föstudagur, desember 01, 2006

Ég er með ofnæmi fyrir stærðfræði og prófum líka!

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

er það lífshættulegt, ég las nefnilega um stelpu sem var með ofnæmi fyrir prófum og hún lærði yfir sig og fékk taugaáfall

Bína sagði...

nú vill svo vel til að ég hef alltaf verið með mikið ofnæmi og er þess vegna vel uppbyrgð af ofnæmislyfjum og þér er velkomið að renna við hjá mér hvenær sem er....jafn vel að það verði líka heitt á könnunni....

Hildur sagði...

haha já það þykir mér vera sérlega slæmt tilfelli :) En já á að mæta í stæ.próf eftir nákvæmlega 6 klt núna... Er líka búin að vera að diffra í allan dag... Spennandi :) Hlakka til á morgun klukkan 10:15

Nafnlaus sagði...

Kannski ég ætti að minnst á að ég er ekki prófum... Já er nær alveg viss um að þetta er hinn fullkomni tími til að minnast á það að ég er meira í því að hjálpa 4 ára börnum að pakka í jólaopökkum sem eru krúttlega ljótir. Munið þið eftir því þegar maður var of lítil til að kunna pakka inn.. eða kannski bara of uppteknar við að vera með prófaofnæmi..

Kv. Gréta

Hildur sagði...

Oh, ég er einmitt líka með ofnæmi fyrir fólki sem er ekki í prófum :) hehe nei segi nú bara svona... en annars er ég eiginlega búin að komast að því að prófatíminn er besti tími skólaársins... Maður er bara að hanga e-ð allan daginn og hafa gaman. Eða allavegana er ég búin að vera ansi mikið í þeim gírnum ásamt öðrum sem ég þekki líka. En já man svo sannarlega eftir því þegar ég var að reyna að gera eins flotta pakka og mamma eða stóra systir mín eða e-r annar og bara gat það ekki hvernig sem ég reyndi. Man aðalega eftir því hversu erfitt var að binda borðann utan um svo að hann væri ekki laus. Svo sem betur fer kom þetta með árunum, þ.e.a.s. að festa bandið almennilega þó svo að pakkarnir séu kannski ekki sérlegt augnayndi... En skemmtu þér vel með 4.ára krökkunum, það er þó örugglega komið mikið jólaskap í þau og jólalög sungin og svona... það er nefnilega svo skemmtilegt. Annars langar mig að minnast á það að eftir viku verða þessi blessuðu próf yfirstaðinn og við tekur margt sem er gaman....

Hildur sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Hildur sagði...

Ó þú mikla skáld Karen!! En eins og ég sagði þér í símann þá var það Lilja sem setti þessa mynd inn... hún er semsagt LiljaogHildur en ég er bara Hildur.... :)