föstudagur, mars 10, 2006

Heldurðu það sem ég held? Já ég held það...


Jæja, þá er þetta blogg okkar orðið opinbert! Ég ætlaði nú að kommenta hressilega á færsluna hennar Hildar en ég hef svo mikið að segja að það er best að koma því bara að hérna. Og byrjar lesturinn;
Það er fyrir löngu orðið deginum ljósara að ég og Hildur eyðum ómældum tíma saman, svo miklum að það hafa verið vangaveltur um hvort við séum kærustupar. Jæja, eftir allan þennan tíma er maður farin að kunna soldið á hana Hildi. Eða bara alltof mikið, þetta fer að vera óhugnalegt í meira lagi.
dæmi:
1.Í fyrradag segir Hildur ,,mmm mig langar í e-ð rosalega gott" Ég: ,,ókei, förum í Vesturbæjarísbúðina!!" og það var einmitt það sem hún var að hugsa.

2. Í gær á sátum við á bekknum og vorum aldrei þessu vant djúpt sokknar í handboltaleikinn HK-Haukar sem við vorum að spila í. Hildur lítur á mig og segir ,, ohhhh" og ég svara um hæl ,, já ok, við skulum hafa gististund(hvernig orðið gististund kom upp í huga mér er ennþá óleyst ráðgáta) En viti menn, ég hafði rétt fyrir mér!! Þetta fer að verða soldið spúkí sko.

3. Alltaf batnar það. Í dag byrja ég að skrifa færslu hérna inná og var bara búin að setja mynd inná en þurfti svo að hætt við sökum anna. Hvaða mynd önnur varð fyrir valinu, en sú sem Hildur setti inn í færslunni hér á undan !!!!

Við förum að hætta að þurfa að tala upphátt saman bráðum!! Nehhh, þá yrði svo leiðinlegt fyrir Hilmar.
Hvað ætti hann þá að gera af sér í öllum leikjunum okkar? Engin til að hlæja að, ranghvolfa augunum eða verða kjaftstopp yfir!! Nei ég held við höldum okkur við talmálið góða þangað til aðrir hafa þróað með sér hugsanalestur.

3 ummæli:

Bína sagði...

Nei heyrðu bara mynd af mér.....gleymdi að segja ykkur það að í hálskirtlatökunni í dag breyttist ég í banana og núna er ég komin í náttföt !!!

Hildur sagði...

hahaha, bína hvort ertu Banni eða Nanni??? En já Lilja, þetta er furðulegt allt saman sko... dudururu...

p.s. takið eftir þvi klukkan hvað eg kommenta þetta. Er vöknuð fyrir löngu þratt fyrir að hafa verið að vinna í nótt. Oh, ég er svo mikill morgunhani... Ótrúlegt :-)

Hildur sagði...

mig langar að benda a að klukkan er klukkutima a undan, hun var sko korter i ellefu i morgun þegar eg kommentaði.. og hana nú