föstudagur, mars 31, 2006

Einn dans fyrir mig!

Nú er sko gaman að lifa. Sólin skín og fuglarnir syngja. "Lífið er núna" svo ég vitni nú í gamlan vin. Síðustu dagar hafa verið bara nokkuð góðir. Ég skellti mér út á landsbyggðina á fimmtudaginn og sá Bítlasöngleik hjá henni Toffu minni. Stelpan var að semja dansa og stóð sig líka svona helvíti vel! Föstudagurinn var ekki verri. Úrslitin í MORFÍS voru í Háskólabíó. MH vs. MR. Við fengum ræðumann kvöldins en MR-ingar unnu...MH-ingarnir skelltu sér síðan allir á SHOOTERS!! hahahah þetta var fyndin stemmari. Það var einróma álit að MH verði að finna sér svona soldið meira respectable stað fyrir bjórkvöld....með fullri virðingu f. Shooters. En það var gúd, dansaði á fullu og skellti mér síðan í bæinn með Eddu og co.. Það var góður stemmari. Fullt af útlendingum. Þeir eru alltaf hressir.

Svo er hún Evy "systir" hennar Hildar komin til landsins og við fórum rosalega menningarlegar að sýna henni Perluna, Skólavörðustíginn og svona í gær. Æðislegt veður fyrir utan -143°C frost. Sáum ÍBV verða deildarmeistara kvenna og tókum Singstar, ég vann Just like heaven í fyrsta skipti!! JESS. Svo var Kristján svo hress og skemmtilegur eins og hans er von og vísa og bauð mér á tískusýningu sem hann var að taka þátt í !! Hann var langflottastur að sjálfsögðu;)

Svo var búið að skipa Hildi sem sérlegan eftirlitsstelpu í afmælispartýi hjá Evu frænku hennar. Þannig ég fór í annað skipti út fyrir borgarmörkin, í þetta skiptið uppá Álftanes! Þetta var fínasta partý. Hildur tók dyravarðahlutverk afar alvarlega og hleypti engum inn nema að sá hinn sami væri með handskrifað boðskort með stimpli og alles! :) Hún stóð sig einkar vel. Við heyrðum ýmsar sögur um fólk í leit að sinni réttu köllun í lífinu. Ég hélt líka um stund að ég væri komin í Örkina hans Nóa. Þvílíkur aragrúi af dýrum!! Lífs&liðnum..; 3 kettir, tíkin Káta, STÓrT fiskabúr með skrautsteinum, uppstoppaðir fuglar og refur, fuglaklukka og ég veit ekki hvað sko! Þetta gekk samt sem áður bara mjög vel og það kom mér á óvart hvað þetta var rólegt. Var búin að undirbúa mig fyrir e-ð brjálað "unglingapartý"!!

Dagurinn í dag er sunnudagur aka Leiðinlegasti dagur vikunnar. En mér sýnist á öllu að við séum að fara í sund, svo þetta er ekki alslæmt...

Svo er það countdównið:
Páskafrí: 5 dagar
Danmörk með familien:24 dagar
Prófin búin: 44 dagar
Hróarskelda&Köben: 12 vikur og 2 dagar

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

yo bitches in the parking lot
put your hands up in the air
put your hands up in the air
bið að heilsa þeirri þysku

Nafnlaus sagði...

kommón, ég er að reyna að sýna smá lit,
þetta er eitt eilífðar strit.
Hildur þetta er orða gáta
afhvejru var þessi fyrir sáta?
Lilja mín drengirnir þig gráta
er ég horfi með pabba á báta
Heyrðist mér að líney hafi háttað
en ekki varð mannfólkið gáttað
Telma fór til Finna að klippa
og ásrún hætt að sippa.
Hvað segiði um bjór sopa
annars get ég sætt mig við kaffi dropa...

Nafnlaus sagði...

karen þú mæta meyja
ætlar þú orðastríð að heyja?
mér sýnist svo að höfum vér
hrokkinhært nóbelsskáld fengið hér
Ekki græt ég þessa þróun,
ég þigg bjórinn, já og hugarfróun:)
hittumst fljótt og spjöllum saman
sagði ekki maðurinn:
"maður er manns gaman"!!

Nafnlaus sagði...

heyja?
og er það ekki Freyja sem er meyja?
nóbelsskáld og þó?
ég er allavegana ekki silly little ho!
á fimmtudag skulum við mætast
og þá mun lýðurinn kætast...

Nafnlaus sagði...

fimmtudagur það er gúd
við mununum mætast og fara út
á barinn kenndan við kaffi
troopa, b-ruff og kannski haffi
munu troða upp og spila
þar mun ég vera skaltu vita!

Nafnlaus sagði...

bíddu var það ekki Héðinn
eða ertu nú öðrum gefinn?
kannski mun ég mæta
eða jafnvel tryllast vegna mikilla læta!
láta ég veit
ég varð ekkert vitrari eftir að ég varð feit
á ég að koma með 500kall
eða verða þeir með mall?
t-t-t tjekkit

Hildur sagði...

Hey þið gellur,
sem eigi hafið heilasellur.
Flott hjá ykkur að ríma,
kannski ég selji minn síma.
Fyrir bús,
þó ég sé ekki með lús.
Mælum okkur mót,
það verður þá bót,
fyrir glataða tíma,
nú er ég líka farin að ríma.
Karen lítið sést hefur,
enda orðin giftur refur.
Koss á ykkar kinn,
og nú kveð ég um sinn!

Nafnlaus sagði...

hey hildur þú kannt þetta líka
enda segja þeir, erfitt er að finna eina slíka!
ég mun ekki þamba,
en enginn segir að það verði ekki stiginn samba!
þá verður gaman
enda verðum við 3 saman

Hildur sagði...

Oj þetta var væmið,
en vinir, nú klára ég dæmið.
Sem rímu, sú ert best,
er samið getur mest.
Nú stoppar stuðið,
ég standa verð upp eftir puðið.