sunnudagur, desember 10, 2006

Profaljota? Eg held ekki!!




Hér er frábært dæmi um prófaljótuna sem virðist herja á alltof marga samnemendur okkar menntskælinganna. Prófaljóta er fyrirbæri sem er alltof merkilegt fyrirbæri að mínar annars miklu gáfur fá með góðu móti skilið hvað fær annars gullfallega og aðlaðandi einstaklinga til að klæðast náttbuxum og öðrum náttfatnaði og byrgja sig upp af kaffi á hitabrúsa og þramma um götur og stræti og beinlínis hrópa ; red,,ÉG ER Í PRÓFUM!! ER ÞAÐ EKKI ÖRUGGLEGA Á HREINU? ÉG ER Í PRÓFUM! VORKENNIÐ MÉR!!!!!"
Það er venja og siður að námsmenn fara í próf í desember og maí. Flestir sem búa ekki neðanjarðar og lifa á rjúpnaeggjum og mysu vita þetta jafnvel og að mánudagur kemur á eftir sunnudegi! Eeeeeen, nei þessir illa höldnu "námsmenn" verða að slengja þessu framan í hinn almenna borgara. Eins og að brjálæðisfylleríið sem fylgir prófalokum sé ekki nógu góð vísbending. Nei, það er þeim lífsnauðsynlegt að básúna þessari staðreynd eins og fagnaðarerindinu á öldum áður. Þessi tegund námsmanna er í krossferð. Gegn þeim sem nú þegar hafa útskrifast úr skóla og eru orðnir fullgildir meðlimir vinnumarkaðarins. Ég ætla ekki að banna fólki að tala um prófin sín, það er nú daglegt umræðuefni á meðal skólafólks. Ég ræði mín próf við mína nánustu og sé ekkert að því að fólk geri slíkt hið sama. En ég dreg línuna við fatabreytingu, niðurdregið og illa sofið augnaráð sem þreytist(þótt ótrúlegt sé) ekki á því að beina sjónum vegfarenda á hversu erfitt og melankolískt líf hins langþreytta námsmanns er. Því að þetta fólk lætur sér ekki nægja að mæta í einkennisbúningi þreytu og 243 kaffibolla, nei það þarf líka að röfla og væla um herlegeheitin!! Það hafa allir e-n tímann verið í skóla og vita ósköp vel hvernig þetta ferli gengur fyrir sig. Maður situr í tímum, lærir, glósar, lærir undir próf og búið. Prófatíminn á ekki að vera þessi kvöl og pína sem svo margir telja sér trú um. Prófatíminn á að vera tími rólegheita. Ég og stallsystir mín erum búnar að vera í góðu tjilli(afsakið slettuna) og gefa okkur tíma til að rölta um í Kolaportinu, spila Krossorðaspil(ég vann) og tala um strákamál. Svoleiðis á það líka að vera. Ekkert stress, Bara rólegheit. Og svo rómó út að borða í enda vikunnar.

post script. Engin ljót föt né illa þvegið hár hafa hrjáð okkur og komust við samt í gegnum prófin.....

5 ummæli:

Bína sagði...

ég verð nú að viðurkenna að í menntaskóla (hljómar eins og það sé langt síðan...sófin í rauðaherberginu er varla kólnaður eftir mig) þá átti ég til að komast í smá prófljótu...þá samt bara hvað klæðnað varðar og stjörf augu af kaffidrykkju...held að ég hafi sloppið frekar vel með röflið þó ég eigi það nú til að röfla...en þá ekkert frekar á þessum tíma en öðrum....hef samt sloppið við þetta ennþá þessi próf....en er varla byrjuð í prófum þannig að ætli það sé ekki ástæðan...

en ég vænti þess að þú fagnir próflokum mínum með mér fyrst 21. í kaffiboð og svo 22. í ærlegu fyllerí og skemmtileg heitum....miklu að fagan!!!!

Nafnlaus sagði...

jú heldur betur, búin að sveigja vinnutíma minn til að komast í öll herleigheitin, hvenær er mæting í kaffiboðið??

Bína sagði...

ja ég bara veit það ekki ennþá...veit ekki hvenær allt gillið er búið uppi í MH...en á 22. er svo bara mæting strax efitr kvöldmat eða milli7-8 það er fyrir ykkur tvær....en hitt verður ábyggilega komið í ljós á morgun....

Gréta sagði...

Ég er alveg ósammála.. reyndar fór ég ekkert í prjófljótu síðast þegar ég var í prófum þar sem ég baðaði mig í bikiníi og sólarolíu á milli þess sem ég spókaði mig pilsi og sandölum með carls í annarri, en áður en ég komst á það háa menningarlega stig tók ég þátt í prófljótu af fullum þunga (að mestu án nöldurs þó). Ástæðan var ekki að fólk þyrfti að vorkenna mér heldur er þetta einu skiptin sem maður ekki áberandi ljótur þó maður nenni ekki úr náttfötunum á morgnana og hárið í smart þriggja daga hnút. Það besta við þetta allt er hvað maður er alveg obboslega sætur þegar maður skellir sér út á lífið að öllu þessu loknu, sem spillir nú ekki fyrir þegar jólarómantíkin er í loftinu.

Annars komst ég að einu um helgina. Það er hreinlega best að fara í bæinn þegar "allir" eru í prófum og finnst mér þar pláss á dansgólfinu mesti kosturinn..

Bína sagði...

jæja þá er tíminn komin 21. mæting rétt upp úr átta niður í Digraneskirkju....