föstudagur, október 27, 2006

Dagurinn á morgun

Þriðja bloggið mitt á tveimur dögum. Met?? Ég er alveg að tapa mér í æsingnum þessa dagana, veit ekki hvað er að gerast. Ég sem alltaf er svo róleg, stillt og prúð :) Nei án gríns þá er þetta e-ð skrítið...
Er að fara að vinna í kvöld og átti að vinna á morgun líka en sökum smá mistaka þá mun ég ekki mæta til vinnu á morgun heldur ætlar hann karl faðir minn standa vaktina ásamt eðalsmanninum Hjalta og Viktori sem ég hef ekki enn kynnst og get því ekki sagt til um hvort að hann sé líka eðalsmaður eður ei.... En allavegana þá er ég nú að minnast á þetta því að það gæti allt eins verið að ég skelli mér þess í stað út á lífið á morgun (er reyndar í gríðalegum fíling í þessum skrifuðu orðum að hlusta á Rebelinn stórgóða), edrú að sjálfsögu þar sem að nýja áfengisbyndindið mitt tók formlegt gildi síðasta sunnudag og stendur þar til að jólaprófunum líkur, þ.e.a.s. til 14.des..... (shji, nú er ekki aftur snúið fyrst að ég er búin að skrifa þetta hér. Get alls ekki verið þekkt fyrir það að mér mistakið e-ð (vá hvað þetta hljómar hrokafullt:))) En já semsagt mun ég því kannski bara efna eldgamalt loforð um að koma að dansa með ekki ómerkari dansara en sjálfri Saadiu Auði Dhour... E-ð held ég að þetta eigi eftir að verða skrautleg ferð því að ég (eins og þeir sem þekkja mig vita) dansa bara hreinlega ekki. En það stendur nú allt til bóta þar sem við Lilja erum að fara á hiphop dansnámskeið í nóvember og fólk skal gæta að sér á dansstöðum borgarinnar eftir að við erum búnar á því..... Erum orðnar gríðalega spenntar!!
Nú þarf ég hins vegar að snúa mér að því að skipta um föt og laga mig aðeins til og drífa mig í matarboð og svo í vinnunna.....

Þar til næst....."Ég er rebell, ég er rebell!! Sjáðu mig dansa, sjáðu mig dansa!!".........

4 ummæli:

Big Bird a.k.a. BB sagði...

Ertu rebell? Ekki datt mér það í hug. En það hlaut að vera skýring á lokknum góða ;Þ

Nafnlaus sagði...

hahaha góð cookie....en vá þetta heppnaðist svona líka vel hjá okkur maður...össs...hahaha við verðum að vinna í þessu veseni þarna, en ég meina hvað gerir maður þegar prins á hvítum fáki (ekki hesti) kemur og biður um hönd manns, og maður ljómar allur...en þegar betur er að gáð, þá er hann allur morandi í majonesi???

Hildur sagði...

HAHAHAHA snilld :)
Ég var einmitt að semja sögu um PRINS sem kom ríðandi á FÁKI sem hét RAUÐUR. Á leið sinni hitti hann fyrir SLÖNGU en varð ekki hræddur heldur kveikti í henni með ELDSPÍTUNNI sem hann var með í vasanum. En þá gerðist soldið slæmt því KÚKAFLUGA kom og réðst á hann. Ekki lét hann það þó stoppa sig því MAJONES (sem hann btw var með í vasanum) banar öllu og hann kastaði því af öllu afli í óvinin og því var hann óhultur á ný og gat haldið ferð sinni áfram ásamt FRUMEINDAR CANDYFLOSSINU sínu :)

Nafnlaus sagði...

hahahahahhahahahaha meiri sniiiiiiiiilld ;) djöfuls snilld, fantastic snilld, meiriháttar snilld, já nóg haha...snilld bara