fimmtudagur, mars 16, 2006

íslenska, íslenska, íslenska



Eins og fyrirsögnin ber raun vitni er íslenska málið þessa dagana, allavegana hjá mér. Veit ekki með ykkur en þetta ylhýra mál okkar sem búum á þessari einstöku eyju er alltaf að koma mér meira og meira á óvart. Ekki nóg með að þetta sé uppspretta alls hins fallega, góða og rausnarlega í lífinu hefur þetta líka orðið ein af ástæðunum að mig langar stundum að flytja til útlanda og aldrei koma aftur...en nóg um það.

Kristján kappi vinur vor er að fara að gera "walk off" í kvöld, allir að mæta í Smáralind að sjá kappann!! Ekki margir jafn fjallmyndarlegir og hann Kris minn. Maður mætir náttla að styðja drenginn! Gettu betur hvað?? Læt sko bara taka það upp!!

Hélt fyrirlestur í dag um Hallgrím Helgason, maðurinn er snillingur. Verð að birta hérna brot úr viðtali sem við tókum við manninn...hann er frábær
Við báðum Hallgrím semsagt um að segja okkur örstutt frá æsku sinni:
....Í Ríkisútvarpinu var einn þáttur helgaður dægurlögum og þau fengu aðeins þeir að velja sem voru alvarlega sjúkir og lágu á spítölum borgarinnar. "Óskalög sjúklinga" hét sá þáttur. Okkur krakkana dreymdi því öll um að fá krabbamein og leghálskirtil: við ætluðum að verða sjúklingar þegar við yrðum stór...Hann deildi líka með okkur mikilvægustu lexíunni sem hann lærði í MH:...Og líklega er þetta það eina sem maður lærði í MH: að þeir sem eru villtastir í skóla verða spilltastir í lífinu. Þeir sem ungir gefa skít í kerfið eru tilbúnir að éta hann fyrir það síðar.
Hvað finnst ykkur? Er þetta satt og rétt? Ég læt þetta ekki vera lengra í bíli. Ég er farin upp í Mekku Kapítalisma eins og "við MH-ingarnir" köllum Verzlunarskóla Íslands....hasta la vista, baby

3 ummæli:

Hildur sagði...

Haha, við erum þær einu sem kommenta hér... Gaman að því!! :)

Big Bird a.k.a. BB sagði...

hvað meinarðu eiginlega stelpuskratti? ég kommentaði á síðustu færslu hjá ykkur andsk%"&/#%&"Q%$ rangfærsla er þetta. Eða er ég kannski meðtalið í "við" ? :)

Bína sagði...

kunni ekki við annað en að kommenta hjá ykkur stöllum þar sem að þið eruð í meiri hluta kommentara....það er að segja eingöngu ég og Helga höfum kommentað hjá ykkur....en hvað er málið hvenær ætlum við eiginlega að panta miðana....er ´buin að bíða veik heima eftir ykkur....