En já helgin var fín, ég var að vinna og það var nú bara hin besta skemmtun eins og oftast. Svo var fjsk. afmæli heima hjá pabba á sunnudaginn fyrir Hrannar og smá mig líka (systkini sem eiga sama afmælisdag eru nú ekki á hverju strái). Svo var um kvöldið matarboð heima hjá mér þar sem ógeðslega góður kjúklingaréttur var í matinn, Lilja getur sko stutt og sannað að hann sé einn sá besti sem fólk hefur bragðað. Svo gerðist það nú..... já við loksins loksins fjárfestum í flugmiðum til Köben. Það gekk vel en ég var næstum hætt við því að ég þurfti að borga 2600 kr. svona eiginlega til einskis fyrir forfallatryggingu sem ég vonandi þarf ekki að nota og sko kostaði 1000 kr. meira að fljúga með seinni fluginu en því fyrra en betra þótti að fara fyrr um daginn. En ég er nú svona meira að fíflast með þetta en ekki... :-) Elska þig Bína mín.
Svo þegar ég mætti í skólann á sjálfan afmælismorguninn var e-r ljúglingur búin að koma með köku mér til heiðurs sem var á borðinu mínu, en það var enginn önnur en hún Lilja litla sem einnig kom og söng afmælissönginn f. mig seinna um daginn.

Um kvöldið ætluðum við heldur betur að gera okkur glaðan dag, fara niður á Rósenberg og taka smá krossorðaspilskeppni og kenna Bínu þetta undur veraldar í leiðinni. En þegar þangað var komið var hvorki meira né minna en lokað vegna þess að það var verið að mála svo við þurftum að fara annað og Prikið varð fyrir valinu í þetta skipti en því miður gátum við ekki farið í krossorðaspilið...Vá hvað þetta er innihaldslaus færsla, en þar sem ég er að fara á stæ.próf á eftir og ætti að vera að læra fyrir það er allt skemmtilegt fyrir mér á þessari stundu annað en að læra að reikna út staðalfrávik og e-ð um Z-stig... Úff
Nú fer brátt að líða að júróvisjón og í tilefni þess ákvað ég að skella þessari skemmtilegu mynd hérna inn... Hún er einmitt tekin fyrir tveimur árum (vá hvað tíminn líður) í einu besta partýi sem ég man eftir. Og hér með skora ég á Líneyju að endurtaka leikinn í ár :-)
2 ummæli:
jæja já, er það svona. Þessi mynd er gúd! held ég hljóti að fá verðlaun fyrir lengstu tunguna!! or soem.. gott party"! eins og afmæliskaffið þitt. damn, ég hef sjaldan borðað jafnmikið af góðum mat á stuttum tím,a!!Ummm lecker!!:)
Til hamingju með daginn þótt seint sé mista mín! jájá eg er ein af þeim svikulu og gleymdi þessu...en guvuð þetta blessaða party..sheeeett...og þessi mynd vá hvað ég var jukkuð...ætla að vona að ég sé nú kannski eylítið skárri!! ;) kveðja from DíKei
Skrifa ummæli