miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Hver er konan?

Hér vil ég rita nokkur orð um unga stúlku sem ég þekki. Stúlkan er með afbrigðum fögur, kvenkostur mikill og drengur góður.
Hún er afar fyndin(þótt að þar séu ekki allir sammála um það), hlær dátt þegar henni finnst e-ð spaugilegt og tekur lífinu létt. Hún stendur á sínu, er traust og trú og lætur sko ekki einn né neinn segja sér fyrir verkum. Hvorki samþegna, foreldra, yfirboðara né guð. Hún er fáránlega gáfuð þrátt fyrir að finnast hún stundum koma utan af landi þegar hún er í samfloti við ákveðna aðila...Hún er ósérhlífin(hún kenndi mér þetta orð), gjafmild, frek, blíð, æst, dugleg, kúrin, ljúf og einstök.
Hún er konan sem kyndir ofninn minn.
Hún er fjallkonan.
Hún er fögur og flott.
Hún er fagra litla diskódís.
Hún er dararararararrammmmrararraaaaaammmmmmm

4 ummæli:

Hildur sagði...

Lilja, ég elska þig!! Takk takk fyrir þetta... BFF (þú þekkir þetta haha)
p.s. ég er sérlega sátt með það að þú hafir tileinkað þér orðið ósérhlífin... Það er gott orð :)

Hildur sagði...

Snilldar mynd btw. sem mun ekki falla í gleymskunar gildi :) Busaballið á busaárinu.... ekki slæmt það. Eða var þetta kannski nemó sama ár?? Humm.... hugs hugs já ég held það bara. Eftir að ég var búin að nappa af þér kjólnum þínum því að minn var alltaf að detta niður :) haha það myndi enginn nema þú Lilja mín taka e-ð svoleiðis í mál...

K&K

Nafnlaus sagði...

Gaman að sjá hvað þið eruð orðnar akívar.. Knusss Gréta

Nafnlaus sagði...

hildur, karen. get your arses of dem floor!! skrifið e-ð, skiptir ekki máli, dánarfregnir, jarðarfarir...eitthvað plis