarr: jú þá verður þetta skemmtilgra

karen: ok ég næ þessu allir hafa áhuga á mér, en ok tilgátan er þessi


nennir fólk að lesa svona ógeðslega langar færslur og ef svo er nennir það þá líka að lesa löng komment

en ef ekki

nennir fólk bara að lesa stutta og fyndnar færslur en hafa engin takmörk á kommentum

ég held það

Nafnlaus sagði...

muy gracioso lilja eres una escritora...