sunnudagur, mars 26, 2006

Davíð!! ég hef verið að hugsa um þig...


Jæja. Helgin. Var. Snilld!
Það er nú kannski komin tími á að við förum að hugsa aðeins um þetta blessaða blogg okkar!! Hildur, hvernig líst þér á það??? Koma með meira grín, fleiri myndir og hressari færslur!!
Ég skal taka fyrsta skrefið...Hérna kemur það!

Helgin fór fram úr mínum björtustu vonum!!
Á föstudaginn vorum við Hildur úberhressar í PI með AFS á kjantinum!! Starfsfólk AFS skrifstofunnar fær + fyrir að splæsa nammi á línuna! Síðan var fjölskyldukvöld!!
Þar sem fjölskylda mín er ótrúlega samrýnd, frábær, krúttuleg og eiginlega bara fullkomin ákváðum VIÐ að fara saman út að borða. Við skelltum okkur á Ítalíu og eftir á ætluðum við í bíó. en eins og þeir sem hafa setið að snæðingi á Ítalíunni vita að það er ekkert hlaupið að því að klára réttina sína. Þetta er e-ð prank hjá þeim að hafa þá svona ofboðslega stóra!! Og sökum ofáts meikuðum við bara alls ekki að fara í bíó. Skelltum okkur niðrí Snæland og leigðum böns af dvd og tróðum okkur í TV-sófann og gláptum á fullt af vídjó(nei bara 1, vorum svo þreytt og fórum svo að sofa:)
Laugardagurinn var líka helgaður fjölskyldunni. Mætti eldhress í þessa líka rosa tæknivæddu skírn hjá móðursystur minni. ÞAr sem 2 af 5 systrum mömmu gátu ekki verið viðstaddar og skírnin var haldin heima. Þá var bara skellt webcameru á og þær horfðu á þetta allt í beinni. Við gátum meiraðsegja rabbað við þær og alles. ekki leiðinlegt°! Svo eftir að Elmar var skírður lá leið mín í Hvannhólmann eins og svo oft áður.
Við Bína, Hildur og ég skelltum okkur í afmæli til Sólveigar þar sem boðið var uppá þessar líka fínu guðaveigar:) Horfðum á ódauðlegt myndband úr sumarbústaðnum f. jól. EFtir það afneitaðu Hildur Mist mér sem vinkonu....

Svo kom rúsínan í pylsuendanum: GUSGUS!! Þetta var snilld!! Byrjaði á því að ég týndi miðanum hennar Hildar,en þar sem NASA er svo heppið að vera með svona líka frábæra dyraverði hleypti gæjinn okkur bara inn!! En svo seinna um kvöldið fann ég miðann hennar...mjög dularfullt. Við hittum þarna fullt fullt af fólki og ég var rænd á barnum. Um heilar 700kkr...efast um að ég nái mér í bráð!! En svo fann ég strák sem gaf mér áfallahjálp og þá varég góð sko. Svo skelltum við okkur á 11una, hún stóð undir væntingumeins og svo oft áður. Tjúttuðum þar aðeins við ýmsa aðila. Stuð. Hlölli kom svo sterkur inn, eða þ.e.a.s. áður þangað til ég uppgötvaði að það var ananas helvíti á honuM!! það var ekki vinsælt. nema hjá stelpunni sem fannst ofboðslega fyndið að ég væri að skyrpa ananansum útúr mér. Svo hittum við líka læknanemann sem skoðaði á mér ristina(er sko ristarbrotinn or some) og braut í leiðinni e-ð sem ég hélt að væri trúnaðareiður og fór að básúna því um alla taxiröðina hvernig ég væri nú í fætinum. Það kom nú ekki að sök, en þetta hlítur að vera e-ð prinsipp, meina ef hann hefði verið læknanemi á húð&kyn væri ég ekkert alltof hlynt því að fá öskrað yfir lækjargötuna hvort að sýklalyfin sem ég væri á virkuðu ekki örugglega....Þið skiljið hvert ég er að fara?

Svo var sunnudagurinn bara klassíkin í rúminu allan daginn og svo bíó um aftenen. Fórum á Tristan& Isold. Sjaldan séð jafnmikið að heitum mönnum..uff. Það er e-ð við svona víkingamyndr; mennirnir allir rosa grófir, skeggjaðir, harðir og ég veit ekki hvað, þetta er bara alltof heitt !! Er ekki hægt að redda tímavél og ferðast aftur til þessa tíma þegar Njáll og Gunnar voru uppi...ég myndi ekki segja nei við því tækifæri!!

Svo er bara að halda áfram að telja niður daga að páskafríinu og DK...

5 ummæli:

Hildur sagði...

haha ja snilldin einar þegar gaurinn byrjaði að spurja þig hvernig ristinn væri... En i sambandi við myndina sem atti að vera i færslunni a undan þa er hun þvi miður ritskoðuð :-/ Virkjum þetta blogg lilja, sammala þvi og gerum það að bestu lesningu mannkynssögunnar....

Big Bird a.k.a. BB sagði...

Var ekki gefið í skyn í Njálu að Njáll væri samkynhneigður? viltu þá ekki halda þig við að hitta Gunnar þegar þú kemur út úr tímavélinni? :)

Nafnlaus sagði...

heheh jú það væri kannski fyrir bestu!! en Helga mín, þú ættir að vita að ég læt sko smámuni eins og kynhneigð ekki stoppa mig þegar ég hef sett mér e-ð takmark..hahaha nei, enda sá ég myndina og hilmir snær í hlutverki Gunnars var mun heitari en ingvar e. sigurðs sko....

Hildur sagði...

who the hell is Gunnar??
Íslendingasögurnar eru ekki mín sterkasta hlið....

Nafnlaus sagði...

Gunnar á Hlíðarenda auli.....en ég las fyrst Lilja mín " hvernig er ristillinn" og hugsaði að þetta væri nú voðalega dónalegur maður þar sem að það er nú ekki eitthvað sem að á að kalla upp yfir alla......