þriðjudagur, október 31, 2006

jamm og jamm og jú

Mig langar til þess að byrja á því að óska elskulegri frænku minni, Maríu Ottesen innilega til hamingju með árin 20... Man þegar við vorum litlar og Maja átti afmæli og þá var alltaf svo stutt í mitt sem segir mér nú að það er ekki langt þangað til ég hef lifað áratugina tvo. Því verður að sjálfsögðu fagnað svakalega ásamt Lilju og Karen. Erum meira að segja farnar að skipuleggja þessi herlegheit nú þegar :) Ef ÞÚ verður heppinn þá verður þér boðið :) Þetta verður því afælisveisla grinteam hópsins sem við verðum víst að viðurkenna að við séum þrátt fyrir það að hafa svarið þess eið allar þrjár að verða aldrei hluti af bloggsamfélagi... Satt að segja er þetta ekki bloggsamfélag heldur annað félag með skýr markmið sem að verða þó ekki látin uppi hér.
En hvað um það... Nóvember á næsta leiti sem að gleður mig ekki mjög því að það er sá mánuður sem mér líkar hvað verst við. Það ljósa í tilverunni er þó að nóvember þýðir að stutt sé í jól og ég elska þau svo það er e-ð að hlakka til... Svo vona ég að snjórinn geri sig heimakominn á nýja árinu svo hægt sé að fara á bretti og þess háttar meira en síðustu ár. Áramótaheitið þetta árið verður sennilega það að verða tíðari gestur í Bláfjöllum en undanfarin ár því að þetta er svo helv... skemmtilegt þegar maður hefur það af að drífa sig á stað. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í átakinu vinsamlegast hafið samband við undirritaða.
Fín helgi að baki. Var að vinna annað kvöldið, var svo í vinnunni ekki að vinna hitt kvöldið og í gær sat ég fyrir framan skjáinn að reyna að skrifa ritgerð sem gekk svona upp og niður. Þurfti ekki að skila henni í dag, mér til mikillar gleði svo að ég hef morgundaginn til að betrumbæta hana.
Fór í afmæliskaffi í kvöld með dýrindis veitingum eins og venjan er í Austurtúni 8 á Álftanesinu. Talaði þar heillengi í símann við Evu litlu frænku mína sem er skiptinemi í Brasilíu núna og það var alveg hreint frábært hljóð í henni, mér til mikillar gleði. Fyndið að tala við hana, svona eins og að endurupplifa mína dvöl í gegnum e-n annan... Hún er að upplifa og taka á mörgu á sama hátt og ég gerði sem er bara gott þar sem að ég var náttlega algjör fyrirmyndarskiptinemi :)
En jamm og já, best að fara að halla sér... Skóli kl. 8:10 í fyrramálið eins og venjan er. Leikfimi í fyrsta tíma, sjibbí..... Reyndar e-r dansvika núna svo að það verður e-ð skrautlegt.
Ætlaði að skella hér með mynd frá árinu mínu í Þýskalandi en hún er of stór eða e-ð, það virkar allavegana ekki... En í stað þess læt ég fylgja með spilið sem ég dróg í dag á spamadur.is.

Bikardrottning

Dula umlykur konu þessa. Hún leyfir ekki hverjum sem verður á vegi hennar að kynnast sér náið. Hún er góð manneskja en dreymin oft á tíðum. Hún á það til að dreyma um eigin framtíð og annarra ómeðvitað.

Hún býr yfir styrk sem er ekki auðsjáanlegur á neinn hátt og gáfuð er hún. Konan er viðkvæm oft á tíðum og býr yfir þeim hæfileika að vera fær um að hlusta vel á undirmeðvitund sína þegar kemur að því að kynnast öðru fólki.

Hún kann að virðast skrítin en það er eingöngu misskilningur þeirra sem þekkja hana ekki og fá eflaust aldrei tækifæri á því.

Hún er skapandi, gjöful og góð alla leið.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

"Hún kann að virðast skrítin og er góð alla leið"
Þetta er nú heldur betur rétt....
Enda er hún hildur okkar stórskýtin. Með járn í andlitinu eins og svo margir þreytast aldrei á að benda henni á!!! ég hlakka mikið til 20. aldursins, ´þá get ég farið til dyravarðarins á Barnum og gefið honum fokkmerkið hrækt á hann og labbað svo inn. og ég verð ekkert verri manneskja en neinn annar....!

Nafnlaus sagði...

æj sorry lilja...það er sko 22 ára á barinn!

Hildur sagði...

hahahaha þú ert rebell!