...hef ég þjáðst af bloggastíflu og þjáist enn. Ætla þó að reyna að skrifa e-ð smávegis hérna inná. Ég ligg undir sæng sem er alveg gríðarlega notalegt fyrir utan það að mér er kalt á upphandleggjunum þar sem að þeir þurfa að koma undan sænginni til að ná hendurnar nái á lyklaborðið. Það er svo drullukalt úti og rok og ég veit ekki hvað og hvað. Algjörlega ömurlegt veður og ekki til að bæta geðið hjá manni.. Það er nóvember sem ég btw hata og svo svona skítaveður líka, dimmt og kalt... Ógeð hreint út sagt, skil ekki hvernig okkur dettur í hug að vera að hanga hérna á klakanum á vetrarmánuðunum... Ég ætla að flytja í sólina fljótt, mjög fljótt....En burtséð frá þessum leiðindum er flest alveg í góðum gír. Tvær vikur eftir af skólanum og síðan bara próf. Það er alveg svona frekar hressandi get ég sagt ykkur. Jólin koma svo og þá er gaman :) Systir mín hún Helga Sif kemur líka heim 18.des og þá verður enn meira gaman, en mest gaman er að hún verður hér á klakanum fram yfir afmælið mitt sem er í enda mars... veivei! Svo kemur nýtt ár og þá er líka gaman, þá getur maður gert allt sem maður ekki náði að gera á þessu sem er að líða og gert betur það sem maður gerði ekki nógu vel. Þá kemur líka vonandi snjórinn sem þýðir það að maður getur farið að vera tíður gestur í Bláfjöllum og það er gaman. Svo á ég afmæli fljótt eftir að nýja árið byrjar, þá verður veisla sem er gaman. Síðan koma páskarnir sem er líka gaman og lesturinn fyrir vorpróf hefst. Svo klárast þau og maður kemst í sumarfrí sem er það besta af öllu sem ég er búin að telja upp. Þá líka stuttu seinna, í byrjun júní mun ég fljúga mér til USA og eyða dágóðum tíma þar... kannski heilum mánuði en svo kem ég heim og fer til Danmerkur á Hróaskeldu :) Svo kem ég heim og þá fer ég sennilega ekkert meira það sumarið, verð bara að vinna á fullu, kannski á Rósenberg... það kemur í ljós. Niðurstaða þessa bloggs er því sú að sumrin eru best, lang best... Enda var síðasta sumar skemmtilegasti tími sem ég man eftir og stefnan er sett á að næsta verði enn betra. Nenni nefnilega ekki að vera stuck í því að hugsa um hvað ´06 var mikil snilld og vil toppa það sem fyrst til að lifa ekki í glans fortíðarinnar. Það er ekki gott fyrir mann! Væri samt til í að lifa það allt aftur, hefði þá gert ýmislegt öðruvísi...
En allavegana þá er ég hætt í bili, þar til næst....
"Lífsins söguþráð
við spinnum aldrei einsömul.
Öll við erum háð
þeim öflum sem við fáum ekki ráðið við..."
6 ummæli:
rétt eru orð þín hildur mist, rétt eru þín orð!! get ég fengið halleluja!! ég er afar sammála þér. hvaða textabrot er þetta sem fylgdi með? þú þarft að taka mig í ísl.dægurlög 103. :)
Sammála síðasta ræðumanni, hvaðan kemur þetta textabrot? Það er alveg hreint mjög vel skrifað.
Og já ég hlakka líka hrikalega til að koma heim og í þetta sinn vera fram yfir afmælið þitt!!! Það verður snilld. En segði mér, ertu komin með flugpróf úr því þú segist ætla að "fljúga þér" til USA í júní? ;Þ
Haha vissi að það myndi leiða af sér komment... En neibb er því miður ekki svo heppin :) Tók bara svona til orða mér til gamans. En þetta textabrot kemur nú bara frá mér sjálfri... Já stelpan er frjó :)
Æi ég get ekki logið, ef það kemst upp geta Sálarliðar líka farið í mál við mig um höfundarrétt :) Vona að þetta hafi svarað spurnum ykkar :)
Og Helga hvernig spyrðu eftir að hafa sagt að þetta sé mjög vel skrifað :):)
Já mér fannst þetta Sálarlegur texti...ég bara kom ekki laginu fyrir mig. Stelpunni er greinilega farið að förlast í Sálartextum. Ég verð að taka upprifjunarnámskeið þegar ég kem heim :/
Skrifa ummæli