Eins og flestir ef ekki allir með viti vita þá brann Rosenberg um daginn og það eru eintóm leiðindi. Það eina bjarta er að enn er von um að Rosenberg muni rísa, meira að segja nokkuð góð von og það er ekki síst vegna gríðarlega öflugra styrktartónleika sem voru um síðustu helgi að ógleymdum undirskriftarlistanum sem að geymir nú hátt í 800 nöfn..... Vonandi blessast þetta allt saman og ég er reyndar nokkuð viss um að það muni gera það, finn það á mér.
Lilja var í síðasta prófinu sínu í dag sem þýðir að menntaskólaárin eru henni að baki, hún á bara eftir að setja upp hvíta kollinn en það mun gerast þann 26. maí n.k. Innilega til hamingju með það stelpa, það er ekki laust við að það votti fyrir öfund hérna meginn.
Ég hugsa að þetta sé komið gott í bili, bara svona rétt til að lífga þessa síðu aðeins við og ég er að hugsa um að snúa mér að hagfræðinni á ný....
Þar til næst: "You've got diamonds for eyes"
3 ummæli:
ég kíki alltaf reglulega hérna inn :)
Ég kíki... og verð yfirleitt frá að hverfa með brostið hjarta, en ég græt ekki núna því loksins loksins færsla!! Krydser finger fyrir fleirum
Gréta
Mikið vildi ég að ég ætti þetta enda 'quote'.
Skrifa ummæli