Tilgáta A: Hildur á sér ekkert líf og þar af leiðandi hefur hún meiri tíma til að blogga.
Tilgáta B: Ég á mér innihaldslítið líf sem er tilgangslaust að segja frá.
Til að Tilgáta A standist þyrfti Hildur að vera sérstaklega leiðinleg og óspennandi manneskja sem ætti enga vini og hefði ekkert betra að gera en að segja frá aumingjalegu lífi sínu. Þessi tilgáta brotlenti áður en ég gat klárað að lesa hana til enda! Hildur Mist Friðj.Ottes. aka minn BFF er einstaklega hress og skemmtileg stelpa og lifir fyrir fátt annað en "Carpe Diem"(grípið gæsina á meðan hún gefst) og "La vida es ahora"(lífið er NÚNA). Þannig er það algjörlega ómögulegt að ætla að hún bloggi vegna lífsleiða og leiðinlegra daga.

Þá komum við að Tilgátu B: Það er gefin staðreynd að ég er mun latari og ónennari en Hildur. Ég beila oftar á hlutum eins og djammi, sumarbústaðarferðum um miðjar nætur o.s.frv. Allt vegna gífurlegrar síþreytu(sem var reyndar einu sinni vegna járnskorts, en það er önnur saga). Ég kaupi aldrei neitt á kaffihúsum og fer ein í göngutúra um verslunarmiðstöðvar. En þrátt fyrir allt þetta er ég samt BVAE(BFF) hennar Hildar. Og í því felst að næstum allt sem ég geri, geri ég með fröken Hildi. Það þýðir að meira og minna allt sem ég skrifa um fjallar um Hildi. Sem þýðir líka að ég get ekki verið að blogga um leiðinlega hluti!
Mín niðurstaða er því sú: Ég er einfaldlega bara löt.(sjá mynd)
Svo þarna hafið þið það.
8 ummæli:
Vá ég var sjálf búin að gleyma að hún Telma var einu sinni nörd, man samt eftir einni hressi færslu sem fjallaði um kúkkí og aðeins meira próvat hluti en flestir hafa áhuga á að vita... kannski ég ætti að fara taka upp fyrri hætti, þó varla áður en ég náði að hugsa þessa hugsun á enda kom nei upp í huga mér og þetta klassíska: "What happens in Denmark stays in Denmark" Sem er mjög mikilvægt og gott motto
byrja a þvi að klappa fyrir lilju þi hun bloggaði, ja kraftaverkin gerast enn... fannst þetta með kaffihusin best, að kaupa ekki neitt... hehehe er nybuin að vera að rifast utaf þessu :) Eg veit samt og þu lika lilja og telma lika að þu ert samt langt nennust i hlutum eins og að na i simann upp, eða eð svona gera fyrir mann heima....
en ja Gréta, ég er alveg sammala þer með að maður a bara að skilja skandalana eftir þar sem þeir gerast, það er alveg a hreinu að það sem mun gerast i DK i sumar það verður ekki allt tekið með heim sko... :)
Hehe... spurning hvort maður geti ekki fengið sér einhverja tengiliði þar sem þið verðið svo ég verði með allt slúðrið á hreinu;)
ætli ég verið ekki hinn sjálfútnefndi siðgæðisvörður með þá reglu um að stelpurnar mínar eigi ekki að gera neitt sem að ég myndi ekki gera ;).......
Hmmm og að hvaða leiti ætti það að stoppa þær?? Bara svona vangavelta...
Vá hvað þú náðir að skrifa nafnið mitt oft í einni færslu....
þegar ég tjekkaði á hotmailinu mínu í dag voru 23 unread mails...þetta er gott dæmi um hvað er ofboðslega langt síðan ég settist fyrir framan tölvuna...
Það blæðir úr hnúunum á mér....
Hildur; aldrei er góð vísa of oft kveðin. Hildur
Reynið nú að blogga, halló þið eruð tvær!!
Skrifa ummæli