Nú er ég loksins sest niður fyrir framan skjáinn að rita nokkrar línur um undanfarna daga og það sem hefur gerst í lífi mínu síðan síðast.
1. SKólinn er byrjaður með stóru S-i. Það er nóg að lesa og ég auglýsi eftir aðila sem er námsfús og sæi sér fært að lesa á móti mér allt námsefnið, svona 50-50. Greiðsla verður rædd undir 4 augu...
2. Fjölskyldan kemur loksins heim á miðvikudag eftir 2 vikna dvöl í Alicante að safna brúnku. Ég hlakka mikið til. Ekkert jafnleiðinlegt og að vera ein heima í svona langan tíma. Sérstaklega þegar maður fær ekkert alltof hressa miða(frá nágrannanum) á útidyrahurðina sem fjallar um hversu lélega söngrödd ég og vinir mínir hafi....Eins og Singastar var góð hugmynd á þessum tíma.!!
3. Ég og Freyja erum byrjaðar að æfa Fitness box. Þetta er held ég skemmtilegasta líkamsrækt sem ég hef stundað(f.utan danstíma í Body Shop í Rep.Dom, þegar við dönsuðum Reggaeton!)Fór á fyrstu æfinguna ein og það leið næstum yfir mig. grínlaust. Ég þurfti að setjast niður og setja hausinn á milli hnjánna og læti!! Hef ekki hreyft mig í svo alltof langan tíma!! Fór svo í vigtun og fitumælingu(niðurstöðurnar eru leyndó!). Oscar(kúbverji)þjálfari tilkynnti mér svo pollrólegur að ég ætti að gjöra svo vel og missa 5kg á 6 vikum. Ég hlakka mikið til að sjá hvort það gangi eftir....Ég bíð ennþá spennt eftir því að sykurpúðinn minn mæti líka með okkur!!:)
4. Síðasta helgi var sérstaklega skemmtileg. Fórum í partý, ég hef ekki farið í partý í ár og aldir. Það var stuð.
5. Ég mun halda áfram að vinna í ellismellaparadís í vetur. Það er alltaf jafn yndislegt þar. Maður fær hárgreiðslu og knús sem er nú ekki hægt hvar sem er... :)
6. Freyja á afmæli um næstu helgi. Ég hlakka mikið til. Hún má búast við því að fá hamingjuknús og með því!
Fastir liðir eins og venjulega!
Rósenberg: Hildur fær himinhátt þjórfé og vekur það upp spurningar um hvort það sé selt e-ð meira en áfengi "bak við borðið" á Berginu....?? Málið er í rannsókn.
Heimskupör Lilju: Er að vinna í PowerPoint sem verður til sýnis fyrir útvalda eftir 4 daga.
Atburður vikunnar:Það átti að henda Hildi útaf 11-unni fyrir að hvíla augun.
þriðjudagur, ágúst 29, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Sorry, nenni ekki að lesa a moti þer namsefnið þo ad mer þyki nu svakalega vænt um þig... Ja við vorum best i singstar þo að allir hafi ekki fengið að syngja jafn mikið að þinni sögn...:) Og það skal tekið fram að eg var ekki að hvila augun sökum ölvunar a laugardaginn heldur var eg bara gjörsamlega buin a þvi a likama og sal :) eins og "kærastinn minn" sem svaf þarna vært við hlið mer:)
hva´eru þið alveg búnar á blogginu...!!
Sammála...á ekkert að skrifa nýjan pistil?
Skrifa ummæli