föstudagur, apríl 07, 2006

Prófa-líf eða -dauði

Einungis nokkrir klt. þar til hið langþráða páskafrí byrjar.... Loksins loksins, það sem maður er búin að bíða eftir síðan jólafríið kláraðist er nú bara handan við hornið. Það er mjög þægilegt að hugsa til þess, svona eins og maður sé að ná markmiði sem stefnt hefur verið að í langan tíma. Ekki það að skólinn sé slæmur, það er bara svo ljúft að vera í fríi...
Segi svo eins og hún Lilja, vorönnin er einhverra hluta vegna alltaf erfiðari og jafnframt leiðinlegri en haustönnin. Hver skýringin á því er veit ég ekki. Það er e-n veginn það að á haustinn er maður búin að vera í fríi allt sumarið og er að verða komin með nóg af því og farið að kitla í fingurnar því maður hlakkar svo til þess að fara að leysa hin ýmsu stærðfræðidæmi og glósa íslendingasögurnar og byrjar því af krafti um leið og bjallan hringir inn fyrsta daginn. Svo er hins vegar eins og þessi eldmóður sé alveg horfinn úr manni í byrjun desember en þá huggar maður sig við það að maður þurfi bara að surviva jólaprófin og svo kemur tími besta afslappelsis ársins, þegar það erfiðasta sem maður gerir er að halda uppi bókinni sem maður er nýbúin að færa úr umbúðunum..... Semsagt blessað jólafríið!! Jólaprófin ganga svo oftast alveg sæmilega þar sem maður hefur verið mjög duglegur að sinna náminu undanfarna mánuði. Svo er jólafríið á enda og það er svo skrítið að á þeim tíma vantar alveg í mann þessa tilhlökkun að byrja aftur í skólanum eins og er á haustin... Maður er meira svona í fílingnum "hvað eru margir dagar í páskafrí?, afhverju er jólafríið ekki fram að þrettándanum??" og fl. í þessum dúr.
Þannig að á tímum eins og núna þá er maður alveg guðslifandifegin að vera að komast í smá pásu en er hins vegar alveg með kvíðahnútin kraumandi í maganum útaf því að innst inni veit maður að með hverri mínútunni sem líður styttist alltaf meira og meira í vorprófin og alla vinnuna sem þeim fylgir, (ég tala nú ekki um öll verkefnaskilin sem raðast upp viku fyrir frí). Lestur 24/7 í meira en tvær vikur, prófapirringur og það sem meira er prófaljótan... Já maður getur eiginlega ekki látið sjá sig á almannafæri á þessum tíma þó að maður þurfi svo sannarlega á smá uppliftingu að halda milli þess sem maður leggur á minnið vísurnar í Hávamáli...
Maður er semsagt fastur í svona vítahring, ef maður vill standa sig vel þarf maður að lesa, ef maður les vel og mikið fær maður prófaljótuna og getur ekki látið sjá sig utandyra en maður verður einmitt að taka sér frí frá lestri til að fara ekki yfir um. Þannig að þetta endar þannig að maður kemst ekkert út , les yfir sig og kemst þ.a.l. ekki í prófið, þarf að taka sjúkrapróf sem eru alltaf svínslega erfið og þá er maður búin að gleyma fyrir löngu öllu sem maður átti að hafa lært og fellur því og þarf að endurtaka þetta allt saman að ári.....
Þannig að mín tillaga er sú að fylgjast alveg súper vel með á vorönn jafn og á haustönn þannig að það þurfi rétt að glugga í glósur fyrir vorpróf eða jafnvel bara ekkert að læra (meira samt fyrir svona Einsteina eins og mig ) sem kemur í veg fyrir oflestur, sem kemur í veg fyrir prófaljótu, sem kemur í veg fyrir að maður þurfi að hanga heima allan daginn, þannig að maður heldur geðheilsu, nær góðum árangri í prófaandsk..... fellur ekki og kemst klakklaust á næsta ár skólagöngunnar.......

Með þessum orðum kveð ég að sinni, minni fólk bara á að það er alveg líf eftir prófin og því um að gera að hugsa frekar um hversu stutt er í að þetta sé allt saman yfirstaðið því það gefur manni aukinn viljastyrk og kraft til að klára þetta með sæmd, en ekki að sitja í sjálfsvorkunn yfir því að það sé svo mikið eftir......

Baráttukveðjur, HMF

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þarna þekki ég þig sykurpúði1! þú orðaðir svo snilldarlega það sem við öll hugsum!! vorannir eru verkfæri djöfulsins og ekki manni bjóðandi!!

Nafnlaus sagði...

sammála ræðumanni 1 og 2....heyr heyr

Big Bird a.k.a. BB sagði...

voðalega ertu klár í að koma orðum að hlutunum. Uss uss uss....mætti halda að þú værir skyld honum pabba þínum ;)

Nafnlaus sagði...

hey þetta var svo langt að ég nennti ekki að lesa, en var án efa besti pistill í mannkynssögunni, en eg mun fara a mis við eins og svo margt annað...

en hey
sjáumst
skemmtumst
skrifumst

kv. karen krútt

Nafnlaus sagði...

ég nenni þessu ekki
en finnst samt ágætt að sitja í eigin reykjar mekki
nenniði plís bara að kommenta í rímum
annars getum við bara talað í símum.
lilja hvenær er partyið þitt
eg hef ekki enn fengið boðskortið mitt
kannski fáiði afmælis pakka
en kannski bara tá neglur að lakka
vonum að það verði Það fyrra
og þá verðiði eins og jesu og í pakkanum myrra

Hildur sagði...

Karen, þú kannst sko að grína
og ekki feimin öðrum það að sína.
Næstu daga verður i fyrirrúmi maginn,
því grillið góða er á fimmtudaginn.
þá vonandi fáum við sól,
svona eins og það væru hreinlega jól.
Úti á svölum með eina hvítvín hvert,
enda svo langt síðan það höfum við gert.
Til partýs skal blásið kæru vinir,
þú ert boðin og líka allir hinir.
Í grillið fyrst og svo áframhaldandi teitið,
trúlega hefst það allt um 6 leitið.
Lilja treystir á að þú látir vita í tíma,
hvort teljistu með í neðangreindann síma.
En þetta er nú orðið ágætis ljóð
og getur verið stolt öll vora þjóð!

(síminn er 687-4835)

Lilja Dögg sagði...

Karen mín kæra Rúnarsdóttir
þú boðið fékkst er Jóhann oss sótti
Boðið mæta á fimmtudag verður
tímann ei hefur þó verið gerður
Mér sýnist þó Hildur ákveðið hafa
að það byrji 18, það er víst krafa!
ég býst því við þið allar mætið
aðeins fyrr, þið jú mikið mig kætið
að skera papriku, tómata, kál
með eina hvíta segjum við "skál"
Nú er svo komið að ég segi bless
við hittumst því öll kát og hress!

Big Bird a.k.a. BB sagði...

í búsi liggur æska vors lands
held þetta leiði til mikils hlands
eru ungir að stefna í voða?
tja eða vilja þeir Voginn skoða?
ef stórt er spurt er fátt um svör
og koma skal niður af þessari skör
góðar stundir í íslensku grilli
vona að þar sjáist ekki einn t....
bið að heilsa lækjartorgsklukku
og megi lífið ykkar vaða í lukku
lýk ég með kveðju að handan
og munið! ekki gera neinn fjandann

Gréta sagði...

Ég ætla nú bara að hætta mér til að commenta og ekki í rímformi. Vildi bara senda baráttu kveðjur og segja að fólk um öll lönd er í sama pakkanum. Við námsmenn þjáumst!