En hvað um það... Nóvember á næsta leiti sem að gleður mig ekki mjög því að það er sá mánuður sem mér líkar hvað verst við. Það ljósa í tilverunni er þó að nóvember þýðir að stutt sé í jól og ég elska þau svo það er e-ð að hlakka til... Svo vona ég að snjórinn geri sig heimakominn á nýja árinu svo hægt sé að fara á bretti og þess háttar meira en síðustu ár. Áramótaheitið þetta árið verður sennilega það að verða tíðari gestur í Bláfjöllum en undanfarin ár því að þetta er svo helv... skemmtilegt þegar maður hefur það af að drífa sig á stað. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í átakinu vinsamlegast hafið samband við undirritaða.
Fín helgi að baki. Var að vinna annað kvöldið, var svo í vinnunni ekki að vinna hitt kvöldið og í gær sat ég fyrir framan skjáinn að reyna að skrifa ritgerð sem gekk svona upp og niður. Þurfti ekki að skila henni í dag, mér til mikillar gleði svo að ég hef morgundaginn til að betrumbæta hana.
Fór í afmæliskaffi í kvöld með dýrindis veitingum eins og venjan er í Austurtúni 8 á Álftanesinu. Talaði þar heillengi í símann við Evu litlu frænku mína sem er skiptinemi í Brasilíu núna og það var alveg hreint frábært hljóð í henni, mér til mikillar gleði. Fyndið að tala við hana, svona eins og að endurupplifa mína dvöl í gegnum e-n annan... Hún er að upplifa og taka á mörgu á sama hátt og ég gerði sem er bara gott þar sem að ég var náttlega algjör fyrirmyndarskiptinemi :)
En jamm og já, best að fara að halla sér... Skóli kl. 8:10 í fyrramálið eins og venjan er. Leikfimi í fyrsta tíma, sjibbí..... Reyndar e-r dansvika núna svo að það verður e-ð skrautlegt.
Ætlaði að skella hér með mynd frá árinu mínu í Þýskalandi en hún er of stór eða e-ð, það virkar allavegana ekki... En í stað þess læt ég fylgja með spilið sem ég dróg í dag á spamadur.is.
Bikardrottning
Hún býr yfir styrk sem er ekki auðsjáanlegur á neinn hátt og gáfuð er hún. Konan er viðkvæm oft á tíðum og býr yfir þeim hæfileika að vera fær um að hlusta vel á undirmeðvitund sína þegar kemur að því að kynnast öðru fólki.
Hún kann að virðast skrítin en það er eingöngu misskilningur þeirra sem þekkja hana ekki og fá eflaust aldrei tækifæri á því.
Hún er skapandi, gjöful og góð alla leið.
3 ummæli:
"Hún kann að virðast skrítin og er góð alla leið"
Þetta er nú heldur betur rétt....
Enda er hún hildur okkar stórskýtin. Með járn í andlitinu eins og svo margir þreytast aldrei á að benda henni á!!! ég hlakka mikið til 20. aldursins, ´þá get ég farið til dyravarðarins á Barnum og gefið honum fokkmerkið hrækt á hann og labbað svo inn. og ég verð ekkert verri manneskja en neinn annar....!
æj sorry lilja...það er sko 22 ára á barinn!
hahahaha þú ert rebell!
Skrifa ummæli